Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 33

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 33
SAMEINING SVEITARFELAGA mun í Neskaupstað. Þessa spá byggðu þeir á samtölum við almenning á stöðunum. Ymsir voru á öndverðum meiði við spá fjölmiðlanna og því gætti nokkurrar spennu þegar atkvæðagreiðslan hófst. Atkvæóagreióslan Eins og fyrr segir fór atkvæðagreiðslan fram laugar- daginn 15. nóvember sl. Ekkert fór á milli mála að hún vakti meiri athygli en flestar aðrar sambærilegar at- kvæðagreiðslur og má í því sambandi nefna að Stöð 2 sendi fréttir þessa dags í beinni útsendingu frá Eskifirði og Sjónvarpið var einnig með beina útsendingu í tilefni hennar. Ahugi áhrifamestu fjölmiðla landsins var ótví- ræður. Sveitarstjómarmenn höfðu haft nokkrar áhyggjur af lélegri þátttöku en þegar leið á daginn kom í ljós að þær áhyggjur voru ástæðulausar. Alls greiddu um 70% þeirra sem voru á kjörskrá í Neskaupstað atkvæði en á Eskifirði og Reyðarfirði um 83%. Urslit atkvæðagreiðslunnar voru kynnt í beinni sjón- varpsútsendingu kl. 23 um kvöldið og var þá ljóst að sameining hafði verið samþykkt með afgerandi meiri- hluta í öllum sveitarfélögunum þremur. Úrslit urðu annars sem hér segir: Á Atkv. Auðir/ kjörskrá greidd Já % Nei % ógildir Reyöarfjörður 470 389 276 70,1 108 27,8 5 Eskifjörður 675 561 340 60,6 216 38,5 5 Neskaupstaöur 1141 788 647 82,0 127 16,1 14 Samtals 2256 1738 1263 72,6 451 25,9 24 Þessi úrslit þýddu að íbúar sveitarfélaganna þriggja höfðu samþykkt að nýtt sveitarfélag yrði myndað og yrði það fjölmennasta sveitarfélag á Austurlandi með liðlega 3300 íbúa. Tímamót höfðu ótvírætt átt sér stað í austfirskri sögu. Þeir sem sæti áttu í undirbúningsráði atkvæðagreiðsl- unnar og aðrir sveitarstjómarmenn sem vom fylgjandi sameiningu fögnuðu sérstaklega hvað úrslitin voru af- gerandi á öllum stöðunum en erfitt hefði verið að vinna að sameiningunni ef mjög mjótt hefði verið á munum. Ymsir andstæðingar sameiningar lýstu því einnig yfir að gott væri hve úrslitin hefðu verið skýr og sú staðreynd yki líkurnar á að nýtt sveitarfélag yrði mótað með þokkalegum friði. Frekarí undirbúningur sameiningar Þann 2. desember sl. héldu sveitarstjómimar þrjár sameiginlegan fund og fjölluðu um með hvaða hætti væri unnt að vinna enn frekar að undirbúningi samein- ingar sveitarfélaganna. A fundinum var undirbúin sér- stök samþykkt um sameininguna sem síðan yrði fjallað um í hverri sveitarstjóm og því næst send félagsmála- ráðuneyti. Eins var ákveðið að skipa sameiningamefnd sem hefði það hlutverk að undirbúa ýmis mál sem snertu sameininguna en þau mál yrðu síðan lögð fyrir sveitar- stjómimar. Samþykkt var að sömu einstaklingar og sátu í undirbúningsráðinu sætu í sameiningarnefndinni og með þeim störfuðu framkvæmdastjórar sveitarfélaganna. Fyrsta verkefni sameiningamefndarinnar var að fjalla um ýmsa þætti sem snerta fjárhagsáætlanagerð sveitarfé- laganna. Ahugi var fyrir því að samræma álagningarregl- ur sveitarfélaganna og þegar þetta er skrifað er ljóst að það tekst að mestu leyti. Hver sveitarstjórn gerir sína fjárhagsáætlun fyrir árið 1998 og ákveðið var að samráð yrði haft um gerð fjárhagsáætlananna og sameiningar- nefndin tryggði að svo yrði. Með þessu móti ætti að vera hægt að korna í veg fyrir alla tortryggni sem gæti skapast ef sveitarfélögin sinntu fjárhagsáætlanagerð hvert fyrir sig án alls samráðs. Sameiningamefndin þarf að taka á fjölmörgum öðmm verkefnum svo sameiningin geti gengið sem auðveldast fyrir sig. A meðal þeirra verkefna er samning allra reglu- gerða og samþykkta fyrir nýtt sveitarfélag, samræming þjónustugjalda, umfjöllun um starfsmannamál, verkefni sem tengjast nafngift hins nýja sveitarfélags, umfjöllun um þá samninga sem sveitarfélögin hafa gert, bókhalds- mál o.fl. í sannleika sagt er verkefnalistinn ærið langur og mörg verkefnin brýn svo sameiningin verði eins kon- ar þróun en ekki snögg breyting sem gæti verið óþægileg fyrir íbúana og stjómendur. Eitt af því sem sameiningamefndin er sammála um er nauðsyn þess að byggð verði upp samkennd íbúanna og vinna sem stuðlar að slíku getur hafist nú þegar. íbúamir eru vanir því að telja sig tilheyra einhverju núverandi sveitarfélaga og hafa bundist sínu sveitarfélagi tilfinn- ingalegum böndum. Um leið hafa þeir gjaman litið á ná- grannasveitarfélögin sem keppinauta á mörgum sviðum. Við sameiningu er afar brýnt að breyta þessum hugsun- arhætti og verða íbúamir þá að líta á allt hið nýja sveitar- félag sem heimasveitarfélag sitt. I stað samkeppni á milli byggðarlaganna verður að koma samstarf og í stað tor- tryggni í garð nágrannans þarf að myndast samkennd og samstarfsvilji. Víst má telja að það taki nokkum tíma fyrir íbúa hins nýja sveitarfélags að breyta viðhorfum sínum og byggja upp hin umræddu samkenndarviðhorf. Sveitarstjóm sam- einaðs sveitarfélags gegnir lykilhlutverki í þessu sam- bandi og getur með ákörðunum sínum og stjómunarað- ferðum stuðlað að viðhorfsbreytingunni. Stjóm sveitarfé- lagsins verður að gæta þess að hin almenna þjónusta verði öllum íbúum þess jafn aðgengileg og jafnframt verði verkefnum á sviði uppbyggingar dreift með eðlileg- um hætti innan sveitarfélagsins. Að sjálfsögðu verður verkaskipting á ýmsum sviðum á milli byggðarkjamanna en gmndvallaratriði er að þjónusta við íbúana verði sem jöfnust. Til að ná þessum árangri verður sveitarstjóm hins sameinaða sveitarfélags að hafa sanngimi að leiðarljósi og vanda sig þegar teknar em viðkvæmar ákvarðanir. 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.