Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Page 1
r
Öndin trylltist
í réttarsalnum
Fallegur, svartur köttur mætti sem vitni í
réttarsal í Wiesbaden fyrir nokkrum vikum.
Akærður var álitinn hafa núið sýru í fcld katt-
arins, og skipaði dómarinn honum að strjiika
kcttinum.
Ákærður myndaði sig til við það, en kött-
urinn flýði frá honum. Hver annar sem vildi,
fékk að strjúka kettinum.
Þessi sönnun felldi manninn og var hann
dæmdur í sekt sem svarar 400 ísl. krónum.
Dýr hafa oft borið vitni í mikilsverðum
málum. Þannig var það með tvo birni í Bern
í Sviss, þegar aðstoðarvörður í dýragarði ákærði
yfirvörðinn fyrir hrottalega meðferð. En yfir-
vörðurinn ákvað, að fengnu leyfi, að hafa með
sér í réttarsalinn tvo bimina, máli sínu til
vamar. Hluti áhorfenda skelfdist við að sjá
risavaxin dýrin, og forðaði sér, annars gengu
réttarhöldin friðsamlega.
Ákærandinn lýsti hrottalegri meðferð hins
ákærða á dýrunum, þ. á. m. björnunum tveim,
sem mættir voru í réttarsalnum. Lögfræðingur
ákærða lýsti því yfir, að einu varnarvitnin væru
bimirnir tveir, og að lokinni ræðu ákæranda
teymdi hann birnina fram fyrir mannfjöldann.
Síðan bað hann ákæranda og nokkra aðra
starfsmenn úr bjarndýrabúrinu að koma og
taka sér stöðu frammi fyrir björnunum.
ÖUum nema yfirverðinum og lögfræðingi hans
til mestu furðu, sýndu bimirnir augljósa and-
úð sína á aðstoðarverðinum og félögum hans,
með því að færa sig ógnandi nær þeim og
reiða til höggs. Dómarinn sýknaði yfirvörðinn
eftir svo augljósar sannanir.
En það varð ekki alveg svona friðsamt, þegar
önd mætti í réttarsalnum til þess að bera vitni
gegn strák, sem hafði stolið henni. Hún brauzt
ncfnilcga út úr búri sínu meðan yfirvaldið
ávítaði strákinn, og gargaði hástöfum meðan
hún sentist yfir réttarbækumar, setti um blek-
byttu, svo að blekið rann um öll réttarskjölin
og faldi sig loks inni í skrifborði.
Þrír lögregluþjónar áttu fullt í fangi með að
ná henni, og tvisvar slapp hún aftur og þeytt-
ist um allan réttarsalinn, með virðulega réttar-
þjóna, vitni og lögreglumenn á hælum sér.
Kvikmyndasagan NANA
hefst í þessu blaði.
VERÐ: 10 KRÓNUR
Vikifbtaðií
2. ÁRG. ic 4. FEBRÚAR 1956 * 2.-3. TBL.
Bréf frá unnustanum.
i