Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Side 28

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Side 28
ÝMISLEGT fylgd túlks Rauða krossins og fé- lagsmálastjóra ísafjarðarbæjar. Að lokinni stuttri móttökuathöfn á Isa- fjarðarflugvelli var ekið til nýrra heimkynna fólksins að Pollgötu 4 á Isafirði. Þar biðu sjálfboðaliðamir sem höfðu útbúið íbúðimar og ætl- uðu jafnframt að vera stuðningsfjöl- skyldur flóttamannafjölskyldnanna. Það er ógleymanleg sú stund þegar þessir hópar hittust og flóttamenn- imir skoðuðu vel útbúin híbýlin sem þeim var ætlað að gera að sínum heimilum. Það var áhrifamikil stund sterkra tilfinninga. Það skyggði að vísu á að ein fjölskyldan kom ekki. Hafði ekki mætt við brottför frá Júgóslavíu. Það skýrðist hins vegar seinna og u.þ.b. mánuði seinna kom maðurinn í þeirri fjölskyldu, en kona og dóttir urðu eftir. Persónu- legar ástæður lágu þar að baki. Daginn eftir komuna var svo formleg móttaka þar sem saman vom komnir flóttamennimir, stuðn- ingsaðilar, sjálfboðaliðar og fulltrú- ar Rauða krossins og Isafjarðarbæj- ar. Næstu dagar fóm í kynningu á landinu, Isafjarðarbæ, helstu þáttum daglegs lífs á Islandi, á réttindum og skyldum og hvemig staðið yrði að aðstoð við flóttamennina. I kjölfarið fylgdu heilbrigðisskoðanir og ís- lenskukennsla. Börnin fengu sér- kennslu og fullorðnir sér. Þar sem tiltölulega stutt var í að skólar hæfust þá var gripið til þess að fá fleiri aðila sem kynnu serbókróat- ísku til liðs við kennslu bamanna svo að þau gætu verið eins vel und- irbúin að hefja skólagöngu og kost- ur væri. Adlögun og framkvæmd Gert var ráð fyrir að fullorðnir sæktu íslenskutíma daglega alla virka daga vikunnar. Gert var ráð fyrir fjómm kennslustundum á dag. íslenskukennslan var í samvinnu við Námsflokka Reykjavíkur og Farskóla Vestfjarða. Eftir að flótta- mennimir fóru að vinna sóttu þeir verr námið og olli það stundum erf- iðleikum að fylgja eftir skyldu þeirra að sækja íslenskukennsluna. Pegar forsetahjónin komu i opinbera heimsókn til ísafjaröar á árinu 1996 heimsóttu þau heimili flóttafólksins viö Pollgötu. Úr útsýnisferö um isafjaröardjúp. Viö göm um að vel yrði tekið á móti flótta- mönnunum. Það torveldaði stýrihópnum í upphafi hversu seint mál gengu hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna og bið eftir að sendinefnd færi til að velja hópinn. A tímabili leit jafnvel út fyrir að engir flóttamenn kæmu. Lögð var áhersla á af hálfu stýri- hópsins að sumarið væri nýtt til að- lögunar og íslenskukennslu sem myndi m.a. auðvelda bömunum að hefja nám í skólanum að haustinu. mylluna í Vigur. Þegar ljóst var hver hópurinn yrði og hvenær hann kæmi hófst loka- þáttur undirbúningsins sem miðaði að því að allt væri til reiðu þegar flóttamennimir kæmu. I þeim þætti reyndi á samstarf Isafjarðarbæjar og Rauða krossins sem tókst einstak- lega vel. Móttakan Aðfaranótt 28. júlí 1996 kom þreyttur og eftirvæntingarfullur hópur 29 flóttamanna til ísafjarðar í 22

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.