Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2003, Síða 28

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2003, Síða 28
Fjórðungssamband Vestfirðinga Hugað að fjölgun verkefna Fjórðungssamband Vestfirðinga (FSV) hefur verið rekið sem samstarfsvettvangur sveitarfélag- anna í fjórðungnum og hagsmunasamtök þeirra um árabil. Nú er hins vegar áformað að fjölga verkefnum þess, meðal annars með sérþjónustu við fatlaða. Tildrög Fjórðungssambands Vestfirðinga má rekja aftur um rúma hálfa öld er sýslu- nefnd Norður-ísafjarðarsýslu samþykkti árið 1948 tillögu þess efnis að tímabært væri að stofna fjórðungssamband á Vest- fjörðum svipaðs eðlis og stofnuð höfðu verið á Norðurlandi og Austurlandi. Tillög- unni var hrint í fram- kvæmd og stofnfund- ur haldinn á ísafirði 8. nóvember 1949. Ingimar Halldórsson, framkvæmdastjóri FSV, segir að sumir viljileita kvekjunnar að því mun lengra aft- ur, eða allt aftur til ár- anna 1848-1896 er Vestfirðingar komu reglulega saman til funda í Þorskafirði að ræða sameiginleg málefni landshlutans. Þessir fundir voru kallaðir Kollabúða- fundir og segir Lúðvík Kristjánsson sagn- fræðingur þá hafa verið einhverjar athygl- isverðustu samkomur hér á landi á 19. öldinni. Þeir hafi borið vott um pólitískan þroska og samheldni Vestfirðinga á endur- reisnartímanum þegar þörfin fyrir að menn kúrðu ekki hver í sínu horni hafi verið hvað brýnust. Málefni fatlaðra og starfsemi atvinnuþróunarfélags Sýslurnar voru í upphafi grunn- einingar Fjórðungssambands Vestfirðinga en í dag er sam- bandið samstarfsvettvangur sveitarfélaganna í fjórðungnum. Ingimar segir að nú sé hins vegar áformað að fjölga verk- efnum þess, meðal annars með því að samtökin taki að sér málefni fatl- aðra áVestfjörðum með líkum hætti og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa gert. Hann segir málið vera til athug- unar hjá félagsmálaráðuneytinu og vænt- anlega muni verða gengið til samninga við ráðuneytið. Einnig hefur komið til um- ræðu að tengja starfsemi Atvinnuþróunar- félags Vestfjarða við starf Fjórðungssam- bandsins eins og gert er á Vesturlandi en sveitarfélögin áVestfjörðum hafa lagt At- vinnuþróunarfélaginu lið í gegnum það. Þróunarsetur starfar á vegum Atvinnuþró- unarfélagins og þar hafa á annan tug stofnana eða fyrirtækja aðstöðu fyrir starfs- stöðvar. Menningarsamningur í undirbúningi Nú er unnið að undirbúningi að gerð menningarsamnings á milli Fjórðungs- sambands Vestfirðinga og ríkisins. Ingi- mar segir að Vestfirðingar hyggist ná sambærilegum samningi og gerður var við sveitarfélög á Austurlandi á sínum tíma. Hann kveðst vongóður um að mál- ið nái í höfn innan skamms og að upp- byggingin fari síðan fram í áföngum líkt og fyrir austan. Hugmyndin sé að nýta möguleika menningarsamningsins á ýms- um stöðum á Vestfjörðum og leggja sér- staka áherslu á að áhrifa hans gæti bæði á norður- og suðurhluta svæðisins. Byggðahlutarnir eigi einnig auðveldara um meira samstarf þegar kominn verði heilsársvegur á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar en jarðgöng undir Hrafnseyrarheiði eru komin inn á vegaáætlun að loknum fram- kvæmdum við jarðgöng fyrir aust- an og norðan. Ingimar segir að með þeirri fram- kvæmd verði veru- legum farartálma rutt úr vegi en talið sé að lagfæra megi veginn um Dynjandisheiði þannig að auðvelt verði að halda honum opnum um vetrar- tímann. Fólksfækkunin áhyggjuefni Á fjórðungsþingi á liðnu hausti var fjallað sérstaklega um sjávarútvegsmál. í ályktun þingsins er bent á að Vestfirðingar hafi tapað þúsundum tonna í þorskígildum á undanförnum árum. Ingimar segir að Fjórðungssambandið hafi ekki komið að fiskveiðimálunum með bein- um hætti öðrum en þeim að fjórðungsþingin hafi ályktað um ástand mála út frá at- vinnu- og byggðasjónarmið- um. Stærsta áhyggjuefni sveit- arstjórnarmanna á Vestfjörð- um sé hversu íbúum hafi fækkað á undanförnum árum og því miður virðist ekki sjá fyrir endann á þeirri þróun. Að hve miklu leyti rekja megi hana til sjávarútvegsmála sé umdeil- anlegt en benda megi á að bæði fólk og veiðiheimildir hafi farið frá Vestfjörðum á undanförnum árum. Sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum skipuðu starfs- hóp til að semja byggðaáætlun fyrir Vestfirði. Ár- angur þess varð sá að Vestfirðir voru teknir með í byggðaáætlun landsstjórnarinnar og ísafjarðarbær skilgreindur sem eitt af kjarnabúsvæðum landsins. 28

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.