Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Síða 43

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Síða 43
FRÆÐSLUMAL í iðjuþjálfun er tölvan notuö bæði sem þjálfunartæki og sem hjálpartæki. þessir þættir þjálfaðir. Þjálfunin fer að mestu fram sem leikur og mikil- vægt er að bömunum þyki gaman í þjálfun. Iðjuþjálfinn leggur áherslu á að gera kröfur til bamanna í sam- ræmi við getu þeirra og bendir þeim á hvernig þau geta nýtt sér sínar sterku hliðar. Þetta styrkir sjálfsmat barnanna. Þeim líður betur og eru betur undir það búin að takast á við verkefni sem áður hafa reynst erfið. Hreyfihömluð börn Hreyfihömluð böm em í auknum mæli að flytjast úr sérdeildum inn í almenna bekki í sínum hverfisskól- um. Iðjuþjálfar meta þörf á hjálpar- tækjum, veita ráðgjöf og aðstoða við útvegun þeirra. Þeir þjálfa böm- in í notkun hjálpartækja og leið- beina öðmm sem annast bamið um notkun þeirra. Hreyfihamlaðir eiga oft í erfiðleikum með að tjá sig og þurfa að nota tölvur eða annan tæknibúnað við tjáskipti og nám. Iðjuþjálfar meta þörf fyrir slíkt og sjá um að finna þann búnað sem hentar hverju sinni. Margar skóla- byggingar eru ekki hannaðar með tilliti til hreyfihamlaðra nemenda og því þarf að aðlaga umhverfi að baminu þannig að það komist sem auðveldast um í skólanum. Góð vinnuaðstaða er mikilvæg jafnt fyrir fatlaða sem ófatlaða. Iðjuþjálfar meta setstöðu, borðhæð og annað í umhverfi barnanna og koma með tillögur að úrbótum ef þörf er á. Mikilvægt er að gæta að góðum vinnustellingum hjá bömum til að koma í veg fyrir ýmsa álagssjúk- dóma síðar meir. lójuþjálfun i skólum Hér á landi hafa iðjuþjálfar starfað á stofnun- um, við þjálfun og við meðferð barna um árabil. Nefna má stofn- anir eins og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Iðjuþjálfar á þessum stofnunum anna ekki þeirri þörf sem er á þjónustu við skólabörn. Að Öskjuhlíðarskóla undanskildum er enginn iðjuþjálfi starfandi í íslensku skólakerfi. Til viðmiðunar má nefna að nýlegar tölur frá Bandaríkjunum gefa til kynna að þriðjungur bandarískra iðjuþjálfa starfar á bamasviði (0-18 ára), þar af starfa 55% í skólakerf- inu, 21% á sjúkrahúsum, 18% utan stofnana og 4% á sólarhringsstofn- unum. Nú hafa skólar verið færðir frá ríki til sveitarfélaga. Sveitarfélögin eiga samkvæmt lögum að veita sér- fræðiþjónustu fyrir grunnskólana, þar sem kennarar geta sótt ráðgjöf fyrir börn með sérþarfir. Starfs- menn slíkrar sér- fræðiþjónustu skulu vera kenn- arar með fram- haldsmenntun, sálfræðingar og aðrir sérfræðing- ar. Störf tal- meinafræðinga hafa verið viður- kennd sem nauð- synleg sérfræði- þjónusta fyrir skólana. Við teljum að fagþekking iðjuþjálfa sé ekki síður mikilvæg og myndi styrkja sérfræðiþjónustu við grunnskóla og leikskóla. Iðjuþjálfar hafa undanfarin ár veitt skólum og leikskólum ráðgjöf varðandi hreyfi- hömluð og misþroska börn. Skiln- ingur hefur aukist í skólum á högum bama með sérþarfir þótt enn skorti verulega þekkingu á vandanum og hvernig á að bregðast við honum. Margir skólastjórar, kennarar og leikskólakennarar hafa lýst yfir áhuga á að fá iðjuþjálfa inn í skól- ana til nánara samstarfs. Með nánari tengslum iðjuþjálfa við böm á leikskóla- og gmnnskóla- aldri er hægt að koma bömum með sérþarfir fyrr í þjálfun og auðveldara verður að fylgja þeim eftir í gmnn- skólanum. Aukin samvinna sérfræð- inga kemur öllum til góða en mest bömunum sem þurfa á hjálp okkar að halda. Fjöldi þeirra barna, sem þurfa á iðjuþjálfun að halda, sýnir fram á nauðsyn þess að iðjuþjálfun verði hluti af sérfræðiþjónustu sveit- arfélaganna við skólana. Greinarhöfundarnir, Hrefna Oskarsdóttir og Anna Sigríður Jónsdóttir, eru iðju- þjúlfar og starfa á œfingastöð Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra og vinna við iðjuþjálfun harna. löjuþjalfun barna byggist mikiö upp á leik. 37

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.