Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Page 20

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Page 20
SKIPULAGSMAL gæti boðist fram til ársins 2015 lítur dæmið þannig út að einungis yrði hægt að sinna um helmingi þeirrar þarfar með þeim virkjunum sem eru heimilaðar samkvæmt skipulagstillögunni eins og sýnt er á 6. mynd. Með þetta fyrir augunum virðist ljóst að það verður að teljast afar óeðlilegur framgangsmáti í svo mikilvægu máli fyrir þessa þjóð að skipulagstillagan sem hér er fjallað um yrði samþykkt án þess að farið yrði dýpra í forsendumar en gert hefur verið fram að þessu. 4. Athugasemdir viö tillögu samvinnu- nefndar um svæöisskipulag á miöhá- lendinu Þá er komið að því að gera grein fyrir nokkrum at- hugasemduin urn skipulagstillöguna sem samþykktar voru í stjóm Landsvirkjunar í júlí sl. og sendar hafa ver- ið bréflega til samvinnunefndarinnar. 1 bréfi þessu er gerð mjög ítarleg grein fyrir sjónarmiðum Landsvirkjun- ar sem of langt mál yrði að rekja hér en í því sem á eftir fer mun ég reyna að stikla á stóru um efni þess. I inngangi segir svo: Landsvirkjun fagnar því að unnið skuli að gerð skipu- lags um miðhálendið. Mikil vinna hefur verið lögð í gagnasöfnun af hálfu nefndarinnar og í greinargerðum hennar koma fram rniklar upplýsingar um miðhálendið á einunt og sama stað sem koma munu mörgum að gagni í framtíðinni. Þá hefur nefndin haft samráð við ýmsa hagsmunaað- ila, þar á nteðal Landsvirkjun, án þess þó að hafa tekið nægilegt tillit til ábendinga fyrirtækisins. Þá hefur ekki verið tekið fullt tillit til hlutverks Landsvirkjunar lögum samkvæmt að því er varðar ábyrgð fyrirtækisins á að hafa á öllum tímum tiltæka nægilega raforku til al- mennra þarfa og iðnaðar samkvæmt mati sínu á orku- þörf í framtíðinni og hlutaðeigandi áætlunum um orku- öflun. Að áliti Landsvirkjunar er aðferðafræði nefndar- innar við gerð skipulagstillögu sinnar því að þessu leyti áfátt og í bága við þau meginsjónarmið sem Landsvirkj- un telur að leggja eigi til grundvallar í þessu efni. Aður en fjallað verður nánar um athugasemdir Lands- virkjunar verður fyrst hér á eftir gerð í stórum dráttum grein fyrir fyrmefndum sjónarmiðum sem Landsvirkjun telur að eðlilegt hefði verið fyrir nefndina að styðjast við í gerð tillögu sinnar að svæðisskipulagi miðhálendis Is- lands. /. Það er ólit Landsvirkjunar að svœðisskipulag mið- hálendisins eigi eðli málsins samkvæmt að endur- spegla ákvarðanir löggjafans og stefnumið stjórn- valda í orkumálum. Landsvirkjun telur með þessu að samvinnunefndin hafi ekki heimild til að búa til sínar eigin forsendur um vægi einstakra sjónarmiða. Slíkt sé einungis á færi stjórnvalda. Löggjafinn hafi að því er varðar orku- vinnslu og orkuspár falið Landsvirkjun og Orkustofnun ákveðið stjómskipulegt hlutverk, sem nefndinni ber að virða og taka fullt tillit til í tillögugerð sinni. Þá sé einnig nauðsynlegt við gerð svæðisskipulags miðhálendisins að taka tillit til heildarhagsmuna allrar þjóðarinnar og þá bæði efnahagslegra sjónarmiða og náttúmvemdarsjónar- miða. II. Landsvirkjun lítur svo á að svœðisskipulag miðhá- lendisins eigi að gera ráð fyrir svigrúmi fyrir ýmsa nýtingarmöguleika en ekki útiloka slíkan sveigjan- leika íframtíðinni eða takmarka hann. í þessu felst að skipulagstillagan eigi að vera almenn fremur en sértæk. I orkumálum eigi hún ekki að snúast um einstaka virkjunarkosti heldur ákveðin orkuvinnslu- svæði. Einnig ber að halda eftir opnum möguleikum á nýtingu landsvæða eftir að skipulagstímanum lýkur. III. Landsvirkjun getur ekki fallist á að það sé í verka- hring samvinnunefndarinnar að gera tillögur um breytingar á hönnun virkjunarmannvirkja sem þegar hefur verið veitt virkjunarleyfi fyrir og/eða lagaheim- ildir eru þegarfyrir. Hér er átt við að á skipulagstillögunni hefur lónhæð í Norðlingaöldulóni verið lækkuð um 2 metra frá því sem núverandi hönnun gerir ráð fyrir og línan yfir Sprengisand færð til frá samþykktu skipulagi. I umræddu bréfi Landsvirkjunar er gerð nánari grein fyrir athugasemdunum eins og hér segir: 1. Það er skoðun fyrirtækisins að nefndinni og skipu- lagsstjórn sé óheimilt að raska fyrirkomulagi virkj- ana á miðhálendinu. Gildir þá einu hvort um er að ræða virkjanir sem þegar eru á skipulagssvæðinu eða virkjanir sem lagaheimildir em fyrir. Við gerð skipu- lagstillögu sinnar er nefndinni ekki aðeins nauðsyn- legt heldur skylt að hafa samráð við Landsvirkjun um mat á þörfmni fyrir nauðsynlegar framkvæmdir á miðhálendinu vegna orkuvinnslu í þágu almennra þarfa og iðnaðar. Nefndin getur m.ö.o. ekki skorast undan því að gera ráð fyrir fyrirhuguðum og hugsan- legum virkjunum Landsvirkjunar á miðhálendinu samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Eðli máls- ins samkvæmt hlýtur því að eiga að leggja mat Landsvirkjunar eða Orkustofnunar til grundvallar þegar afmarkað er á hlutaðeigandi skipulagsupp- drætti hvaða virkjunarframkvæmdir em fyrirhugaðar á skipulagstímanum eða til lengri tíma litið. 2. Landsvirkjun ítrekar þau sjónarmið sem nefndinni hafa verið gerð grein fyrir að stjómvöld verði að styðjast við óyggjandi rök ef breyta á þegar sam- þykktum virkjunaráformum og að slíkt sé aðeins á valdi ráðherra orkumála. Nefndinni ber einfaldlega að gera ráð fyrir þegar samþykktum framkvæmdum án athugasemda með hliðstæðum hætti og þeim framkvæmdum sem nú er unnið við eða er lokið á miðhálendinu. Því er fyrirvara nefndarinnar um hæð Norðlingaöldulóns mótmælt en hún hefur án rök- stuðnings lagt til að miðað verði við vatnsborðshæð

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.