Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Síða 34
SAMEINING SVEITARFE LAGA
Samstarf eða sameining?
Sigurður Rúnar Ragnarsson, framkvœmdastjóri héraðsnejndar Þingeyinga
Undanfarin ár hefur verkefnum
sveitarfélaga fjölgað. Flest bendir til
að sú þróun haldi áfram. Breyttar
aðstæður hafa knúið sveitarstjómir,
einkum sveitarstjórnir fámennra
sveitarfélaga, til að endurskipu-
leggja störf sín. Þörf fyrir róttækar
breytingar á skipan og rekstri sveit-
arfélaga verður æ brýnni eftir því
sem sveitarstjómarstiginu er ætlað
stærra hlutverk í stjómskipan lands-
ins.
Sameining sveitarfélaga er sem
betur fer komin á skrið enda er það
virkasta aðgerð sem þau eiga kost á
til að bregðast við breyttum aðstæð-
um.
Nokkuð hefur borið á þeirri skoð-
un að samvinna sé æskilegri eða
jafn góð sameiningu. Sveitarfélögin
í Þingeyjarsýslu hafa kosið að fara
inn á braut samstarfs. Það er von
mín að samstarfið leiði til átaka-
minni sameiningar þegar frá líður.
Samstarfsverkefni sveitar-
félaga í Þingeyjarsýslu
Ekkert er nýtt undir sólinni, ekki
heldur samstarf sveitarfélaga. I
Þingeyjarsýslu hafa þau um árabil
átt samstarf um rekstur safna, dval-
arheimilis fyrir aldraða, byggingar-
fulltrúa og önnur mál sem lögum
samkvæmt féllu undir sýslunefnd
og síðar héraðsnefnd. Löggjafinn
hefur líka fyrirskipað samstarf, svo
sem um rekstur heilbrigðisfulltrúa-
embætta. Hér er byggðasamlag um
hirðingu og förgun sorps og áfram
mætti telja.
Til þess að bæta yfirsýn sveitar-
stjóma, samræma rekstur og skapa
vettvang til að auðvelda frekara
samstarf var ákveðið að auka starf-
semi héraðsnefndar og ráða til
hennar framkvæmdastjóra.
Félagsþjónusta
Þingeyinga
Hinn 1. janúar 1998 tók Félags-
þjónusta Þingeyinga til starfa. Öll
sveitarfélögin 14, sem aðild eiga að
héraðsnefnd Þingeyinga, gerðu með
sér samstarfssamning og veittu hér-
aðsnefndinni umboð til að annast
skyldur sínar um félagsþjónustu í
samræmi við lög um félagsþjónustu
sveitarfélaga, lög um þjónustu við
fatlaða og lög um vemd bama og
ungmenna. Tilgangur samstarfsins
er að íbúar allra sveitarfélaganna
eigi jafnan aðgang að félagsþjón-
ustu og að hún sé rekin á hagkvæm-
an hátt.
Tvær félagsmála- og bamavemd-
amefndir, sem héraðsnefnd kýs, em
á starfssvæðinu. Undir þeirra stjóm
er starfrækt félagsmálastofnun með
aðalstöðvar á Húsavík. Við hana
starfa félagsmálastjóri, félagsráð-
gjafi, sálfræðingur, deildarstjóri
málefna fatlaðra og ritari. Starfs-
menn félagsmálastofnunar munu
veita viðtöl einu sinni í mánuði á
Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri,
Stómtjömum og í Mývatnssveit.
Héraðsnefnd yfirtók samninga
Húsavíkurkaupstaðar við félags-
málaráðuneytið um þjónustu við
fatlaða á starfssvæðinu, við Rauða
kross íslands um tilsjónarheimili á
Húsavík og við Skólaþjónustu Ey-
þings um samnýtingu starfsfólks og
um húsnæði fyrir útibú Skólaþjón-
ustunnar á Húsavík.
Aðildarsveitarfélögin skipta með
sér kosmaði við rekstur Félagsþjón-
ustu Þingeyinga í hlutfalli við íbúa-
tölu og í samræmi við fjárhagsáætl-
un stofnunarinnar ár hvert. Kostnað,
sem til fellur vegna úrræða fyrir
skjólstæðinga félagsþjónustunnar,
greiðir lögheimilissveitarfélag við-
komandi skjólstæðings.
Skrifstofa héraðsnefndar sér um
fjárreiður verkefnisins og héraðs-
nefnd ber ábyrgð á framkvæmd
þess.
Samstarf eöa sameining?
Samstarf sveitarfélaga getur verið
þeim hagstætt og skilað sér í betri
og ódýrari þjónustu við íbúana.
Megingalli þess er hversu þungt
það er í vöfum. Endanlegt ákvörð-
unarvald liggur ætíð hjá hverju að-
ildarsveitarfélagi um sig. Erfitt getur
reynst að ná fram endanlegri
ákvörðun í málum þegar um þau
þarf að fjalla í 14 sveitarstjómum
eins og í okkar tilviki.
Vilji menn stytta sér leið og fram-
selja ákvörðunarvaldið til héraðs-
nefndar er það komið óæskilega
langt fá kjósandanum. Lýðræðið
verður best tryggt með því að sá er
ákvörðun tekur standi kjósandanum
milliliðalaust skil gjörða sinna.
Niðurstaða mín er sú að samstarf
sveitarfélaga geti vart komið í stað
sameiningar.
28