Fjárfesting 1945-1989 - 01.06.1991, Blaðsíða 28
eru fengnar frá skipasmíðastöðvum. Endurbætur skipa eru taldar til fjárfest-
ingar. Sala skipa úr landi er dregin frá fjárfestingu viðkomandi árs og er þá
miðað við útflutningsverð í verslunarskýrslum.
b) Flugvélar.
Innfluttar flugvélar eru taldar samkvæmt verslunarskýrslum. Endurbæt-
ur flugvéla eru taldar til fjárfestingar. Sala flugvéla úr landi er dregin frá
fjárfestingu viðkomandi árs. Miðað er við útflutningsverð í verslunarskýrsl-
um.
c) Bifreiðar til atvinnurekstrar.
Innfluttar bifreiðar eru taldar samkvæmt verslunarskýrslum. Við cif-
verðið er bætt opinberum gjöldum, kostnaði við innflutninginn og álagningu
innflytjandans. Til atvinnubifreiða teljast: vöru-, almennings-, sendiferða-,
stationbifreiðar og bifreiðar til sérstakra nota, tengivagnar og aðrar atvinnu-
bifreiðar. Pað af þessum tegundum, sem er til einkaafnota er látið mæta
leigubifreiðunum, sem teljast með fólksbifreiðum og lenda því inni í einka-
neyslu. Árið 1986 og síðar eru stationbifreiðar ekki taldar sérstaklega í
verslunarskýrslum, heldur með fólksbifreiðum. Vegna þessara breytinga
hefur verið gripið til þess ráðs að telja 4% nýrra fólksbifreiða til atvinnubif-
reiða og er þessu hlutfalli ætlað að mæta leigubifreiðum og stationbifreiðum
til atvinnurekstrar. Innlendar yfirbyggingar bifreiða eru áætlaðar eftir
ákveðnum reglum.
4.7 Verslunar-, skrifstofu-, gistihús o.fl.
Þessar byggingar eru taldar eftir skýrslum um byggingarframkvæmdir.
Pegar upplýsingar um byggingarkostnað liggja fyrir eru þau verð notuð. Auk
húsrýmis fyrir eiginlega verslun og veitinga- og gistihús, fela þessar fram-
kvæmdir í sér allt skrifstofuhúsnæði annað en í opinberum byggingum.
Skrifstofubyggingar sjálfstæðra fyrirtækja í eigu ríkis og sveitarfélaga eru
einnig taldar í þessari grein, t.d. bankabyggingar og skrifstofuhúsnæði
raforkufyrirtækja.
í Reykjavík er rúmmetraverð þessara bygginga talið 10% hærra en
rúmmetraverð vísitöluhússins. Utan Reykjavíkur er verð bygginga í þessari
grein talið 10% ódýrara en í Reykjavík.
Ódýrt húsnæði í þessari grein, aðallega vörugeymslur, eru verðlagðar með
sama hætti og iðnaðarhúsnæði. Rúmmetraverðið í Reykjavík er 45% af
rúmmetraverði vísitöluhússins. Utan Reykjavíkur er rúmmetraverðið talið
10% ódýrara.
4.8 íbúðarhús.
íbúðabyggingar eru taldar samkvæmt byggingarskýrslum. Vísitöluhúsið
sem nú er miðað við er fjölbýlishús í Reykjavík, endastigahús með 10
íbúðum. Rúmmetraverð vísitöluhússins er notað á fjölbýlishús í Reykjavík,