Sveitarstjórnarmál - 01.04.1983, Qupperneq 57
Til Helsinki og Turku (Ábo)
Eí'tir einstaklega vel heppnað vinabæjamót var
haldið til Helsinki og þar dvalizt í tvo daga og
borgin skoðuð undir leiðsögn finnsks íslandsvinar,
og fannst ílcstum mikið til borgarinnar koma. Kór-
inn söng í Musteriskirkjunni, steinkirkjunni frægu,
sem höggvin er í bergið á hæð einni í borginni.
Hcimsókn að minnismerki Sibeliusar og grafreit
fallinna hermanna höfðu mikil áhrif á okkur. Finnar
hafa orðið að færa miklar fórnir til að halda sjálf-
stæði sínu og er mikið í mun að heiðra minningu
þeirra, sem fallið hafa fyrir íöðurlandið. Um
sambúðina við nágrannana í austri vildu þcir lítið
ræða, en létu óspart í ljós ánægju sína með hinn
nýja forseta sinn, Mauno Koivisto, og væntu mikils
af honum.
Frá Helsinki var haldið til Turku og þar stigið
um borð í aðra glæsilega ferju og haldið til Svíþjóð-
ar. Þótti Ólafsíirðingum mikið til um þau kynni,
sem þeir höfðu haft afFinnum og Finnlandi þá átta
daga, sem þar var dvalizt.
Frá Stokkhólmi til Karlskrona
Að loknum hefðbundnum skoðunarferðum um
Stokkhólm var haldið inn í land til Katrineholm og
þar dvalizt í góðu yfirlæti 17. júní. Hópurinn fékk til
ráðstöfunar veitingahús í fögru umhverfi, þar sem
haldin var eins konar þjóðhátíð, sem um leið var
fimmtugsafmælisveizla með söng og dansi.
Daginn eftir var ekið suður eftir strönd Svíþjóðar
og m.a. ekið frá Kalmar út í Öfand, aðra af tveim
stórum eyjum við austurströndina eftir lengstu brú
Fvrópu, sem er um 6 km löng.
Síðan var haldið til vinabæjarins Karlskrona í
Suður-Svíþjóð til tveggja daga dvalar. Þar hittu
Ólafsfirðingar marga kunningja, sem verið höfðu í
Lovisa. Þar var sænsk-íslenzk messa, og sungið var
við þrjú önnur tækifæri, farið í skoðunarferðir og
ýmislegt gert mönnum til skemmtunar.
Karlskrona er afar fogur borg og minnir borgar-
stæðið nokkuð á Stokkhólm. Það var við Karls-
krona, sem rússneskur kafbátur strandaði í fyrra,
Kjarnorkuverið á Hástholmen við Lovisa. Á myndinni eru,
talið frá vinstri, Svavar B. Magnússon, Bengt Vilhelmsson
og Óskar Þór Sigurbjörnsson, bæjarfulltrúi.
enda hefur þar verið mikilvægasta flotahöfn Svía
um aldaraðir.
Heldur þótti ferðalöngum Kaupmannahöfn
óþrifaleg, er þangað kom á sunnudagssíðdegi og
mannlífið fjölbreytilegt, sérstaklega í samanburði
við þrifnað og hollustuhætti í Finnlandi, en þar
mátti varla reykja á almannafæri, hvað þá, að menn
leyfðu sér að henda frá sér rusli eða sýna af sér
annan slíkan ósóma. Kaupmannahöfn vann þó á
með hverjum deginum. Tívolí og fleiri góðir staðir
lokkuðu marga. Farin var hópfcrð, svona utan dag-
skrár, til vinabæjarins Hilleröd í boði danskra
kunningja, sem verið höfðu í Lovisa. Var það
ánægjuleg heimsókn í alla staði og móttökur frá-
bærar.
Það voru ánægðir ferðalangar á aldrinum fimrn
ára til sjötugs, sem komu heim til Ólafsfjarðar eftir
vel heppnaða vinabæjaferð.
Flestum er efst í huga þakklæti til hinna norrænu
vina og annarra, sem gerðu ferð þessa mögulega, og
ferðaskrifstofunnar Útsýnar, sem veitti alla fyrir-
greiðslu og þá alveg sérstaklega til Árna Stefáns-
sonar fil. mag., fararstjóra Útsýnar, sem reyndist
einstakur í sinni röð. 119
Ferðalok - Kaupmannahöfn - Hilleröd
SVEITARSTJÓRNARMÁL