Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Síða 29

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Síða 29
Forvarnamál Forvarnaverkefni ýtt úr vör Mikilvægt er að forvarnastarf miðist við þær aðstæður sem eru á hverjum stað og að stuðst verði við mannauð og félagsleg úrræði sem fyrir hendi eru, segir Þórólfur Þórlindsson, prófessor og formaður Áfengis- og vímuvarnaráðs í tilefni þess að forvarnaverkefni ráðsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga er hefjast. Nýskipuð stjórn verkefnisins er að hefja störf en á haustdögum var undirritaður samningur milli Áfengis- og vímuvarna- ráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga um að verja 5,5 milljónum króna til vímu- varna á árunum 2003 til 2005. Fyrstu verk stjórnarinnar munu verða að skipuleggja starfsaðferðir í samræmi við hvað hentar best á hverjum stað og tíma og finna verk- efnum forgangsröð. Þórólfur Þórlindsson, prófessor og formaður Áfengis- og vímu- efnaráðs, og Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri ráðsins, segja miklu skipta að verkefnið verið unnið út frá for- sendum og úrræðum á hverjum stað og í náinni samvinnu við fólk á heimavelli þess. Þau segja vænlegast til árangurs að nýta innviði nærsamfélagsins og grasrótar- starf sem best í þessum efnum. Þau telja gott samstarf við sveitarfélög í landinu nauðsynlegt til að vímuvarnir takist vel. Vonir standa til að þau sveitarfélög sem hafa bol- magn til muni leggja eitthvað af mörkum á móti framlagi hins opinbera og Sambands ís- lenskra sveitarfélaga til þess að skapa sem öflugast starf í sem flestum byggðarlögum. Félagslegt aðhald - fé- lagsleg færni - félags- legur auður Þórólfur segir að samfélög setji ákveðinn félagslegan ramma sem skapi aðhald og festu. Sem dæmi um slíkan ramma megi nefna útivistartíma barna og ungmenna og einnig umgjörð um starfsemi veitingastaða. Mikilvægt sé að hafa í huga að þær félagslegu og uppeldis- legu aðstæður sem ungt fólk býr við ráði miklu um hve vel þau ráða við ýmis vandamál daglegs lífs. Hann segir að aðstæður ung- menna að þessu leyti geti haft mikil áhrif á hvaða stefnu þau taka í lífinu. Þá sé samfélagins, taka mið af þeirri umgjörð sem ungmennum og öðrum íbúum er búin í daglegum lifnaðarháttum og einnig aðstæðum þeirra til uppeldis og þroska. Nýta þurfi félagsstarf og önnur félagsleg samskipti til þess að byggja upp varnir gegn vímuefnum. f forvarnastarfinu sé ekki til nein ein aðferð eða heildarlausn sem henti öllum. Nánast verði að klæð- skerasauma slíkt starf svo að það hæfi stað og tíma. Gerbreytt umgengni við áfengi Þorgerður og Þórólfur benda á að miklar breytingar hafi orðið á aðstæðum til vímu- varna hér á landi á undanförum árum. „Annars vegar er beitt ýmsum aðgerðum sem miða að því að draga úr áhuga fólks á að neyta vímuefna. Hins vegar gildir lagarammi til að draga úr aðgengi ung- linga að áfengi og vímuefnum," segja þau. Samkvæmt núgildandi lagaramma eru öll vímuefni önn- ur en áfengi ólögleg, aðgengi að áfengi er takmarkað með tak- mörkuðum fjölda útsölustaða áfengis, aldurstakmörkum, háu verðlagi og auglýsingabanni. Undanfarið hefur þó verið að slakna á þessum ramma, til dæmis með því að rýmka lög um verslun með áfengi þannig að útsölustöðum og vínveitinga- leyfum hefur fjölgað mjög. Aug- lýsingabann er virt að vettugi. Þá virðast hugmyndir um að leyfa verslun með bjór og léttvín í matvöruverslunum eiga tölu- verðu fylgi að fagna. Almennt er viðurkennt og sýnt fram á með vísindalegum rökum að breyt- ingar sem þessar auka neyslu vímuefna í samfélaginu. „Það er greinilegt að ef þær forvarnir sem felast í lagaramma verða rýmkaðar frekar þarf að herða á annars konar for- vörnum. Nauðsynlegt er að búa sig undir það og miða vímuvarnir framtíðarinnar Þórólfur Þórlindsson, formaður Áfengis- og vímu- varnaráðs, og Þorgerður Ragnarsdóttir fram- kvæmdastjóri. Mikilvægt er að hafa í huga að þær félagslegu og uppeldislegu aðstæður sem ungt fólk býr við ráða miklu um hve vel þau ráða við ýmis vandamál daglegs Með því að beina áfengi og öðrum vímuefnum til ungmenna með þaulskipulögðum hætti er verið að búa til nýja neytendur, viðhalda markaðinum og víkka hann út. einnig nauðsynlegt að nýta þann félags- lega auð, sem finna megi í nærsamfélag- inu. Þorgerður og Þórólfur segja mikilvægt að tengja forvarnastarfið þessum þáttum 29

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.