Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 22

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 22
SKIPULAGSMÁL Virkjanirá miðhálendi Samkvæmt áætlunum Samkvæmt tillögu aö LV/OS svæöisskipulagi til 2015 Vatnsorka GWh/ár Jaröhitl GWh/ár Vatnsorka GWh/ár Jaröhltl GWh/ár Þegar virkjað eöa i byggingu 5.500 0 5.500 0 Eftir að virkja 17.500 5400 2000-2005 2006-2015 6.400 2.100 0 Samtals 23,000 5.400 Samtals 14.000 0 Vatnsafl og jarðhiti samtals alls 28.400 Vatnsafl og jaröhiti samtals alls 14.000 eöa um 60% af áaetlunum LV/OS 5. mynd. 579 m y. s. þó að í samkomulagi vegna friðlýsingar Þjórsárvera sé gert ráð fyrir 581 m y. s. „svo fremi að náttúruvemdargildi Þjórsárvera rými ekki óhóf- lega að mati Náttúruverndar ríkisins". Varðandi þann áskilnað nefndarinnar að skoðuð verði önnur útfærsla Fljótsdalsvirkjunar með Kárahnúkavirkjun verður að hafa hugfast að framkvæmdir em þegar hafnar við Fljótsdalsvirkjun. Staðfest skipulag mið- að við ákveðna og auglýsta tilhögun Fljótsdalsvirkj- unar er til staðar ásamt virkjunarleyfi ráðherra. Hlýt- ur nefndin því að verða að taka fullt tillit til þess í skipulagstillögu sinni. Þá mótmælir Landsvirkjun tillögu nefndarinnar um legu Búrfellslínu 4 (Búrfellsvirkjun - Svartárkot í Bárðardal) á kaflanum við Kvíslaveitu, en þar leggur nefndin til að línan liggi að mestu vestan veitunnar. Umhverfisráðherra staðfesti legu umræddrar línu austan Kvíslaveitu þann 22. mars 1994 á grundvelli skipulagslaga nr. 19/1964 og telur Landsvirkjun að nefndinni hafi verið skylt að taka tillit til gildandi skipulags í tillögugerð sinni. 3. Þegar litið er á tillögur nefndarinnar um þær virkjan- ir eða virkjunarkosti sem ekki er miðað við að verði nýttir á næstu 20 ámm kemur fyrst upp sú ákvörðun nefndarinnar að fella út úr tillögunni alla möguleika til nýtingar vatnsorku á Hraunum austan Jökulsár í Fljótsdal þar eð sú nýting krefjist miðlunar við Eyja- bakka. Nefndin virðist hér ganga á svig við gildandi lög um Fljótsdalsvirkjun en samkvæmt þeim er gert ráð fyrir miðlun á Eyjabökkum til þess m.a. að nýta vatn af Hraunasvæðinu til orkuvinnslu með svo- nefndri Sauðárveitu. 4. Landsvirkjun telur óeðlilegt að nefndin skuli flokka virkjunarkosti í fyrri og seinni hluta skipulagstím- ans. Nefndin hefur einfaldlega hvorki forsendur né heimild til að gera slíka skiptingu og er athyglisvert að slík skipting er hvergi til staðar í skipulagstillög- unni nema að því er varðar orkumálin. Eðlilegast væri að fella þetta ákvæði út og hafa aðeins eitt skipulagstímabil fyrir orkumál eins og aðra þætti skipulagsins til 20 ára. 5. Svo virðist sem nefndin gangi út frá því sjónarmiði að vemdarsjónarmið skuli ráða ef hún telur að slík sjónarmið og hagsmunir orkuvinnslu skarist. Nefnd- in virðist ekki hafa gert tilraun til að meta hina ýmsu kosti við nýtingu miðhálendisins hvem á móti öðr- um. Þá vantar í greinargerð nefndarinnar og fylgi- skjöl hennar þær forsendur sem nefndin og ráðgjafar hennar hafa lagt til gmndvallar við vinnu sína varð- andi orkumálin. Hvergi er getið stefnumarkmiða allra ríkisstjóma landsins sl. áratugi um nýtingu end- umýjanlegra orkulinda né heldur ákvæða Ríósáttmál- ans um áherslur á nýtingu þeirra. í þeim sáttmála er því m.a. beint til ríkisstjóma: - Að auka notkun nýrra og endumýjanlegra orku- gjafa sem valdi lítilli sem engri mengun, þar á meðal eru jarðvarmi og vatnsorka. - Að samræma orkuáætlanir svo að auka megi notk- un slíkra orkugjafa og draga að sama skapi úr notkun óæskilegra orkugjafa. Því hefur verið haldið fram af starfsmönnum nefnd- arinnar að skipulagstillagan verði endumýjuð eftir 5-6 ár og að þá verði unnt að koma að breytingum á áformum um orkunýtingu. Þetta er afar vafasamt. Þegar svæði er orðið „grænt“ á skipulagsuppdrætti sem þessum verður afar erfitt ef ekki ógjörlegt að vinda ofan af slíkri ákvörðun síðar meir. Þetta hefur og í för með sér að mun erfiðara verður en ella að stunda eðlilegar rannsóknir á þessum virkjunarsvæð- um, svo sem á Hvítár-, Markarfljóts- og Skaftár- svæðinu og á öllum háhitasvæðum innan hálendis- markanna. Landsvirkjun gerir því alvarlega athuga- semd við það að fyrirhuguð og hugsanleg virkjunar- svæði séu sýnd innan verndarsvæða og lituð með grænum lit á skipulagsuppdrættinum. Hér hefur verið stiklað á stóru um helstu athugasemdir Landsvirkjunar við fyrirliggjandi skipulagstillögu að miðhálendinu en í niðurlagi athugasemda stjómarinnar er ítrekað að í tillögunni sé ekki tekið nægilegt tillit til hagsmuna raforkuiðnaðarins og þar með alls almenn- ings. Bent er á að hagnýting orkulindanna, umhverfis- vemd og hagsmunir ferðaþjónustunnar geti átt samleið og bættar samgöngur vegna framkvæmda við virkjanir á hálendinu hafi aukið skilning manna á gildi þessa land- svæðis og um leið vakið menn til vitundar um mikilvægi náttúruverndar. Að lokum er ítrekað hversu mikilvæg nýting orkulinda þjóðarinnar er til þess að tryggja sam-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.