Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Síða 15

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Síða 15
AFMÆLI Börnin voru drjúgir þátttakendur i hátíöarhöldunum. Hér bíöa ungir ökumenn eftir því aö vera ræstir af stað í kassabílaralli. Pálsdóttur, konu hans. Forsetinn opnaði sjóminjasafn í Pakkhúsinu við höfnina og skoðaði um leið sýningu á ljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar. Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur afhenti forsetanum við þetta tækifæri fyrsta eintakið af bók sinni, Sögu Hafnar, fyrra bindi. Auk bókar og geisladisks sem fyrr er getið var gefið út myndbandið „Það varð til bær“ eftir Eirik Guð- mundsson þar sem þróunarsaga Hafnar er rakin. Þá var fjöldi minjagripa sem minntu á afmælisárið framleiddur, þeirra á meðal sjóhattur eftir fomu sniði. Að þessu loknu skoðuðu forsetahjónin sýningar sem settar höfðu verið upp, listsýningar, safnarasýningu, handverkssýningu o.fl, en alls voru tíu sýningar opnar á Homafirði þessa helgi. Síðdegis á föstudag var svo hátíðarsamkoma á Hótel- túni þar sem fram fór söngur, hljóðfæraleikur og ávörp gesta. Auk forseta íslands fluttu ávörp Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra, Broddi Bjamason, formaður Sam- bands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, Britta Gísla- son, fulltrúi norrænna vinabæja, Halldór Asgrímsson ut- anríkisráðherra og Friðjón Guðröðarson, fyrmm sýslu- maður á Höfn. Afhentu sumir þessara gesta gjafir til Homfirðinga í tilefni afmælisins en auk þess barst bæn- um mikill fjöldi góðra gjafa og gripa frá ýmsum velunn- urum allt afmælisárið. Að þessari athöfn lokinni tóku viðstaddir þátt í skrúðgöngu með kamivalsniði frá Hót- eltúninu og niður á höfn þar sem dagskrá humarhátíðar fór fram. Um kvöldið sátu opinberir gestir hátíðarkvöldverðar- boð bæjarstjómar Homafjarðar í tilefni aldarafmælisins og til heiðurs forseta Islands. Undir borðhaldi vom for- setanum færðar gjafir til minningar um komuna til Homafjarðar og flutt vom tónlistar- og dansatriði. Með- al annars söng Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona nokkur lög. Við höfnina hafði verið komið upp veglegu útisviði Grétar Örvarsson, hljómiistarmaöur frá Hornafiröi, og Sigríöur Beinteinsdóttir söngvari stóöu fyrir söngvarakeppni fyrir yngstu kynslóöina. Hér spreytir söngvin ung stúlka, Sólveig Morávek, sig á lagi eftir fööur sinn. og þar var dagskrá frá morgi til kvölds og veitingastaðir opnir. Briddsmót og heimsmeistaramót í Homafjarð- armanna vom haldin í risatjaldi sem reist hafði verið á hafnarbakkanum, einnig fór fram kassabílarall og krafta- keppni. Boðið var upp á siglingar, gönguferðir og leik- tæki fyrir böm auk þess sem útimarkaður var opinn. Á kvöldin vom svo fjölskyldudansleikir og aðrar skemmt- anir á bryggjunni og víðar í bænum fram eftir nóttu. Á sunnudagsmorgni var hátíðarmessa í Hafnarkirkju þar sem sr. Guðjón Skarphéðinsson frá Bjarnanesi predikaði en sr. Sigurður Kr. Sigurðsson þjónaði fyrir altari. Og skemmtidagskrá hófst eftir hádegið á Hóteltúni með fjölbreyttri dagskrá þar sem þátttakendur vom með- al annars frá vinabæjum á Norðurlöndum, auk ungra og aldinna Austur-Skaftfellinga. Vinabæir Homafjarðar em: Kungalv í Svíþjóð, Rispr í Noregi, Samsp í Danmörku og Taivassalo í Finnlandi. Vom um 90 þátttakendur frá þessum bæjum á hátíðarhöldunum. Hátíðarslit vom svo á sunnudagskvöldinu, varðeldur og flugeldar að lokinni kvöldsiglingu út í Ós. Þá var lok- ið mikilli hátíðarhelgi og aðstandendur vom þakklátir al- mættinu fyrir ágætt veður allan tímann og óhappalaus hátíðarhöld. Áhrífa afmælisárs gætir lengi I hönd fór rólegri tíð hjá Hornfirðingum. Að vísu komu allmargir víkingar siglandi frá Noregi til Homa- fjarðar dagana á eftir afmælishátíðinni. Þeir vom á leið á 9

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.