Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Síða 28
BJÖRN FRIÐFINNSSON, formaður
Sambands íslenzkra sveitarfélaga:
ERFIÐIR TÍMAR
FRAMUNDAN
Ávarp við setningu ráðstefnunnar
Inngangur
Eg býð ykkur vclkomin á þessa fjármála-
ráðstefnu, sem orðin er árviss viðburður í starfsemi
Sambands ísl. sveitarfélaga.
Þátttaka í ráðstefnunni er væntanlega nokkur
vitnisburður um nytsemi hcnnar, en þátttakendur
hafa aldrei verið flciri en nú. Niðurstöður þessara
fjármálaráðstefna hafa verið hluti forsendna f'yrir
fjárhagsáætlun flestra sveitarfélaga síðustu árin, og
því hefur verið reynt að vanda sem mest til vals á
fyrirlesurum og til framlagningar þeirra tölulegu
upplýsinga, sem hér liggja fyrir.
íslenzka þjóðin stendur nú á nokkrum vega-
mótum í sögu sinni. Mikið þenslu- og uppbygging-
arskeið er að baki, en framundan virðist tímabil
með hægari hagvexti og jafnvel samdrætti á ýmsum
sviðum. Vonandi verður það tímabil ekki langt, en
við verðum að líta raunhæfum augum á ástand
mála og þau vandamál, sem því eru samfara. Fjár-
hags- og stjórnmálaleg vandamál fylgja jafnan að-
lögun að breyttum aðstæðum í lífi þjóðar, og þau
koma fram í lífi einstaklinga og fjölskyldna til sjávar
og sveita. A komandi ári er t.d. veruleg hætta á
samdrætti í atvinnu og atvinnuleysi. Þótt það bitni
fyrst og fremst á einstaklingum, þá skapar það
sveitarfélögunum einnig aukinn vanda, sem þau
þurfa að glíma við.
Sveitarstjórnarmenn og starfsmenn sveitarfélag-
anna standa jafnan í fremstu víglínu í baráttunni
við ýmis vandamál samfélagsins. Það er því afar
mikilvægt, að sveitarfélögin og sjóðir þeirra séu
fjárhagslega í stakk búin til þess að taka á sig
herkostnaðinn af baráttunni.
Þau erindi, sem hér verða flutt, geta hjálpað
mönnum til þess að búa sig undir erfiðleika næsta
árs.
Fjárhagsstaða sveitarfélaganna
Efnahagsóvissa í þjóðfélaginu er nú meiri en áður
og var þó ærin fyrir. Verðbólgan er 58— 103% eftir
því hvaða mælikvarða menn velja sér, og hefur hún
aldrei í 1100 ára sögu þjóðarinnar verið meiri.
Verulegur samdráttur í neyzlu og fjármunamyndun
er fyrirsjáanlegur á næsta ári.
Fjárhagsstaða sveitarfélaganna mótast af þessu
umhverfi. Innheimta sveitarsjóðsgjalda hefur víðast
versnað það, sem af er árinu, og verður að gera ráð
fyrir versnandi innheimtuhlutfalli á næsta ári.
Kaupmáttur tekna sveitarfélaganna hefur jafn-
framt minnkað mcira en ætlað var fyrir ári, og því
munu mörg sveitarfélög standa illa fjárhagslega við
lok þessa árs, og talsverðar lausaskuldir hafa mynd-
azt hjá sveitarsjóðum. Verður að taka greiðslu
þeirra með í dæmið við gerð fjárhagsáætlunar næsta
árs. Mörg sveitarfélög hafa nýtt sér lánsfé í ríkum
SVEITARSTJÓRNARMÁL