Fréttatíminn - 24.01.2014, Qupperneq 50
50 ferðalög Helgin 24.-26. janúar 2014
Ferðalög gjaldmiðlar í Noregi og KaNada haFi læKKað um Nær FimmtuNg
PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...
Þúsundir fermetra af flísum með 20 -70% afslætti
Baðherbergisvörur 20 -70% afsláttur
Teppi og dúkar 25-70% afsláttur
ÚTSALA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...
Revestimiento
Ace Negro 33,3x100 cm
Ace Blanco 33,3x100 cm
Pavimento
Crystal Floor White 33,3x33,3 cm
Crystal Floor Dark 33,3x33,3 cm
Mesta úrvalið
Beint flug á áfangastað er sennilega
fyrsti kostur hjá flestum ferða-
löngum. Jafnvel þó það kosti aðeins
meira því tímanum er sjaldnast vel
varið á erlendri flugstöð. Af þeim
löndum sem flogið er til frá Íslandi
á sumrin þá stendur valið oftast á
milli tveggja eða þriggja flugvalla
í hverju landi fyrir sig. Í Kanada
fjölgar borgunum hins vegar í
fjórar á næstunni en framboðið á
áfangastöðum í Noregi er jafnmik-
ið. Fimmta borgin bættist nýlega
við í Bretlandi og hefur ferða-
mönnum þaðan fjölgað mjög mikið
síðastliðið ár. En íslenskir flugfar-
þegar hafa hins vegar úr mestu að
moða í Bandaríkjunum og Þýska-
landi. Er flogið til sjö borga í hvoru
landi fyrir sig yfir aðalferðamanna-
tímann. Reyndar eru þær átta fram
í byrjun sumars þegar gert er hlé
á ferðum til Orlando en annars er
flogið til Boston, New York, Wash-
ington, Denver, Seattle, Minneapol-
is og Anchorage í Alaska.
Þýsk flugfélög hafa lengi verið
með Ísland á sinni dagskrá og með
komu þeirra á vorin þá fjölgar val-
kostunum sem flugfarþegar hér á
landi hafa í Þýskalandi. Næsta sum-
ar verður flogið beint til Berlínar,
Hamborgar, München, Stuttgart,
Kölnar, Düsseldorf og Frankfurt.
Sá kanadíski hefur lækkað
töluvert
Nú er sá tími sem margir bóka
utanlandsferðir sumarsins og það
er ánægjulegt að gengi krónunnar
er hagstæðara í dag en á sama
tíma í fyrra. Núna borgar íslenskur
kreditkortahafi um tíu prósent
minna fyrir hótelreikninginn í
Bretlandi, Bandaríkjunum og
Evrulöndunum. Sama gildir þá um
bílaleigubíla ef við gerum ráð fyrir
að verðlagið í þessum löndum hafi
haldist stöðugt. Ánægjulegust er
hins vegar þróun mála í Kanada og
Noregi því það lætur nærri að gjald-
miðlar þessara landa hafa lækkað
um fimmtung í samanburði við
íslensku krónuna frá því í janúar
í fyrra. Það munar um minna en
eins og við vitum þá flöktir gengið
töluvert og því erfitt að hitta á besta
tímann.
Lest í kjallaranum
Lestir geta verið mjög þægilegur
ferðamáti en því miður er ekki
einfalt að finna út úr því hvert lest-
irnar fara og hvað sætið kostar. Á
heimasíðu Raileurope.com er hins
vegar að finna gagnlega leitarvél
sem gerir fólki kleift að sjá hvert er
farið frá hverri lestarstöð fyrir sig
miðað við ákveðinn ferðatíma. Þar
sést til dæmis að frá lestarstöðinni
á Genfarflugvelli, en Icelandair
hefur flug þangað í sumar, er hægt
að komast tvisvar sinnum á klukku-
tíma í allar áttir innanlands og
einnig eru nokkrar ferðir á dag til
nágrannalandanna. Á fleiri flug-
völlum í Evrópu eru lestarstöðvar
í kjallaranum og þannig hægt að
komast hjá mannþrönginni sem
oft einkennir aðallestarstöðvar
stórborganna.
Sterkari króna auð-
veldar utanlandsferðir
Jákvæð tíðindi af íslensku krónunni, heimasíða sem auðveldar skipulagningu lestarferðalaga og
mikið framboð á beinu flugi til Bandaríkjanna og Þýskalands.
Kristján Sigurjónsson gefur út ferða-
vefinn Túristi.is.
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Hamborg
er ein
þeirra
sjö borga
í Þýska-
landi
sem
flogið
er til frá
Keflavík
á sumrin.
Það er oftast þægilegt að sitja í lest en það getur verið vesen að finna réttu ferðirnar.
Solaray Ísland
www.heilsa.is
Solaray bætiefnin fást eingöngu í
Apótekum og Heilsuvöruverslunum.
Solaray bætiefnin sem næringarþerapistar
mæla með.
Solaray super omega 3-7-9 tusýrur með D-3 vítamíni, er ein af vinsælli
vörunum frá Solaray. Þessi blanda hefur alveg ótrúlega góð áhrif á
liðamót, slímhúð og á húðina almennt.
Hver belgur inniheldur laxalýsi (omega 3) Hafþyrnisolíu (omega 7) og
jómfrúarólífu olíu (omega 9).
Omega 3 tusýran hefur margskonar verkun á líkamann og stuðlar m.a.
að jafnvægi í framleiðslu á kólesteróli og dregur úr bólgu í liðum.
Omega 7 er talin byggja upp slímhimnuna, hún hægir á öldrum
húðarinnar, gerir hana mjúka og teygjanlega svo hrukkurnar sjást síður,
svo er í blöndunni omega 9 jómfrúar ólívuolía en hún geymir hátt hlutfall
ómettaðra tusýra sem teljast góðar
fyrir hjarta og æðakerð, ekki má
gleyma D-3 vítamíninu en það er
lífsnauðsynlegt fyrir okkur sem
búum á Íslandi sérstaklega eir
sólarlítið sumar og harðan vetur, þá
borgar sig að byggja upp forðann.
Fólk hefur talað um hvað þessi
blanda ha góð áhrif á slímhimnu
augnanna, liðina og að sjónin verði
betri.
Svo niðurstaðan er Super Omega
3-7-9 holl fyrir kroppinn jafnt að
utan sem innan.
Omega 3-7-9 tusýrur
hollar fyrir líkamann að utan sem innan