Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Síða 24

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Síða 24
„Ég sá bæinn í nýju Ijósi þegar ég fór aö starfa að bæjarmálunum," segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri. - Mynd: Haraldur Ingólfsson. bæinn í nýju Ijósi „Ég hef velt því fyrir mér í gegnum árin hverjar geti verið ástæður þess að konur eru tregari til að gefa kost á sér í stjórnmál en karlar - af hverju við þurfum séraðgerðir og „átaksverkefni" en ég þurfti ekki langa umhugsun þegar leitað var til mín; ég fann að þetta var eitthvað sem mig langaði til að takast á við," segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri. Sigrún tók sæti í bæjarstjórn Akureyrar- kaupstaðar að loknum sveitarstjórnarkosn- ingum í fyrra. Sigrún er ættuð af Suður- nesjum, dóttir Jakobs Árnasonar, fyrrum byggingameistara og síðar loðdýrabónda og pelsaframleiðanda í Reykjanesbæ. Þeg- ar hún ákvað að gefa kost á sér til þátt- töku í sveitarstjórnarmálum hafði hún búið á Akureyri frá árinu 1997 auk þess að hafa dvalið þar og starfað að ferðamál- um á árunum 1992 og 1993. Sigrún er menntuð í hótelrekstri og ferðamálum og hefur unnið hjá ráðgjafarfyrirtækinu PricewaterhouseCoopers undanfarin ár við gæðaflokkun gististaða. Konur og kynjakvóti Sigrún kvaðst í spjalli við Sveitarstjórnar- mál hafa alist upp við áhuga á þjóðmál- um. Rætt hafi verið um pólitík og sveitar- stjórnarmál á bernskuheimili hennar en þó hafi hún lengi vel ekki hugs- að um að fara sjálf út í stjórn- málastörf. Eftir að hún fluttist til Akureyrar öðru sinni hóf hún nám í nútímafræðum við Há- skólann á Akureyri og vann þá meðal annars verkefni um kosti og galla kynjakvóta í stjórnmál- um. Hún segir að þar liggi vendipunktur þess að hún er nú tekin til starfa sem bæj- arfulltrúi. „Ég var búin að hugsa mikið um ástæð- ur þess af hverju konur væru tregari til að gefa kost á sér í stjórnmál en karlar. Lausnin felst ekki í kvótum heldur miklu fremur félagsmótun stelpna og stráka. Ég held að við þurfum að byrja nógu snemma og auðvitað á það að vera sjálf- sagður hlutur að karlar og konur skipti með sér verkum - bæði í stjórnmálum og annars staðar. Það á ekki að þurfa kvóta eða aðrar leiðir. Við þurfum líka að skoða aðgengi fólks að flokksstarfinu og hvernig flokkarnir geta laðað að fleiri konur og karla. En ég þurfti ekki langa umhugsun þegar haft var samband við mig á síðasta vetri og ég spurð hvort ég væri til í að fara á framboðslista hjá Sjálfstæðisflokknum, ég fann að þetta var eitthvað sem mig langaði til að takast á við." Bæjarmálaumræða á förnum vegi Sigrún segir að því miður virðist áhugi á stjórnmálum almennt fara minnkandi. Færra af yngra fólki kjósi að starfa að þeim en verið hafi. Það virðist ekki sjá til- gang með því en Sigrún segir það viðhorf einkennilegt þar sem verið sé að taka ákvarðanir sem óneitanlega snerta daglegt líf þess og framtíðina. Opinber stjórnmála- umræða sé heldur ekki mikil. Hún fari einkum fram á Netinu þar sem fólk skrifi jafnvel undir dulnefnum. Þetta áhugaleysi komi fram með ýmsu móti. Fólk sæki al- menna bæjarmálafundi bæjarmálafélaga stjórnmálaflokkanna ekki mikið og fáir mæti í viðtalstíma hjá bæjarfulltrúum þótt þar gefist kjörið tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Hún telur að fólk ræði bæjarmálin engu að síður mikið sín á milli og hafi skoðanir. Sú um- ræða fari hins vegar ekki fram með opin- beru móti heldur í kaffitímum, á götu- hornum og annars staðar þar sem fólk hittist á förnum vegi. „Það var hins vegar mjög skemmtilegur hluti af kosningabar- áttunni að fara á fundi og heimsóknir í fyrirtæki og ræða þar bæjarmálin." Sá bæinn í nýju Ijósi Sigrún segir að innkoman í bæjarmálin hafi jafnast svolít- ið á við að vera hent í djúpu laugina. Alvaran hafi tekið við. Hún segir að fyrsta árið fari að miklu leyti í að kynna sér málin, afla sér reynslu og ná tökum á viðfangsefninu. „Ég sá bæinn í nýju Ijósi þegar ég fór að starfa að bæjarmálunum. Rekstur sveitar- félags á borð við Akureyrarbæ er mjög flókinn og nær inn á mörg svið. Þetta kemur gleggst fram þegar verið er að „Fjármagnið verður að fylgja verkefnunum. Sveit- arfélögin geta ekki endalaust dregið af fram- kvæmdafé til þess að sinna fastbundnum rekstrar- verkefnum. Hvað þá að safna skuldum." 24

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.