Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Side 63

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Side 63
AFMÆLI Skammt frá Gravelines er litill bær þar sem götur bera ennþá íslensk nöfn. Á myndinni eru, taliö frá vinstri, Steinþór Pétursson sveitarstjóri og Albert Kemp, oddviti Búöahrepps, Léon Panier, borgarstjóri Gravelines, og Magnús Stefánsson, varaoddviti Búöahrepps, viö götuna RUE FÁSKRÚÐSFJÖRÐ, eins og e.t.v. má sjá á myndinni. Myndirnar meö grein- inni tók Guöný Elisdóttir. 18. ágúst 1991 var formlega komið á vinabæjatengslum við bæinn Gravelines í Frakklandi, en Gravelines er um 12.000 manna bær í Norður-Frakklandi. I sáttmála sem undirritaður var lýsa aðilar vilja sínum ..til þess að halda lifandi sögu strandsvœða Gravelines og Islands “ og einnig að gerðar verði allar mögulegar ráðstafanir til að halda vináttu- og samvinnuböndum milli þessara að- ila í þágu íbúa beggja staðanna. Er það vilji beggja aðila að tengslin þróist fyrst og fremst í formi unglingasamskipta og að viðhalda sameiginlegri menningar- sögu eða eins og segir í samkomu- lagi þessara aðila þá óska þeir „...þess að neytt verði allra ráða til þess að koma á samhandi milli bœjarráðsmanna, opinberra stofn- ana, félaga og samtaka, einkum á sviði efnahags- og félagsmála, skólamála, menningar- og íþrótta- mála“ auk þess að „Með þessu íslenska-franska fram- taki leggi Búðahreppur og Gravelines sitt afmörkum til að efla samskipti þjóða, tiyggja frið í heiminum og verja lýðrœðislegtfrelsi og mannréttindi borga heims". Nokkur samskipti hafa átt sér stað í þessum anda, unglingar farið héðan frá Fáskrúðsfirði til Gravelines og síðan komið unglingar frá Gravelines til Fáskrúðsfjarð- ar. Einnig hafa hreppsnefndarmenn þessara staða skipst á heimsóknum og nú síðast í sumar þegar borgarstjóri Gravelines, hr. Léon Panier, við þriðja mann ásamt mökum heimsótti Búðahrepp á afmælishátíðinni. Notaði hann tækifærið og gaf sveitarfélaginu 15 innrammaðar myndir frá þessum gamla tíma í afmælisgjöf. Þá bauð hann Búðahreppi að senda fulltrúa á „Hátíð íslandssjó- manna“ sem haldin var í Gravelines þann 26., 27. og 28. september í haust. Fóru tveir úr hreppsnefnd ásamt und- irrituðum og mökum til hátíðarinnar og er með sanni hægt að segja að móttökumar sem við fengum voru frá- bærar. Þetta var mikil hátíð og er óhætt að segja að það hafi komið undirrituðum á óvart hversu ofarlega minningin frá þessum tíma var í huga þessa fólks. Má leiða að því líkur að minningin sé eins sterk og raun ber vitni vegna þeirrar miklu spennu og sveiflu milli sorgar og gleði sem var þegar bátamir snem aftur heim og í ljós kom hvort ástvinur átti afturkvæmt eftir langa dvöl á fjarlæg- um miðum eða hvort þeir bám sorgarfréttir heim til ást- vina. Gravelines er stöndugur bær; þama er stórt kjamorku- ver, ein stærsta fiskeldisstöð í Frakklandi, og þótt víðar væri leitað, álver er að hluta á umráðasvæði bæjarins og margt fleira. Mikill iðnaður er á þessu svæði og nær- liggjandi byggðarlögum en það sem gerir Gravelines sér- stakan bæ er sú umgjörð sem bærinn hefur. Hann er í raun gamalt virki sem umgirt er síki allan hringinn og skapa þessar andstæður nútíma og gamla tímans sérstakt andrúmsloft sem fróðlegt er að kynnast. Gravelines er í nábýli við tvo bæi, Fort Philip og Grand Fort Philip, og fyrir leikmann er ekki alltaf gott að segja hvenær við stígum yfir bæjarmörkin, en þetta er glaðvært og vina- legt fólk sem gaman var heim að sækja. Lokaorö Sú þróun sem átt hefur sér stað hjá sveitarfélögum nú upp á síðkastið í átt til sameiningar og stærri eininga verður til þess að maður hugsar á þessum tímamótum um, hvað eigi fyrir sveitarfélagi eins og Búðahreppi að liggja í náinni framtíð. A Búðahreppur eftir að halda upp á 100 ára afmæli eða verður hann orðinn hluti af öðru og stærra samfélagi fyrir þann tíma? Þetta eru spumingar sem pólitískt kjöm- ir fulltrúar ráða nokkm um en að lokum ráða þó þeir íbú- ar sem búa í sveitarfélaginu og þeim sveitarfélögum sem um væri að ræða. En hver sem þróunin verður kemur saga Fáskrúðs- fjarðar til með að lifa áfram og verða jafn sérstök og fróðleg um ókomna tíma og hvati fyrir fólk til að koma og staldra við í fallegum firði. 57

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.