Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 58

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Blaðsíða 58
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM Frá kvöldveröarhófi á fundlnum. Á myndinni eru, taliö frá vinstri, Broddi B. Bjarnason, formaöur SSA, Por- steinn Jóhannsson, fyrrverandi oddviti Hofshrepps, heiöurs- gestur fundarins, Ólafur Sigurösson, hreppsnefndarmaöur í Hofshreppi og tengda- sonur Þorsteins, og Petrún B. Jónsdóttir, bæjarfullltrúi i Nes- kaupstaö. Myndirnar frá fundin- um tók Ásta Snædís Guömundsdóttir, ritari á skrifstofu SSA. ingur að virkjun í fjórðungnum í samstarfi við Raf- magnsveitur ríkisins og/eða aðra þá, sem til þess veljast. I greinargerð með tillögunni segir að virkjun á Aust- urlandi falli betur að þörfum raforkukerfisins en virkjan- ir annars staðar og auki varaafl þar. í fjórðungnum séu stórir orkunotendur sem enn framleiða orku sína með svartolíu og valda með því umtalsverðri mengun, sem draga beri úr. Á Austurlandi hafa einnig verið uppi áform um orkufrekan nýiðnað. Talin er full þörf á að fylgja þessu hagsmunamáli fast eftir með raunveruleg- um aðgerðum er leiði til virkjunarframkvæmda. Jöfnun orkukostnaöar Aðalfundurinn skoraði á þingmenn Austurlands að beita sér fyrir markvissum aðgerðum af hálfu hins opin- bera til þess að jafna orkuverð í landinu. Rafmagnseftirlit Aðalfundurinn minnti á athugasmedir SSA í aðdrag- anda lagasetningar í lok seinasta árs um rafmagnseftirlit annars vegar og löggildingarstofur hins vegar og hvatti þingmenn Austurlands til að beita sér fyrir því að fram fari endurskoðun á lögunum, er tryggi fyrst og fremst virkt eftirlit, sem allir þurfi að greiða sama gjald fyrir, óháð búsetu notendanna og staðsetningu þeirra, sem þjónustuna veita. Kostnaöur vegna eftirlitsstofnana Fundurinn skoraði á þingmenn Austurlands að leita leiða til að koma í veg fyrir að kostnaður vegna þjónustu eftirlitsstofnana verði ekki til að leggja niður ýmis fyrir- tæki á landsbyggðinni. í greinargerð með tillögunni sagði að ýmis aukakostn- aður vegna starfsemi eftirlitsaðila lendi á fyrirtækjum á landsbyggðinni af meiri þunga en þeim sem nær eru þjónustunni. Fyrirtækin verða því ekki eins samkeppnis- hæf. Því sé æskilegt að eftirlitsaðilum sé valinn staður sem víðast um land en séu ekki alfarið á höfuðborgar- svæðinu. Vegasamgöngur Fundurinn lagði áherslu á mikilvægi góðra samgangna til eflingar atvinnulífi á Austurlandi og beindi þeim til- mælum til stjómvalda og hagsmunaaðila í fjórðungnum að leita allra mögulegra leiða til að bæta og auka sam- göngur innan hans. Skorað er á Vegagerðina og þingmenn Austurlands að gera á komandi vetri áætlun um lok varanlegrar vega- gerðar á stofnbrautum innan fjórðungsins. Að því sé stefnt að framkvæmdum sé lokið fyrir næstu aldamót. Fjármagn verði tryggt við endurskoðun vegaáætlunar sem nú stendur yfir og sá möguleiki kannaður að tekið verði sérstakt lán til framkvæmdanna. Einnig er Vegagerðin hvött til að hefja lagfæringu vegarins um Öxi og við það miðað að hann sé fær fólks- bflum að sumarlagi. Loks er skorað á Vegagerðina að sjá til þess að Hellis- heiði eystri verði haldið opinni yfir vetrartímann eins og öðmm fjallvegum milli byggða á Austurlandi. Jarögöng á Austurlandi Aðalfundurinn ítrekaði fyrri samþykktir um að næstu jarðgangaframkvæmdir verði á Austurlandi. Aukiö fjármagn til hafnarframkvæmda Fundurinn benti þingmönnum kjördæmisins og sam- gönguráðherra á nauðsyn þess að fjármagn til hafnar- framkvæmda á Austurlandi verði aukið í samræmi við stóraukna fjárfestingu vegna sfldar- og loðnuvinnslu í fjórðungnum. 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.