Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Side 48

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Side 48
ERLEND SAMSKIPTI Róörarhópurinn sýndi bæjarbúum og gestum hæfni sína á Pollinum í lok vinabæjavikunnar. svip á bæjarlífið þessa daga. Eins og áður er getið voru auk unglinganna rúmlega fj \:M Lúörasveitin Randers Pigegarde setti mikinn svip á bæjarlifiö meöan á vikunni stóö. Ljósmyndastofa Páls A. Pálssonar á Ak- ureyri tók myndirnar sem frásögninni fylgja. 40 fullorðnir þátttakendur frá vinabæjunum, sem er mun meiri þátttaka en venjulega. Kom þar til annars vegar að um afmælishátíðahöld var að ræða í tengslum við vikuna og einnig var samtímis vinabæjavikunni haldinn svo- nefndur „kontaktmannafundur“, þar sem bæjarstjórar og forsetar bæjarstjóma bæjanna lögðu á ráðin um samstarf vinabæjanna næstu fimm árin. Þar var samþykkt að áherslan verði áfram á 16-20 ára ungmenni og viðfangs- efnin verði einkum tengd listum og íþróttum. Einng var samþykkt að hinir vinabæimir mundu áfram, eins og undanfarið, styrkja þátttöku Akureyrar með því að greiða um helming af ferðakostnaði þátttakenda frá Akureyri hverju sinni þegar vinabæjavikan er annars staðar en á Akureyri. Þetta fyrirkomulag hefur gert Akureyri kleift að taka þátt í þessu samstarfi á jafnréttisgrundvelli, þrátt fyrir fjarlægð og fámenni, samanborið við hina bæina. I tengslum við vinabæjavikuna var sett upp yfirgrips- mikil sýning frá öllum vinabæjunum, sem var opin bæj- arbúum meðan á vikunni stóð. Allir unglingamir frá vinabæjunum gistu í heimahúsum meðan á dvöl þeirra stóð. I lok vikunnar tóku allir þátttakendur, ásamt gest- gjöfum þeirra, alls nálega 500 manns, þátt í norrænu kvöldi með fjölbreyttri dagskrá og veitingum. Forseti Is- lands og forsetafrú heiðmðu samkomuna með nærvem sinni. Það vom því margir bæjarbúar sem á einn eða annan hátt tengdust þessari vinabæjaviku og hafa væntanlega fengið meiri innsýn í líf og störf þessara frændþjóða okkar.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.