Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Side 8
Er þetta ekki alltof algeng sjón í þéttbýlinu?
löndum fá unglingar ekki leyfi til þess að aka
mótorhjólum, nema þeir hafi fengið „öku-
skírteini“ frá skólanum. Stofna ætti slysancfnd í
hverjum bckk, er kanna skal nánar öll slys, er
bekkjarfélagar verða fyrir. í framhaldsskólum
ber að taka upp kennslu í bifreiðaakstri. Lík-
lega er tími til kominn að efla mjög starf
námsstjóra í umferðarfræðum og fyrir-
byggjandi slysafræði við grunn- og fram-
haldsskóla. Efla þarfkennslu meðal heilbrigðis-
stétta á orsökum slysa. Síðastliðin þrjú ár hafa
læknanemar á 6. ári fengið nokkra tilsögn um
þetta efni í sambandi við félagslæknisfræði-
kennslu.
3. Endurskoða þarf reglur, er gilda um öku-
réttindi. Vitað er, að hingað koma unglingar frá
nágrannalöndum til þess að fá ökuréttindi, þar
cð kröfur eru minni hér en þar. Nauðsynlegt er,
að Umfcrðarráð og ökukennarar taki höndum
saman og geri róttækar tillögur til úrbóta hið
bráðasta.
4. Umferðarráð verður að cfla og gera starfsemi
þcss fjölbreyttari. Nú starfa t.d. engir fulltrúar
lækna eða annarra heilbrigðisstétta í ráðinu.
Sú ráðstöfun cr með öllu óskiljanleg, þegar þess
er gætt, að fáir kynnast betur aíleiðingum um-
ferðarslysa en heilbrigðisstéttir. Það skal að vísu
viðurkennt, að læknar hafa verið heldur afskipta-
litlir í umræðum um umferðarslysavarnir.
5. Skipulagsmál gatna og bygginga þurfa að vera í
stöðugri endurskoðun. Sú regla að byggja og
reka skóla og dagheimili við fjölfarnar götur
getur ekki talizt heppileg m.t.t. slysavarna.
Greinilegt er, að mun verr er búið að gangandi
fólki og hjólreiðamönnum í umferð hér en í
nágrannalöndum.
6. Tryggingafélög mega ekki sofa á verðinum.
Annars staðar á Norðurlöndum hefur ljóslega
komið fram, að slysagreiðslur tryggingafélaga
hafa lækkað verulega, eftir að öryggisbeltanotk-
un jókst þar. Það er því skylda þessara félaga
gagnvart viðskiptavinum sínum að berjast af
alcfli fyrir bættum öryggisráðstöfunum, þ.á m.
öryggisbeltanotkun.
HEIMILDIR
1. Skýrslur Umferðarráðs 1975—1980.
2. Norræna tölfræðihandbókin 1973—1980. Nordiska
Ministerrád Stockholm.
3. Umferðarslys og öryggisbelti — Fylgirit landlæknis-
embættisins 1980.
4. Bréf Elíasar Davíðssonar til Læknafélags íslands
1978.
5. Thorson, J. and SandeJ. Hospital Statistics on Road
Traffic Accidents Proceedings of the 3rd Triennial
Congress I AATM 1969. p. 20. University of Michig-
an 1981.
6. Hobbs C.A. et al Classification of Injury Severily by
Length of Stay in Hospital. Report 871 in
Crowthorne, U.R. Transport and Road Research
Institute 1981.
7. Nordentoft E.L. Road Traffic Accident Statistics
System in Denmark. Working Paper Presented to a
WHO ad hoc Technical Group. Euro Reports and
Studies 19 WHO Copenhagen 1979.
8. Upplýsingar frá Umferðarráði 1982.
9. Transport Arbeid i Norden 1960—1980 — Nordisk
Komitté for Transport Ökonomisk Forskning. Publ.
nr. 31 april 1980.
10. Rune Andreasson. Nordisk Traffik Medicinsk
Konferance Linköbing juni 1982.
11. Bílbelti — Fylgirit landlæknisembættisins 1981.
12. Peter O’Neill Health Crisis 2000 WHO Euro-Office
Copenhagen 1982.
SVEITARSTJÓRNARMÁL