Fréttatíminn - 24.01.2014, Síða 68
Barnamenningarhátíð verður haldin í
órða sinn í Reykjavík dagana 29. apríl til
4. maí 2014. Markmið hátíðarinnar er að efla menningarstarf barna og
ungmenna í borginni. Viðburðirnir eru skapaðir og framkvæmdir af börnum og
öðru hugmyndaríku fólki og er hátíðin kærkominn vevangur fyrir menningu
barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn.
Frestur til að sækja um kostnaðarþátöku vegna viðburða á hátíðinni er til og með
21. febrúar. Frestur til að skrá viðburð á Barnamenningarhátíð er til og með 1. apríl.
Só er um á vef hátíðarinnar www.barnamenningarhatid.is. Nánari upplýsingar
í síma 590-1500.
Barnamenningarhátíð er skipulögð af Höfuðborgarstofu sem heldur utan um almenna
skipulagningu og samhæfingu viðburða, stendur að útgáfu dagskrár og kynningu á hátíðinni.
Vilt þú taka þá í
Barnamenningarhátíð
í Reykjavík 2014?
29. apríl–4. maí
Barnamenningarhátíð
í Reykjavík 2014
Helga Gabríela
fékk sér nýlega
iPhone 5S og
er mjög hrifin
af mynda-
vélinni á
símanum.
Ljósmynd/Hari
Í takt við tÍmann Helga gabrÍela Sigurðardóttir
Ekkert jafnast á við að vera
úti í náttúrunni á Íslandi
Helga Gabríela
Sigurðardóttir
er 22 ára
Kópavogsbúi
sem rekur
veitingastað-
inn Local í
Borgartúni.
Hún heldur úti
skemmtilegri
bloggsíðu
þar sem hún
fær útrás
fyrir ástríðu
sína fyrir
mat. Helga
Gabríela er
ekki hrifin af
því að ganga
í notuðum
fötum.
Staðalbúnaður
Ég vakna eldsnemma á morgnana þar sem ég
mæti klukkan sjö á veitingastaðinn Local til að
undirbúa daginn. Ég eyði meirihluta dagsins í
vinnunni þannig ég er oftast í þægilegum fatnaði
eins og gallabuxum, bol og strigaskóm. Mér finnst
því miður ekkert úrval af smart fatnaði fyrir minn
aldurshóp hér heima. Flestar verslanir selja not-
aðan fatnað sem ég hef ekki fílað að ganga í dags-
daglega. Ég hef þó keypt nokkra fallega „vintage“
hluti í París sem er gaman að fara í spari. Dags-
daglega klæði ég mig frekar „casual“ en þegar ég
fer út þá finnst mér gaman að breyta til og dressa
mig upp. Ég er lítið fyrir að vera með fylgihluti
hversdags en set frekar upp eitthvað látlaust og
fallegt við sparidressið og farða mig aðeins meira.
Hugbúnaður
Ég bjó í 101 á síðasta ári og gat gengið á milli staða
en nú er ég flutt í Kópavoginn þannig ég ákvað að
fá mér bíl fyrir jól. Ég hreyfi mig nú þó nokkuð
þar sem ég fer í jóga og lyfti lóðum. Stundum
skrepp ég í sund á kvöldin og svo ætla ég að byrja
að hjóla þegar klakinn er farinn af götunum en ég
geri mikið af því á sumrin. Ég borða alltaf á Local
í hádeginu; ferskt salat, samloku, djús eða súpu.
Gerist ekki betra! Þegar ég fer á kaffihús verður
oft Nora Magasin fyrir valinu. Að kvöldi til eru
margir góðir staðir að velja úr í Reykjavík, einn af
mínum uppáhalds er tælenski staðurinn Ban Thai.
Ég er mikil félagsvera og finnst alltaf gaman að
kynnast nýju fólki. Ég fer þó sjaldan út á „djamm-
ið“ eins og sagt er en finnst mjög gaman að fara í
heimsókn til vina og/eða út að borða, það er þegar
eitthvað skemmtilegt stendur til.
Vélbúnaður
Ég nota MacBook Pro. Ég er oftast með tölvuna
með mér því ég vil geta unnið í blogginu mínu,
helga-gabriela.com. Svo nota ég iPhone símann
minn mikið. Ég var að uppfæra í iPhone 5S þar
sem ég nota myndavélina mikið. Það er svo hent-
ugt að geta notað símann í stað þess að vera með
ljósmyndavél líka.
Aukabúnaður
Ég hef ástríðu fyrir því að útbúa mat og öllu sem
það tengist. Mér finnst mjög gaman að elda, baka
og útbúa eitthvað framandi. Einnig get ég alveg
gleymt mér yfir kokkabókum og uppskriftasíðum
á netinu. Mér finnst ægilega gott að hafa það nota-
legt heima en einnig skemmtilegt að ferðast og
kynnast nýjungum. Á sumrin fer ég oft á Þingvöll
en þar er fjölskyldan með notalegan sumarbústað
á besta stað því útsýnið er stórfenglegt. Það jafn-
ast ekkert á að vera úti í íslenskri náttúru og þá
sérstaklega á sumrin í góðu veðri. Einnig finnst
mér gaman ferðast út fyrir Reykjavík yfir sumar-
tímann og kíkja í göngur og heitar náttúrulaugar.
Uppáhalds staðurinn minn er Hrunalaug sem rétt
utan við Flúðir, það er algjör ævintýrastaður. Ég
hef mjög gaman af kvikmyndum og spái mikið í
tónlist og hef verið að DJ’ast í nokkur ár. Hver veit
nema ég búi til mína eigin tónlist einn daginn.
appafengur
Literary Reykjavík
Literary Reykja-
vík-appið býður
notendum upp á
einskonar rafræna
bókmenntagöngu.
Flestar göngurnar
eru á ensku en þó
nokkrar á íslensku
og örfáar á þýsku.
Appið er unnið á
vegum Reykjavíkur
bókmenntaborgar
og Borgarbóka-
safnsins í sam-
starfi við RÚV.
Það er vitanlega
mikill fjársjóður
fyrir ferðamenn en
einnig skemmtilegt
krydd í tilveruna
fyrir heimafólk.
Þeir sem skilja
ensku geta til að
mynda kynnst verk-
um Halldórs Lax-
ness, Sjón og Yrsu
Sigurðardóttur á
þennan nýstárlega
hátt, eða jafnvel farið í sérstaka
göngu um söguslóðir hinsegin
bókmennta. Íslenskar glæpa-
sögur hafa notið mikilla vinsælda
og eru sérstakar glæpasagna-
göngur í boði bæði á íslensku
og ensku. Sögulegur fróðleikur
um kennileiti í borginni fylgja
með leiðsögnunum og ljóst er að
þarna stendur bókmenntaunn-
endum skemmtileg og fræðandi
afþreying í boði. Þú þarft aðeins
að mæta á upphafsstað hverrar
göngu, setja á þig heyrnartólin og
láta leiða þig áfram.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
68 dægurmál Helgin 24.-26. janúar 2014