Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2003, Blaðsíða 30

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2003, Blaðsíða 30
Fulltrúaráðsfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga Sameining með hliðsjón af aðstæðum Fulltrúaráð Sambands íslenskra sveitarfélaga leggur áherslu á að stærri sveitarfélög myndi heildstæð atvinnu- og þjónustusvæði. Þetta kemur fram í ályktun fulltrúaráðsfundar sambands- ins um sérstakt átak í sameiningu sveitarfélaga. í ályktun fulltrúaráðsfundar Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, sem var haldinn 7. apríl síðastliðinn, er lagt til að hafið verði sérstakt átak í sameiningarmálum sveitar- félaga. Einnig er lagt til að hafin verði skipulögð og markviss vinna við undir- búning að framkvæmdum á fyrri sam- þykktum fulltrúaráðsins og samþykkt síð- asta landsþings þess um eflingu sveitarfé- laganna. Fulltrúaráðið leggur til að Sam- band íslenskra sveitarfélaga taki upp við- ræður við nýja ríkisstjórn að loknum al- þingiskosningum um að hafin verði vinna við málið og að undirbúningsstjórn um nýja skipan sveitarfélaganna verði komið leitað leiða til þess að tryggja rétt sveitar- stjórna til að hafna þátttöku í atkvæða- greiðslu um sameiningu sveitarfélaga á viðkomandi kjörsvæðum. Heildarendurskoðun á hlutverki Jöfnunarsjóðs Þá leggur fulltrúaráðið til að framlög Jöfn- unarsjóðs vegna sameiningar miðist fyrst og fremst við að sveitarfélög myndi heild- stæð atvinnu- og þjónustusvæði á meðan átak um sameiningu stendur yfir. Fulltrúa- ráðið leggur einnig til að fram fari heildar- endurskoðun á öllu reglulegu hlutverki sjóðsins þar sem Ijóst sé að fækkun sveit- Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hlýða á erindi Þórðar Skúlasonar á fulltrúaráðs- fundinum. á fót fyrir mitt yfirstandandi ár. í ályktun- inni segir að undirbúningsnefndin skuli leggja fram hugmyndir um það hvaða verkefni megi hugsanlega færa frá ríki til sveitarfélaga til að treysta sveitarstjórnar- stigið og sjálfsforræði byggðarlaganna þar sem skýr verkaskipting og tryggir tekju- stofnar verði höfð að leiðarljósi. Réttur til að hafna Fulltrúaráðið vill að á haustþingi verði sett lög um átak í sameiningu sveitarfélaga er hafi tímabundið gildi. Þar verði kveðið á um stofnun sérstakrar verkefnisstjórnar rík- is og sveitarfélaga um nýja sveitarfélaga- skipan. Fagt er til að með þeim lögum megi taka tilteknar greinar sveitarstjórnar- laga tímabundið úr sambandi (90. og 91 ,gr.) og að samhliða framkvæmd til- lagna um sameiningu sveitarfélaga verði arfélaga og stækkun þeirra leiði til grund- vallarbreytinga á jöfnunaraðgerðum. Atkvæðag reiðsla fyrir lok mars 2005 Fulltrúaráðið leggur til að hlutaðeigandi sveitarstjórnir taki tillögur væntanlegrar verkefnisstjórnar um breytta skipan sveit- arfélaga til umfjöllunar, hlutist til um kynningu og umræðu um þær á meðal íbúa í samráði við verkefnisstjórn og að greidd verði atkvæði um þær fyrir lok marsmánaðar árið 2005. Fulltrúaráðið tel- ur að það eigi að vera sameiginlegt mark- mið allra sveitarstjórna að efla sveitar- stjórnarstigið og að sveitarstjórnir gegni þýðingarmiklu hlutverki í framkvæmd þessa sérstaka átaks í sameiningarmálum. Atvinnu-, þjónustu- og samgöngusvæði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði í setningarræðu sinni á fulltrúaráðsfundin- um að fram til þessa hafi þeirri lýðræðis- legu aðferð verið beitt að niðurstaða at- kvæðagreiðslu í hverju einstöku sveitarfé- lagi hafi ráðið úrslitum um það hvort hlut- aðeigandi sveitarfélag sameinaðist öðru eða öðrum sveitarfélögum. En þegar menn velti fyrir sér öðrum leiðum en farnar hafa verið til þess að sameina sveitarfélögin í þeim tilgangi að efla og styrkja sveitar- stjórnarstigið komi vissulega fleiri leiðir til greina. Hann nefndi í því efni breytingu á kosningafyrirkomulagi þannig að meiri- hlutavilji eða aukinn meirihluti allra íbúa á því svæði sem sameiningartillaga taki til ráði niðurstöðu atkvæðagreiðslu, að lág- marksíbúafjöldi verði hækkaður úr 50 íbú- um og að fulltrúar ríkis og sveitarfélaga geri tillögur um breytta skipan sveitarfé- laga í landinu öllu með hliðsjón af sam- göngum og atvinnu- og þjónustusvæðum. „Sú tillaga sem nú liggur fyrir þessum fundi tekur mið af þeirri hugmynd sem ég nefndi fyrst til sögunnar. Ég tel það skyldu okkar sveitarstjórnarmanna að hafa frum- kvæði og forystu í þessu þýðingarmikla máli og leita þeirra leiða sem mest sátt getur orðið um án þess að missa sjónar á meginmarkmiðinu. Ef við gerum það ekki er næsta víst að löggjafarvaldið telji sig þurfa að hafa forystu í þessu máli og leiti einhverra leiða, sennilega að hækka lág- marksíbúatöluna. Að minni hyggju tekur sú leið ekki á þeirri hugsun, sem fram hef- ur komið í ályktunum fulltrúaráðsins og landsþings sambandsins, það er að hvert sveitarfélag myndi heildstætt atvinnu-, þjónustu- og samgöngusvæði," sagði Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson. Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, flutti ítarlegt erindi um sameiningarmálið á fundinum og fjallaði meðal annars um verkefni sem eflt sveitarstjórnarstig geti tekið að sér. 30 ------

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.