Sveitarstjórnarmál - 01.09.2003, Side 31
Lögheimili í fjórum þorpum
Gert er ráð fyrir að allt að eitt þúsund manns hafi lögheimili í fjór-
um þorpum á framkvæmdasvæði Kárahnjúkavirkjunar á meðan
framkvæmdir standa yfir.
augljós þar en með samsvarandi sam-
göngubót til Vopnafjarðar og nú sé unnið
að til Fáskrúðsfjarðar ætti engin fyrirstaða
að verða fyrir því að áhrifanna gæti lengra
til norðurs. Þorvaldur kveðst telja að þau
föstu störf sem álversframkvæmdin skapi
til frambúðar og afleidd þjónustustörf
vegna þeirra muni dreifast nokkuð á milli
sveitarfélaganna þótt gera verði ráð fyrir
að flest þeirra verði í Fjarðabyggð. Fólk
muni setjast að á Egilsstöðum og byggð-
unum þar í kring á Austur-Héraði og hugs-
anlega nái þau að einhverju leyti til Seyð-
isfjarðar þótt þeirra muni gæta í minna
mæli þar og með öðrum hætti.
Fjarðabyggð og Fljótsdals-
hreppur með vinninginn
Sé litið til beinna tekna sveitarfélaganna
segir Þorvaldur Fjarðabyggð augljóslega
hafa vinninginn með tryggar tekjur af
höfninni og fasteignagjöldum af álverinu
og Fljótsdalshreppur komi til með að hafa
fasteignatekjur af stöðvarhúsi Kárahnjúka-
virkjunar og mannvirkjum tengdum því
við Teigsbjarg þegar byggingu þeirra verð-
ur lokið. Meiri óvissa ríki um tekjur Norð-
ur-Héraðs vegna þess að samkvæmt nú-
gildandi reglum beri ekki að greiða fast-
eignagjöld af stíflumannvirkjum eins og af
stöðvarhúsum en ef gerð verði breyting á
þeim geti Norður-Hérað átt nokkra tekju-
möguleika sem vissulega megi segja að sé
réttlætismál. Meiri óvissa ríki í þessum
efnum á Austur-Héraði og í Fellahreppi
vegna þess að Ijóst sé að sveitarfélögin
verði að leggja í mikinn kostnað vegna
íbúafjölgunar en komi ekki til með að
hafa aðrar tekjur af þessum atvinnufram-
kvæmdum en auknar útsvarstekjur vegna
fleiri íbúa.
Þetta er í fyrsta skipti sem fólk mun eiga
lögheimili í byggðum sem reistar eru til
takmarkaðs tíma og þar að auki inni á há-
lendi íslands. Cert er ráð fyrir að á bilinu
600 til 700 manns muni búa í stærstu
búðunum í Laugarási þegar flest verður,
um 200 búi íTungu og um 100 manns
muni búa í búðum áTeigsbjargi og við
Öxará. Stærstu búðirnar verða vegna
stíflugerðarinnar við Kárahnjúka en hinar
vegna byggingar stöðvarhúss og aðkomu-
ganga tvö og þrjú.
Um 800 manns fyrir
lok september
Þegar hefur verið fengið samþykki þjóð-
skrár fyrir því að starfsmenn við virkjunar-
framkvæmdirnar, sem dvelja meira en
hálft ár á virkjunarsvæðinu, geti skráð sig
til heimilis þar. Er samþykkið veitt í sam-
ræmi við samkomulag ítalska verktakafyr-
irtækisins Impregilo, sem annast virkjunar-
framkvæmdirnar ásamt undirverktökum,
og þeirra sveitarfélaga sem virkjunarsvæð-
ið nær til. Ákveðið hefur verið að komið
verði upp svefnrými fyrir um 800 manns í
búðum Impregilo við Kárahnjúka fyrir lok
september og hefur fyrirtækið lagt fram
tímasetta aðgerðaáætlun um uppbyggingu
vinnubúðanna. Svefnskálarnir eru meðal
annars fluttir inn frá Rúmeníu ogTyrklandi
og munu starfsmenn frá framleiðendum
koma hingað til lands til þess að vinna við
uppsetningu þeirra.
Deiliskipulag fyrir 200 hektara
Samþykkt deiliskipulags er nauðsynlegt
vegna hinna tímabundnu byggða á há-
lendinu. Deiliskipulagið nærtil um 200
hektara svæðis vestan Jökulsár á Brú og
innan Fremri-Kárahnjúks. Svæðið tekur
fyrst og fremst til vinnubúða Impregilo auk
afmarkaðra reita vegna vinnubúða Lands-
virkjunar og annarra verktaka sem annast
framkvæmdir á virkjunarsvæðinu.
Karlar sækja austur
Um 65% aðfluttra umfram brottflutta á Austurlandi á þessu ári eru karlar en aðeins
35% konur. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu íslands um búferlaflutninga til og frá
Austurlandi sem birtar voru nýlega. íbúum Austurlands fjölgaði um 40 á fyrstu sex
mánuðum þessa árs en það er svipað og allt árið 2002.
í þessu felast verulegar breytingar sem rekja má til þeirra framkvæmda sem hafnar
eru eystra en Austfirðingum hefur fækkað á undanförnum árum. Fjölgunin er nokkuð
misjöfn á milli sveitarfélaga en mest fjölgaði íbúum á Austur-Héraði þar sem fjölgunin
á fyrri helmingi ársins varð um 50% meiri en allt árið í fyrra.
Karlmenn eru um 8% fleiri en konur á Austurlandi og ef þróunin verður með sama
hætti áfram mun fjöldi þeirra umfram fjölda kvenna enn fara vaxandi á næstunni. Enn
sem komið er hefur fjölgun starfa á Austurlandi einkum orðið í hefðbundnum karla-
störfum en þegar lengra líður má gera ráð fyrir að aukin verkefni skapist fyrir konur,
einkum eftir að samfélagið fer að kalla eftir fjölgun þjónustustarfa.
Undirbúningur að byggingu vinnubúða. Snæfell í baksýn.
31