Sveitarstjórnarmál - 01.09.2003, Síða 26
Trevor Adams, framkvæmdastjóri
nýrra verkefna hjá Alcoa. „Mark-
miö okkar er ávallt að ganga
lengra í umhverfisvernd en staðlar
segja til um."
Álver í Reyðarfirði
Leggjum áherslu á að skilja
sjónarmið heimamanna
Álver Alcoa í Reyðarfirði, Fjarðaál, mun hafa mikil og jákvæð áhrif á atvinnulíf á Austurlandi.
Trevor Adams, sem hefur yfirumsjón með framkvæmdum Alcoa á íslandi, segir að fyrirtækið
leggi mikið upp úr því að eiga gott samstarf við íbúa á svæðinu.
Trevor er 47 ára Ástrali og er framkvæmdastjóri nýrra verkefna
hjá Alcoa. Hann er málmtæknifræðingur að mennt og hefur starf-
að hjá Alcoa frá árinu 1978. Trevor hefur tekið þátt í fjölda verk-
efna á vegum fyrirtækisins víða um lönd, meðal annars var hann
lengi yfirmaður álvers Alcoa í Portland í Ástralíu.
- Mikið hefur verið rætt um atvinrtumál í tengslum við rekstur
álversins. Hvernig hafið þið hugsað ykkur að standa að því að
ráða og þjálfa fólk til starfa í álverinu?
„Aðstoðarforstjóri Alcoa, Richard Kelson, sagði nýlega í blaða-
viðtali að við væntum þess að álverið verði „íslenskt álver" og að
meirihluti starfsmanna þar verði íslendingar. Að þessu markmiði
stefnum við. í upphafi munu sérfræðingar Alcoa frá mismunandi
löndum aðstoða við að koma framleiðslunni í gang og Ijóst er að
það mun taka þá nokkurn tíma að þjálfa upp íslenska starfsmenn.
Fyrst eftir að álverið tekur til starfa má búast við að erlendir sér-
fræðingar Alcoa muni verða allt að 10% starfsmanna. Eftir fyrsta
hálfa árið, sem er um það bil sá tími sem tekur fyrir álver af þess-
ari stærðargráðu að verða að fullu starfhæft, mun þeim hins veg-
ar fækka verulega og verða þá varla fleiri en 5-6. Stærstur hluti
þjálfunarinnar mun fara fram hér á landi en þjálfun vegna flók-
inna og mjög sérhæfðra starfa mun fara fram í álverum okkar og
starfsstöðum um víða veröld. Þjálfun starfsmanna verður í raun
fastur hluti af starfseminni og við verðum sífellt að leita nýrra
leiða í þessu sambandi til að tryggja samkeppnishæfni álversins."
- Sumir hafa látið í Ijós áhyggjur af því að umfang fram-
kvæmdanna á Austurlandi muni leiða til þess að erfitt verði fyrir
ykkur að fá nægjanlegt vinnuafl þegar bygging álversins hefst?
„Það gæti skapað vandamál ef framboð af vinnuafli verður
minna en við höfum gert okkur vonir um á byggingartímanum.
Sem betur fer höfum við góðan tíma til að skipuleggja starfsem-
ina og munum á næstunni, í samstarfi við þá verktaka sem við
höfum samið við, leita samstarfs við verkalýðsfélög og ýmsar
stofnanir til að stuðla að því að það fáist nægt vinnuafl til verks-
ins. Við munum að sjálfsögðu leitast við að tryggja að vinnuaflið
verði fyrst og fremst innlent. Það er á þessari stundu mjög erfitt
að segja til um hversu margir starfsmenn munu vinna við bygg-
ingu Fjarðaáls en ég á von á því að þeir verði innan við 1.500
talsins. Við leggjum mikla áherslu á að geta tryggt öryggi starfs-
manna á framkvæmdasvæðinu og því viljum við reyna að halda
fjölda þeirra á hverjum tíma í lágmarki. Framkvæmdir við álverið
munu ekki hefjast fyrir alvöru fyrr en árið 2005 en þangað til
verður unnið að margs konar undirbúningi á framkvæmdasvæð-
26