Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Síða 52

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Síða 52
mismun þess, sem sveitarfélagið hef- ur innheimt í aðstöðugjald og þeirrar upphæðar, sem sveitarfélagið heíði fengið í aðstöðugjöld með því að nýta álagningarheimildir aðstöðugjalds að fullu skv. 38. gr. tekjustofnalaganna. Álögð sveitarsjóðsgjöld á árinu 1982 námu að meðaltali í sveitarfélögum landsins í heild kr. 8.487.31, í kaupstöðum að Reykja- víkurborg meðtalinni kr. 9.071.06, í hreppum með yfir 300 íbúa kr. 7.624.17 og í hreppum með færri en 300 íbúa kr. 4.933.70. Sveitarsjóðsgjöld á íbúa í hreppum í hverju kjördæmi um sig annars veg- ar í hreppum með færri en 300 íbúa og hins vegar í hreppum með fleiri en 300 íbúa voru eins og sýnt er á yfir- litinu hér fyrir neðan. Til aukaframlaga má verja allt að 6% af heildartekjum jöfnunarsjóðs, en úthlutun skv. framangreindum reglum var vel innan þeirra marka. Umsóknir um aukaframlög ber að senda félagsmálaráðuneytinu ár hvert fyrir 1. október, og henni skulu fylgja ársreikningar seinasta árs, fjár- hagsáætlun yfirstandandi árs og greinargerð um nýtingu tekjustofna og nauðsyn aukaframlags. Hreppar með undir 300 íbúa yfir 300 íbúa kr. á íbúa kr. á íbúa Reykjanes 7.883.91 7.395.69 Vesturland 4.937.80 8.484.80 Vestfirðir 4.806.33 8.514.74 N-Vesturland 4.192.79 7.134.14 N-Austurland 5.074.31 6.243.95 Austurland 4.827.96 8.238.69 Suðurland 5.345.72 7.136.17 Landsmeðaltal 4.933.70 7.624.17 83 SVEITARFÉLÖG HLUTU FÓLKSFÆKKUNARFRAMLÖG Sveitarfélög, þar sem íbúum fækk- ar, fá greitt úr Jöfnunarsjóði sveitar- félaga svokallað fólksfækkunarfram- lag. Það skal vera allt að meðal- útsvari á íbúa í landinu næstliðið ár margfaldað með íbúafækkunartölu hlutaðeigandi sveitarfélags. Á árinu 1982 hlutu 83 sveitarfélög slík fram- lög vegna 578 íbúa, sem fækkaði um samanlagt í þessum sveitarfélögum. Meðalútsvar á íbúa á árinu var kr. 5.780.— samkvæmt álagningarskrá félagsmálaráðuneytisins, og var sú tala hækkuð upp í 5800 við út- reikning framlagsins. Fólksfækkunar- framlögin námu þannig samanlagt á 114 árinu 1982 kr. 3.352.400,- Hér um að ræða framlag vegna fólksfækkunar, sem varð í sveitarfé- lögunum milli áranna 1981 og 1982. Þegar endanlegar íbúatölur Hagstofu íslands í einstökum sveitarfélögum hinn 1. desenrber 1982 liggja fyrir, geta sveitarfélögin, sem orðið hafa fyrir fólksfækkun frá 1. des. 1981 til 1. des. 1982, sótt til félagsmálaráðu- neytisins um fólksfækkunarframlag yfirstandandi árs. L/rn þau ber að sœkja, en misbrestur hefur verið á því, að það se' gert, að sögn Láru Hafliðadóttur, deildarstjóra í félagsmálaráðu- neytinu. Fólksfækkunarframlagið á síðan að greiða fyrir 15. nóvember ár hvert. SAMSTARFSNEFND UM MÁLEFNI ALDRAÐRA Stjórn sambandsins hefur tilnefnt Ingibjörgu Rafnar, borgarfulltrúa, aðalfulltrúa og Þórð Skúlason, sveit- arstjóra á Hvammstanga, varafull- trúa af hálfu sambandsins í sam- starfsnefnd um málefni aldraðra, sem heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið hefur skipað samkv. 3. gr. laga nr. 91/1982, um málefni aldraðra. Aðrir í nefndinni eru séra Sigurður H. Guðmundsson, sóknarprestur í Hafnarfirði, tilnefndur af Öldrunar- ráði íslands, og Almar Grímsson, ly^afræðingur, skipaður án tilnefn- ingar, og er hann formaður nefndar- innar. Varamaður hans í nefndinni og jafnframt varaformaður nefndar- innar er Adda Bára Sigfúsdóttir, borgarfulltrúi, en varamaður séra Sigurðar er Gunnhildur Sigurð- ardóttir, hjúkrunarforstjóri í Hafnar- firði. Nefndin er skipuð til fjögurra ára frá 1. janúar 1983. Verkefni hennar er skilgreint í 3. gr. laga um málefni aldraðra, sem samþykkt voru á Al- þingi fyrir seinustu jól og staðfest á gamlársdag á ári aldraðra. Þau eru m.a. að hafa frumkvæði að stefnu- mótun um málefni aldraðra, að ann- ast áætlanagerð um málefni aldraðra fyrir landið í heild, að vera tengiliður milli ráðuneyta, stofnana og sam- taka, sem starfa að málefni aldraðra og að vera ráðherra og ríkisstjórn til ráðuneytis um málefni aldraðra. Þá annast nefndin stjórn Framkvæmda- sjóðs aldraðra og gerir tillögur til ráðherra um úthlutanir úr sjóðnum. Loks er nefndinni ætlað að skera úr um ágreiningsmál, sem upp kunna að koma samkvæmt lögunum, og að gera tillögur um samræmdar reglur um mat í sambandi við vistun á dval- arstofnunum fyrir aldraða. Það er m.a. hlutverk Fram- kvæmdasjóðs aldraðra að veita sveit- arfélögum framlög til að kaupa eða byggja húsnæði fyrir aldraða, þ.e. sérhannaðar íbúðir fyrir aldraða og dvalarheimili aldraðra. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.