Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Page 16
Reykjavíkurborg
Styrkur höfuðborgarinnar
hefur afgerandi áhrif á lífskjör í landinu
Reykjavíkurborg er höfuðborg. Hún er þungamiðja þeirrar byggðar sem jafnan er nefnd höfuð-
borgarsvæðið; búsvæði yfir helmings landsmanna. Hún rekur öflug fyrirtæki. Hún hýsir stjórn-
arstofnanir og veitir bæði Reykvíkingum og öðrum landsmönnum margvíslega þjónustu.
Reykjavík á einnig í beinni samkeppni um fólk og fjármagn við borgarsvæði í öðrum löndum.
Hvert er hlutverk Reykjavíkur sem sveitarfélags og höfuðborgar í upphafi nýrrar aldar? Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ræðir um það og annað í viðtali við Sveitarstjórnarmál.
Rétt er að taka fram að viðtalið
var tekið rétt áður en sú at-
burðarás sem leiddi til afsagnar
lngibjargar Sólrúnar hófst. Engu
að síður þykir rétt að birta við-
talið því umfjöllun sveitarstjórn-
armála snýst um Reykjavíkur-
borg sem sveitarfélag og starf-
semi borgarinnar í þágu íbú-
anna en ekki um fléttur í heimi
stjórnmálanna. Væntanleg borg-
arstjóraskipti og þeir atburðir
sem þeim tengjast eru því ekki
til umfjöllunar í viðtalinu.
Aðeins ein borg
Borgarstjóri segir það eitt meg-
ineinkenni íslenskra byggða-
mála að aðeins ein borg er í
landinu. Það skapi Reykjavíkur-
borg meiri sérstöðu en annars
og geri auknar kröfur til hennar.
Borgin gegni tvíþættu hlutverki;
annars vegar að vera höfuðborg
allra landsmanna en hins vegar
sveitarfélag þeirra sem þar búa.
Málin myndu horfa nokkuð
öðru vísi við ef hér væru að
minnsta kosti tvær borgir eða
sveitarfélög af sambærilegri
stærð og Reykjavíkurborg. Með því móti yrði meira jafnvægi í
byggð landsins. Ingibjörg Sólrún segir að Reykjavík sé ekki sam-
anburðarhæf við önnur sveitarfélög og leita verði út fyrir land-
steinana til þess að finna slík-
an samanburð.
„Ég er þeirrar skoöunar að borgir séu ákveönir aflgjafar í efnahagskerfi þessarar
aldar. Þær bafa alltaf skipt máli aö þvf leyti og í framtíöinni munu þær hafa
enn stærra hlutverki aö gegna," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
Reykjavíkurborgar.
einvörðungu máli fyrir íbúa
borgarinnar heldur fyrir allt at-
vinnu- og efnahagslíf lands-
manna. Starfsemi Reykjavíkur-
borgar snertir mun fleiri svið en
starfsemi annarra sveitarfélaga
og það skapar henni sérstöðu,"
segir Ingibjörg Sólrún. „Borgin
er af þessum sökum svolítið ríki
í ríkinu."
Hún nefnir sem dæmi að
þegar talað sé um skuldir
Reykjavíkurborgar og þær born-
ar hlutfallslega saman við skuld-
ir annarra sveitarfélaga þá sé
verið að tala um skuldir vegna
allrar starfsemi borgarinnar og
fyrirtækja hennar en ekki ein-
vörðungu skuldir borgarsjóðs.
„Við getum nefnt til dæmis
Garðabæ til samanburðar. Það
er ungt sveitarfélag sem hefur
þróast sem nokkurs konar út-
hverfi og rekur einn bæjarsjóð.
Það er mjög erfitt að bera sveit-
arfélag af þeirri gerð saman við
Reykjavíkurborg. Það yrði eins
og að bera saman vínber og
appelsínu. Munurinn er svo
mikill."
„Starfsemi Reykjavíkurborgar snertir mun fleiri
svið en starfsemi annarra sveitarfélaga og það
skapar henni sérstöðu."
Vínber og appelsína
„Fyrir utan að vera langfjöl-
mennasta sveitarfélag á land-
inu og hýsa mjög fjölbreytta
þjónustu, sem flestir landsmenn sækja og njóta, á borgin og rekur
stór fyrirtæki. Hún á 45% hluta í Landsvirkjun og rekur Orku-
veitu Reykjavíkur og Reykjavíkurhöfn. Þessi fyrirtæki skipta ekki
Tvíþætt hlutverk
„Þetta tvíþætta hlutverk borgarinnar skapar henni ákveðinn styrk
en felur einnig í sér nokkra erfiðleika. Starfsemi Reykjavíkurborg-
ar snertir mun fleiri svið en
annarra sveitarfélaga og það
skapar henni sérstöðu. Hvað
gerist í höfuðborginni skiptir
______________________________ landsmenn gjarnan meira máli
en það sem um er að vera í
öðrum sveitarfélögum. Þá
ábyrgð verða borgaryfirvöld að axla á hverjum tíma jafnframt því
sem þau verða að líta á borgina sem venjulegt sveitarfélag sem
þarf að veita íbúunum þá þjónustu sem sveitarfélögum ber að
16 ------