Fjárfesting 1945-1989 - 01.06.1991, Blaðsíða 37
Hlutfallsleg skipting fjárfestingar
1945- 1989
5.4 íbúðarhús.
Hlutfall íbúðarhúsa af heildarfjarfestingu varð hæst á árunum 1945, 1955
og 1956, um 40%, en lægst á árinu 1971, 1614%, og á árunum 1986 og 1987,
um 19%. Meðalhlutfallið 1945-1989 var 26,2%. Fjárfesting í íbúðarhúsum
var mest á árunum 1980, 1982 og 1984. Eins og fram kemur í kafla 3.2 um
verðlagningu bygginga, var matið á íbúðarhúsum hækkað 1980 og aftur á
árunum 1985-1988 vegna gæðabreytinga.
í töflu 7.1 er yfirlit yfir byggingu íbúðarhúsa 1954-1989. Lokið var við
flestar íbúðir á árunum 1973-1980, yfir 2.000 íbúðir á ári. Á árunum 1973 og
1974 voru fullgerðar íbúðir í Viðlagasjóðshúsum 496,413 árið 1973 og 83 árið
1974. íbúðir í byggingu voru flestar í árslok 1976, um 5.400 íbúðir, en þeim
hefur farið fækkandi síðan.
í töflu 7.2 er yfirlit yfir íbúðabyggingar 1945-1989. Rúmmál fullgerðra
íbúða er mest 1977, um ein milljón m’. Hlutfall framkvæmda við íbúðarhús af
landsframleiðslu er hæst á árunum 1955-1957, 9-10%, en lægst árin
1986-1987, 3,6-3,7%. Meðalstærð fullgerðra íbúða hefur vaxið með árun-
um. Meðalstærðin var 322 m’ 1945, 373 m’ 1960, 425 m’ 1970, 411 m’ 1980 og
443 m31989.