Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Síða 25

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Síða 25
semja fjárhagsáætlun bæjarfélagsins. Ég hafði ekki ímyndað mér hversu víðfemt þetta er." Bæjarfélag á stærð við Akureyri, sem er þjónustukjarni þarf að halda upp mikilli þjónustu sem nágrannasveitarfélögin geta þá sparað sér. Sigrún segir að þótt nýta verði stærsta hluta tekna sveitarfélaga til lögboðinna rekstrarverkefna á borð við grunnskóla og margvíslega aðra þjónustu þá sé erfiðast við fjár- lagagerðina að raða verkefnum í for- gang. „Þörfin er svo víða fyrir hendi." Fjármagnið fylgi verkefnunum Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri. Talið beinist að þeim verkefnum sem Akureyrarbær hefur tekið að sér sem reynslusveitarfélag. Sigrún segir það skoðun sína að halda eigi áfram á þeirri braut. Reynslan af því að taka þessi verkefni heim í hérað sé góð og tæpast heyrist raddir um að senda þau til baka. Vandinn sé hins vegar sá að tekju- möguleikar hafi ekki fylgt verkefnum í nægilegum mæli og þann þátt verði að taka til endurskoðunar þegar reynslusveit- arfélagsverkefnin verða útfærð frekar. „Fjármagnið verður að fylgja verkefnun- um. Sveitarfélögin geta ekki endalaust dregið af framkvæmdafé til þess að sinna fastbundnum rekstrarverkefnum. Hvað þá að safna skuldum." Sigrún telur nauðsynlegt að verkaskipt- ing ríkis og sveitarfélaga sé einföld og skýr. „Þarna er um gjörólíka málaflokka að ræða. Sveitarfélögin eru að annast mál- efni sem snerta hið daglega líf fólks á meðan ríkisvaldið tekst á við stærri og víðari svið." Sigrún segir að sveitarstjórn- armálin megi þó aldrei verða uppáþrengj- Sigrún kveðst hafa velt þeim mögu- leikum fyrir sér á hvern hátt megi efla sveitarfélögin. Sameining þeirra í stærri einingar sé vissulega einn þátt- ur þess og eitt af því sem komi til greina fyrir Eyjafjarðarsvæðið. Menn verði þó að gæta þess að minni staðir innan víðfeðmara sveitarfélags missi ekki alla þjónustu. Hún nefnir Sveitar- félagið Árborg sem dæmi þar sem íbúarnir telji sig hafa séð á eftir þjón- ustu inn í stærsta þéttbýliskjarnann. Þetta bendir hún á að komi fram í rannsókn Rannsóknastofnunar Há- skólans á Akureyri á sameiningu sveitarfélaga. í niðurstöðum hennar komi bæði fram kostir og gallar og einkum við- horf fólksins í þessum byggðum. Niður- stöður rannsóknarinnar megi þó ekki draga kjarkinn úr sveitarstjórnarmönnum eða öðrum til að fást við sameiningarmál- in heldur verði að draga lærdóm af þeim og reyna að bæta um betur. andi fyrir almenning eða að sveitarfé- lög fari að taka ákvarðanir um hvert smáatriði. Sveitarfélögin séu fyrst og fremst til að veita íbúunum þjónustu. Lærdómur í sameiningar- skýrslunni Um 460 dagmæður hér á landi Allt að 2.400 börn eru í daggæslu í heimahúsum hjá um 460 dagmæðrum hér á landi en nokkuð er um að dagmæður taki of mörg börn til gæslu og einnig vantar nokkuð á að þær hafi lokið tilskildu námskeiði til að öðlast starfsréttindi. Þetta kemur fram í könnun sem félagsmálaráðuneytið lét gera í öllum sveitarfélögum með yfir 1.000 íbúa í desember 2001. Flestar dagmæður starfa á höfuðborgarsvæðinu og þar eru einnig hlutfallslega flest börn í gæslu ef miðað er við fjölda barna á aldrinum frá fæðingu til fimm ára. Dagmæður starfa í umboði sveitarfélaganna og veita félags- málanefndir þeirra leyfi til daggæslu barna í heimahúsum. Dag- mæður þurfa að leggja fram ýmis gögn og uppfylla ákveðin skilyrði áður en leyfi til daggæslu er veitt. Eitt þeirra er að þær hafi lokið sérstöku námskeiði. Um 76% starfandi dagmæðra höfðu lokið námskeiðinu í lok ársins 2001 að því er fram kem- ur í könnuninni. Þá kemur einnig fram í könnunni að algengasti dvalartími barna hjá dagmæðrum er á milli klukkan 8.00 og 16.00 á dag- inn en dæmi má einnig finna um lengri dvalartíma. Ákveðnar reglur gilda um þann fjölda barna sem hver dagmóðir má hafa í gæslu en nokkuð var um að of mörg börn væru hjá dagmæðr- um, einkum fyrir hádegi. Alls höfðu 149 dagmæður of mörg börn á einhverjum tíma dagsins og reyndust 216 börn vera um- fram leyfilegan fjölda barna í daggæslu á einhverjum tíma dags- ins en það eru um 9% af heildarfjölda. ----- 25

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.