Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Page 15
Námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn
Áhersla á raunhæf verkefni
Samband íslenskra sveitarfélaga mun í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga standa fyrir
námskeiðum fyrir sveitarstjórnarmenn í næsta mánuði. Gert er ráð fyrir að halda ellefu nám-
skeið, með fyrirvara um næga þátttöku.
Námskeiðin
verða haldin um
allt land. Fólk
með mikla
reynslu af sveitar-
stjórnarmálum
mun hafa umsjón
með og leiðbeina
á námskeiðunum
á hverjum stað
en sérfræðingar
munu jafnframt
flytja fyrirlestra
með aðstoð fjar-
fundabúnaðar.
Anna Guðrún
Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunarsviðs sam-
bandsins, segir efni og uppbyggingu nám-
skeiðanna nú miðast að nokkru við sam-
bærileg námskeið í Noregi og Danmörku.
„Námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn hafa
verið haldin hér áður í kjölfar sveitar-
stjórnarkosninga en það sem er breytt
núna er að Samband íslenskra sveitarfé-
laga hefur nú umsjón með faglegri skipu-
lagningu og undirbúningi námskeiðanna,"
segir Anna Guðrún um námskeiðin. „Við
ætlum að leggja áherslu á raunhæf verk-
efni og færa námsefnið þannig nær raun-
verulegum aðstæðum úti í sveitarfélögun-
um." Jafnframt segir hún spennandi við
námskeiðahaldið nú að notast verður við
fjarfundabúnað þannig að námskeiðin eru
í haldin samtímis á nokkrum stöðum á
landinu.
Einvalalið til aðstoðar
Sviðsstjórar sambandsins hafa séð um
undirbúning og skipulagningu námskeið-
anna, undir stjórn Önnu Guðrúnar, og
með aðstoð þeirra Þorvarðar Hjaltasonar,
framkvæmdastjóra Sambands sunnlenskra
sveitarfélaga, Péturs Þórs Jónassonar, fram-
kvæmdastjóra Eyþings, og dr. Gunnars
Helga Kristinssonar prófessors.
Leiðbeinendur og umsjónarmenn á
hverjum stað verða:
• Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundar-
fjarðarbæjar
• Helga Jónsdóttir, borgarritari Reykjavík-
urborgar
• Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
ísafjarðarbæjar
• Sigríður Stefánsdóttir, sviðsstjóri þjón-
ustusviðs Akureyrarkaupstaðar
• Smári Geirsson, bæjarful Itrúi í Fjarða-
byggð
• Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri
Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
Þeir sérfræðingar sem flytja munu fyrir-
lestra eru:
• Gunnar Helgi Kristinsson prófessor, um
stjórnsýslustigin á íslandi og tilgang
sveitarstjórnarstigsins
• Sigurður Óli Kolbeinsson, sviðsstjóri
lögfræðisviðs sambandsins, um stjórn-
skipunarlega stöðu sveitarfélaga og
lagalega umgjörð
• Runólfur Smári Steinþórsson dósent, um
stefnumótandi hlutverk sveitarstjórna
• Karl Björnsson, sviðsstjóri kjarasviðs
sambandsins, um vinnuveitendahlutverk
sveitarstjórna
• Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri hag-
og upplýsingasviðs sambandsins, um
fjármálastjórn sveitarfélaga.
Námskeiðin verða haldin sem hér
segir:
15.-16. febrúar, á svæði:
• Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
• Fjórðungssambands Vestfirðinga
• Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum
• Sambands sveitarfélaga í Austurlands-
kjördæmi
• Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
22.-23. febrúar, á svæði:
• Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu
• Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjör-
dæmi
• Samtaka sveitarfélaga í Norðurlands-
kjördæmi vestra
• Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum
• Sambands sveitarfélaga í Austurlands-
kjördæmi
• Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
Landshlutasamtök sveitarfélaga munu
sjá um skráningu á námskeiðin og fram-
kvæmd þeirra á hverjum stað. Væntanleg-
um þátttakendum er bent á að snúa sér til
þeirra til að skrá sig og til að fá upplýsing-
ar um nánari staðsetningu námskeiðanna.
Námsskeiðsgjald er kr. 20.000. Innifalið í
því eru námsgögn, kaffiveitingar og há-
degisverðir á laugardegi og sunnudegi.
Staða, hlutverk og ábyrgð
sveitarstjórnarmanna
Námskeiðin verða öllum opin en við und-
irbúning þeirra hefur verið tekið mið af
stöðu kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum.
Anna Guðrún segir fleiri en nýtt fólk í
sveitarstjórnum geta haft gagn af nám-
skeiðinu, bæði sveitarstjórnarmenn, sem
starfað hafa í sveitarstjórnum í einhvern
tíma, og aðra stjórnendur sveitarfélaga.
Námsefnið er nýtt miðað við það sem ver-
ið hefur á fyrri námskeiðum.
„Námskeiðið er sett upp fyrst og fremst
með þarfir kjörinna fulltrúa í huga en get-
ur auðvitað nýst fleirum en nýju fólki í
sveitarstjórnum," segir Anna Guðrún.
„Hluti námsefnisins snýst um grunnþætti í
starfi sveitarstjórnarmanna, þar sem farið
er yfir lagaramma sem sveitarfélögin starfa
eftir, stjórnkerfi sveitarfélaga og fleira sem
því tengist. Nýjar áherslur verða í því
hvernig fjallað er um hlutverk sveitar-
stjórnarmanna og sveitarfélaganna. Þar
verður meðal annars lögð áhersla á það
svigrúm sem sveitarstjórnarmenn hafa til
að móta hlutverk sitt og þá stefnu sem
þeir vilja leggja megináherslu á í starfi
sínu og það svigrúm sem sveitarfélögin
sjálf hafa til stefnumótunar og til að haga
stjórnsýslu sinni með hliðsjón af stað-
bundnum aðstæðum."
Ætlunin er, að sögn Önnu Guðrúnar,
að meta hvernig til hefur tekist þegar
námskeiðunum er lokið og ákveða með
hliðsjón af þvf hvort þeim verður fylgt eftir
að einhverju leyti og þá hvernig. Þar
kæmi til dæmis til greina að halda sér-
námskeið á ákveðnum sviðum en það
veltur að sjálfsögðu á áhuga og þátttöku.
Anna Guðrún Björnsdóttir.
15