Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Síða 5
ÓLAFUR ÓLAFSSON,
landlæknir:
UMFERÐARSLYS
Á ÍSLANDI
Um helmingur umferðarslysa verður
meðal barna og unglinga
Inngangur
„Lítið dregur úr umferðarslysum og hörmulegum
afleiðingum þeirra á íslandi. í nágrannalöndunum
hefur með margvíslegum aðgerðum tekizt að draga
mjög úr afleiðingum umferðarslysa. T.d. með
skyldunotkun bílbelta og viðurlögum, ef þau eru
ekki notuð, stórbættri ökukennslu, fræðslu í skólum,
betra skipulagi á gatnakerfi o.íl. í Finnlandi var
hlutdeild slysa af heildarinnlögnum á sjúkrahús um
24% fyrir 10 árum, en er nú um 10%. Svipaða sögu
er að segja frá öðrum Norðurlöndum. Dánartíðni
hefur yfirleitt stórlækkað.“
(Upplýsingar úr heilbrigðis-
skýrslum Norðurlanda.)
Slysadauði er nú þriðja til fjórða algengasta dán-
arorsök á íslandi líkt og á Vesturlöndum. Hér á
eftir verður gcrð nánari grein fyrir almennri tíðni
umferðarslysa á árunum 1973 til 1980.
Aðferð
Stuðzt er við skýrslur Umferðarráðs og Norrænu
tölfræðihandbókarinnar 1,21 yfir umferðarslys, sem
byggðar eru á upplýsingum frá lögregluyfirvöldum.
Vegna breytinga á skráningu meiðsla í umferð á
árinu 1975 eru aðeins birtar tölur um meiðsl frá
árinu 1976, en upplýsingar um dauða frá árinu
1973. Tekið skal fram, að skráningu slasaðra í
umferð er mjög ábótavant. Samkvæmt könnun
landlæknisembættisins (Eiríka A. Friðriksdóttir)
kom í ljós, að á vikutíma skráði lögreglan í Reykja-
vík aðeins um 30% allra slysatilfella af Reykjavíkur-
svæðinu, sem komu á slysadeild Borgarspítalans31.
Elías Davíðsson 4) telur, að vanskráning vægra
meiðsla vegna umferðar sé svipuð og að framan er
getið. Erlendar rannsóknir hafa leitt í ljós svipaðar
niðurstöður.5-6,7) Ymsar skýringar eru á því, að van-
skráning lögreglu er sú, sem raun ber vitni s.s.:
1. Of't á tíðum er ekki leitað til lögreglu, þegar
um vægari meiðsl er að ræða.
2. Við mjög alvarleg slys er oft ekki beðið eftir
lögreglu heldur er þeim slasaða ckið í sjúkra-
hús hið bráðasta.8’
M.a. fyrir tilstilli embættisins var komið á þeirri
reglu, að lögreglan fær nú yfirlit um fjölda slysa, er
koma á slysadeild Borgarspítala reglulega (án per-
sónuupplýsinga).
A það skal bent, að sjúkrahús fá ekki alltaf upp-
lýsingar um dánartilfelli, er verða vegna umfcrðar-
slysa.
Mynd 1 sýnir aldursskiptingu þeirra, er létust
eða slösuðust í umferð á árunum 1976/77—1978/
80.9)
SVEITARSTJÓRNARMÁL