Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Blaðsíða 43
GUÐMUNDUR B. ÓLAFSSON, framkvæmdastjóri
Lánadeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins:
ÞÁTTUR BYGGÐASJÓÐS
í FJÁRMÖGNUN
GATNAGERÐAR í ÞÉTTBÝLI
Samkvæmt dagskrá þessarar ráðstefnu er mér
ætlað að segja eitthvað um lánsfjármál gatnagerðar
í þéttbýli og þá sér í lagi aðild Framkvæmdastofn-
unar og Byggðasjóðs að þeim málum. Víst er um
það, að mál þessi hafa verið mjög ofarlega á baugi í
Framkvæmdastofnun á undanfornum árum og mik-
ið að þessu verkefni unnið. Þetta hefir einkum gerzt
í áætlanadeild Framkvæmdastofnunar samkvæmt
eðli málsins, þar sem um er að ræða áætl-
unarverkefni, sem ætlað var að ná yfir tímabil
margra ára og vinnast með skipulegum hætti fram-
kvæmda og fjármögnunar.
Þótt áætlanir þessar væru sérlega verkefni áætl-
anadeildar, hefir lánadeild vissulega átt hlut að
máli, þar sem um er að ræða undirbúning mála,
þannig að ákveða megi árlegar lánveitingar úr
Byggðasjóði til þessara þarfa.
Af þeim skýrslum, sem Framkvæmdastofnun hef-
ir látið frá sér fara um þctta cfni, vil ég sérstaklega
nefna ritið „Áœtlanir sveitarfélaga um gatnagerð íþéttbýli
ogj]ármógnunarhugmyndir“, sem kom út íjanúar 1975,
og ritið „Gatnagerð íþéttbýli, átetlanir sveitarfélaga árin
1977—1980“, er út kom í nóvember 1977.
Aðild Framkvæmdastofnunar
að gatnagerð í þéttbýli
Hið fyrra þessara rita markar raunar upphaf
aðildar Framkvæmdastofnunar að málefnum gatna-
gerðar í þéttbýli, en í því er að sjálfsögðu stuðzt við
athuganir, sem gerðar höfðu verið á vcgum samtaka
sveitarfélaganna á árunum 1973 og 1974.
Framkvæmdastofnuninni, jafnt sem sveitarfélög-
um og samtökum þeirra, var á þessum árum að
sjálfsögðu ljóst, að hér var um að ræða afar þýðing-
armikið og brýnt verkefni. Verkefni, sem snerti
daglegt líf fólksins í ríkum mæli og væri mikilvægt
framfaramál, er stuðlaði að bættu umhverfi og
auknu hreinlæti og hollustu og væri til þess fallið að
treysta búsetu hinna einstöku þéttbýlisstaða.
Af þessum sökum var ákveðið að vinna að skýrslu
um málið, og kom hún út, eins og ég ncfndi, í janúar
árið 1975. Jafnframt því að hafa almennt upp-
lýsingagildi um ástand mála og fyrirætlanir sveitar-
íélaganna var skýrslunni ætlað að auðvelda Fram-
kvæmdastofnun ákvarðanatöku um fjárhagslega
liðveizlu við framkvæmd mála.
Þegar rakið er upphaf aðstoðar Framkvæmda-
stofnunar við gatnagerð í þéttbýli, er jafnframt rétt
að geta nokkurra annarra atriða, sem mjög
stuðluðu að framgangi þessara mála auk þess mikla
átaks og þcirra byrða, sem sveitarfélögin sjálf'tóku á
sig í mynd aukinna fjárframlaga af eigin fé til
þessara framkvæmda. Þar má nefna, að á árinu
1974 voru samin ný lög um gatnagcrðargjöld, sem
heimiluðu álagningu svonefnds B-gjalds vcgna þátt-
töku lóðarhafa í lagningu bundins slitlags á götur
og gangstéttarlagningu. Þctta auðveldaði sveitarfé-
lögunum að sjálfsögðu mjög fjármögnun bundins
slitlags á götur.
105
SVEITARSTJÓRNARMÁL