Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Síða 8

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Síða 8
Er þetta ekki alltof algeng sjón í þéttbýlinu? löndum fá unglingar ekki leyfi til þess að aka mótorhjólum, nema þeir hafi fengið „öku- skírteini“ frá skólanum. Stofna ætti slysancfnd í hverjum bckk, er kanna skal nánar öll slys, er bekkjarfélagar verða fyrir. í framhaldsskólum ber að taka upp kennslu í bifreiðaakstri. Lík- lega er tími til kominn að efla mjög starf námsstjóra í umferðarfræðum og fyrir- byggjandi slysafræði við grunn- og fram- haldsskóla. Efla þarfkennslu meðal heilbrigðis- stétta á orsökum slysa. Síðastliðin þrjú ár hafa læknanemar á 6. ári fengið nokkra tilsögn um þetta efni í sambandi við félagslæknisfræði- kennslu. 3. Endurskoða þarf reglur, er gilda um öku- réttindi. Vitað er, að hingað koma unglingar frá nágrannalöndum til þess að fá ökuréttindi, þar cð kröfur eru minni hér en þar. Nauðsynlegt er, að Umfcrðarráð og ökukennarar taki höndum saman og geri róttækar tillögur til úrbóta hið bráðasta. 4. Umferðarráð verður að cfla og gera starfsemi þcss fjölbreyttari. Nú starfa t.d. engir fulltrúar lækna eða annarra heilbrigðisstétta í ráðinu. Sú ráðstöfun cr með öllu óskiljanleg, þegar þess er gætt, að fáir kynnast betur aíleiðingum um- ferðarslysa en heilbrigðisstéttir. Það skal að vísu viðurkennt, að læknar hafa verið heldur afskipta- litlir í umræðum um umferðarslysavarnir. 5. Skipulagsmál gatna og bygginga þurfa að vera í stöðugri endurskoðun. Sú regla að byggja og reka skóla og dagheimili við fjölfarnar götur getur ekki talizt heppileg m.t.t. slysavarna. Greinilegt er, að mun verr er búið að gangandi fólki og hjólreiðamönnum í umferð hér en í nágrannalöndum. 6. Tryggingafélög mega ekki sofa á verðinum. Annars staðar á Norðurlöndum hefur ljóslega komið fram, að slysagreiðslur tryggingafélaga hafa lækkað verulega, eftir að öryggisbeltanotk- un jókst þar. Það er því skylda þessara félaga gagnvart viðskiptavinum sínum að berjast af alcfli fyrir bættum öryggisráðstöfunum, þ.á m. öryggisbeltanotkun. HEIMILDIR 1. Skýrslur Umferðarráðs 1975—1980. 2. Norræna tölfræðihandbókin 1973—1980. Nordiska Ministerrád Stockholm. 3. Umferðarslys og öryggisbelti — Fylgirit landlæknis- embættisins 1980. 4. Bréf Elíasar Davíðssonar til Læknafélags íslands 1978. 5. Thorson, J. and SandeJ. Hospital Statistics on Road Traffic Accidents Proceedings of the 3rd Triennial Congress I AATM 1969. p. 20. University of Michig- an 1981. 6. Hobbs C.A. et al Classification of Injury Severily by Length of Stay in Hospital. Report 871 in Crowthorne, U.R. Transport and Road Research Institute 1981. 7. Nordentoft E.L. Road Traffic Accident Statistics System in Denmark. Working Paper Presented to a WHO ad hoc Technical Group. Euro Reports and Studies 19 WHO Copenhagen 1979. 8. Upplýsingar frá Umferðarráði 1982. 9. Transport Arbeid i Norden 1960—1980 — Nordisk Komitté for Transport Ökonomisk Forskning. Publ. nr. 31 april 1980. 10. Rune Andreasson. Nordisk Traffik Medicinsk Konferance Linköbing juni 1982. 11. Bílbelti — Fylgirit landlæknisembættisins 1981. 12. Peter O’Neill Health Crisis 2000 WHO Euro-Office Copenhagen 1982. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.