Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Page 70

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1998, Page 70
KYNNING SVEITARSTJORNARMANNA lands í júní 1996. Hann er fæddur í Reykjavík 18. júlí 1963 og eru foreldrar hans Greta Friðriksdóttir og Sigmar Óla- son, vélstjóri á Reyðarfirði, sá er gaf sjómannabikarinn til að keppa um á nýársmóti fatlaðra. Hreinn varð stjómmálafræðingur frá Háskóla íslands árið 1996, fiskeldisfræðingur frá bænda- skólanum á Hólurn árið 1988 og lauk námi í markaðs- og útflutn- ingsfræði frá Den Danske Eksport- skole árið 1996. Hreinn er kvæntur Ástu Einars- dóttur sjúkraþjálfara og eiga þau tvo syni. Ragna Hreinsdóttir félagsmálastjóri á Eskifirði og Reyðarfirði Ragna Hreins- dóttir hefur verið ráðin félags- málastjóri á Eskifirði og Reyðarfirði. Ragna er fædd 10. júlí 1962 á Raufarhöfn en ólst upp frá 8 ára aldri á Laugar- vatni í Ámessýslu. Foreldrar hennar eru Guðrún Einarsdóttir, bókavörð- ur við Menntaskólann að Laugar- vatni, og Hreinn Ragnarsson, kenn- ari við sama skóla. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni árið 1982, BA-prófi í ensku og sagnfræði frá Háskóla íslands 1986 og námi í uppeldis- og kennslufræði frá Kennaraháskóla Islands árið 1995. Ragna hefur búið á Eskifirði frá 1988 og kennt við grunnskólann þar og á sumrin unnið við liðveislu fatl- aðra. Hún er gift Friðriki Á. Þorvalds- syni, kennara við grunnskólann á Eskifirði, og eiga þau tvær dætur. Ragna hóf störf sem félagsmála- stjóri í hlutastarfí í nóvember síðast- liðnum en tók formlega við starfinu hinn 1. janúar 1998. JAFNRÉTTI Konur hvattar til þátttöku í sveitarstjórnarmálum Á 31. landsþingi Kvenfélagasam- bands íslands, sem haldið var á Ak- ureyri 20. og 21. júní 1997, var samþykkt ályktun þar sem konur um allt land eru hvattar til virkrar þátttöku f sveitarstjómarkosningum vorið 1998. „Einnig hvetur lands- þingið konur til að bjóða sig fram til sveitarstjóma og tryggja þannig hlut kvenna á framboðslistum um land allt,“ segir í ályktun landsþingsins. Félagsmálaráðuneytið Húsaleigubætur Þann 1. janúar 1998 öðluðust gildi lög nr. 138/1997 um húsaleigubætur og um leið féllu lög nr. 100/1994 um húsaleigubætur úr gildi. í nýju lögunum eru þrjár grundvallarbreytingar frá eldri lögum. Húsaleigubótakerfið nær nú til allra sveitarfélaga og því geta íbúar í öllum sveitarfélögum sótt um húsaleigubætur. Ekki er lengur undanskilinn réttur til húsaleigubóta ef leiguíbúð er í eigu ríkissjóðs, sveitarfélags eða fyrirtækis sveitarfélags. Samkvæmt nýju lögunum leggur ríkissjóður árlega til 280 millj. kr. vegna húsaleigubóta til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem mun úthluta greiðslum til sveitarfélaganna. Þá hefur félagsmálaráðuneytið gefið út reglugerð nr. 37/1998 um húsaleigubætur og reglugerð nr. 556/1994 um sama efni hefur fallið úr gildi. V___________________________ J \WRE VF/lz/ 5 88 55 22 64

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.