Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 37
ÖRYGGISMÁL
YTRILF.1DIGARBUR,
FI.ÓÐÞ.18.JAN.1WS
FVERG.ARDUR
TNNRÍ LFJDIGARDUk'
F1.ÓDID ÞANN 2fi. OKTOHFR 1995
HÖNNUNARFLÓÐ, SKRIÐl.ENGl)
Snjóflóöavarnargaröarnir ofan byggöarinnar á Flateyri samkvæmt tillögum VST og NGI. Elnnlg eru dregnar upp útlínur snjóflóöanna
sem féllu á árinu 1995.
ir til að það sé stærsta snjóflóð sem fallið getur á Flat-
eyri. Eftir viðamikla rannsólcn á snjóflóðasögu Flateyrar
og greiningu á tíðni snjóflóða var ákveðið að miða vam-
ir við snjóflóð sem næði u.þ.b. 150 metrum lengra niður
á eyrina heldur en flóðið í október 1995, en okkar niður-
stöður bentu til þess að flóð af slíkri stærð geti fallið að
meðaltali einu sinni á hverjum 500-1000 árum2'. Til
samanburðar höfum við áætlað að flóð sambærilegt við
flóðið í október 1995 geti fallið að meðaltali einu sinni á
hverjum 100-200 árum.
StœrS og staðsetning leiðigarða
Eftir nákvæma athugun á ýmiss konar útfærslu leiði-
2) Útreikningar byggðir á nýjum upplýsingum um eldri flóð en áður voru
þekkt styrkja þessar niðurstöður ennfrekar og benda til þess að flóð afþess-
ari stœrð geti fallið að meðaltali einu sinni á um 1000 árum. Tómas Jóhann-
esson, Veðurstofu Islands, janúar 1998.
garða var komist að þeirri niðurstöðu sem sýnd er á
teikningunni hér að ofan, þ.e. tveimur leiðigörðum rétt
ofan byggðarinnar sem tengjast saman í toppinn. Efnið í
leiðigarðana er tekið úr skriðunni neðan giljanna tveggja,
sem jafnframt eru mótaðir þannig að snjóflóð renni
greiðlega meðfram þeim. Nauðsynleg hæð leiðigarðanna
er 15-20 m, þ.e. á við 5-7 hæða hús, en hraði hönnunar-
snjóflóðsins þegar það skellur á garðinum er áætlaður
150-200 km/klst. Lengd hvors garðs er um 600 m og ná
þeir frá sjávarmáli upp í u.þ.b. 100 m hæð yftr sjó. Við
útfærslu garðanna var leitast við að finna hagkvæmustu
lausn með tilliti til kostnaðar, þó þannig að hvergi sé
slakað á öryggiskröfum. Neðan leiðigarðanna verður
reistur 10 m hár þvergarður, en tilgangur hans er að veita
viðbótaröryggi með því að stöðva snjómassa sem hugs-
anlega kynni að fara yfir leiðigarðana í stærstu snjóflóð-
um. Heildarrúmmál fyllingar í garðana og ræsirásir undir
þá er um 700.000 m3, en til fróðleiks má geta þess að
3 1