Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Page 45

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Page 45
ERLEND SAMSKIPTI Myndin var tekin í íþróttahúsinu Digra- nesi í Kópavogi er lokahóf Norræna byggingardagsins 1983 var aö hefjast. sem reknir eru innimarkaðir. Úti á torginu eru á virkum dögum blóma- og ávaxtamarkaðir en um helgar bland- aður markaður. Um 30 þátttakendur voru frá íslandi, þar af frá Reykjavíkurborg undirritaður ásamt Magnúsi Sædal byggingarfulltrúa, starfsmanni hans, Olafi Axelssyni arkitekt, og Þorkell Jónsson verkfræðingur var frá bygg- ingadeild borgarverkfræðingsembættisins. Nýtt fyrírkomulag ráóstefnunnar Ráðstefnan var ekki með hefðbundnu sniði erinda- flutnings og umræðna heldur var efninu skipt upp í 10 flokka að velja úr og kynnast nánar. Ráðstefnugestir voru um 700, þar af nokkrir frá Eystrasaltslöndunum og Pétursborg. Flestir komu til borgarinnar sunnudaginn 25. ágúst en þá var gestunum síðdegis boðið í bátsferð um sundin, Stockholm frán vattnet, sem lauk með viðamikilli mót- töku Stokkhólmsborgar í ráðhúsinu. Annars voru fyrir- lestrar fyrir hádegi fyrri daginn og í lok síðari dags við lokaathöfnina í Katarina-kirkjunni. Þess á milli skipti fólk sér á tíu efnisflokka (Projekt turer) en þeir voru: 1. Endurlífgun miðborga 2. Hlutverk viðburða í samfélaginu 3. Nútíma byggingar með hliðsjón af hefð 4. SIAB fyrirtækið sýnir endurbyggingarverkefni 5. Góð byggingarlist í atvinnuhúsnæði 6. Tækni og hollusta 7. Verkefni í miðbæjum 8. Hreinsun frárennslis 9. Arlandabrautin 10. Vistvæn byggingarstarfsemi og þekkingarmiðlun Fyrri degi lauk með hátíðarkvöldi í Tónleikahöllinni sem kallað var Norræn byggingamótt. Verkefnisferðimar voru vel undirbúnar og skipulagðar í samvinnu við viðkomandi yfírvöld, fyrirtæki, hönnuði og framkvæmdaraðila sem sendu fulltrúa með til að upplýsa, kynna og svara spurningum. Var þetta mjög áhugavert og árangursríkt fyrirkomulag og til eftir- breytni. Lokaathöfnin fór fram í Katarina kirkjunni sem eyði- lagðist í bruna árið 1990 en hefur nú verið endurreist fyrir 2,3 milljarða íslenskra króna. Hún er skínandi formfögur kirkja frá stórveldistíma Svía á 17. öld. Lokaþátturinn var menningarspjall um byggingarstarf- semi framtíðarinnar sem Lennart Koskinen atvinnumála- ráðherra leiddi en þátttakendur voru Görel Thurdin, varaforseti sænska þingsins, og Elisabeth Rehn, fulltrúi á Evrópuþinginu. Orgel-, hljómsveitar- og kórtónlist var flutt og lauk at- höfninni með því að Ulrika Francke, formaður sænsku stjómarinnar, afhenti greinarhöfundi hálskeðju sem tákn um að ísland taki nú við ráðstefnunni. Þorvaldur S. Þor- valdsson flutti smáávarp, sagði frá þeim miklu atburðum sem fara í hönd á íslandi á aldamótaári, er Reykjavíkur- borg verður í hópi menningarborga Evrópu, haldið verð- ur upp á 1000 ára afmæli kristnitökunnar, Vínlandsfund- arins o.s.frv. Bauð hann þátttakendur velkomna til Reykjavíkur á NBD 20 síðsumars 1999 at Tjuvtitta pá násta sekel. NBD 20 i Reykjavík 1999 Samtökin Norrænn byggingardagur em samtök sveit- arfélaga, stofnana sem tengjast byggingariðnaði og fé- 39

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.