Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Page 7

Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Page 7
MEÐ ILLU SKAL ILLT ÚT DRÍFA... Hér heldur áfram frásögnin af Gunnsteini gula, sem hófst í síðasta blaði. Mataræði. Þegar Gunnsteinn flosnaði upp af búi sínu, gerðist hann lausamaður á hinum og þess- um bæjum, flestum í Leið- vallahreppi, oftast í Skaftár- tungu. Fór hann iðulega kaupstað- arferðir til Eyrarbakka, og gat þá komið í hann sá dintur að kaupa aðeins eina vöru, og þá mikið af henni. Eitt sinn keypti hann ein- ungis skonrok, setti birgðirnar í tvo stóra poka og batt upp á klyfjahest. Þegar hann kom að Þverá á leiðinni heim, var mikill vöxtur í ánni, og talin ófær klyfjahestum. Gunnsteinn taldi það löðurmennsku og hugleysi að freista ekki yfir- ferðar — og skipti það engum togum, að hann teymdi hest- inn á eftir sér yfir ána, oftast á sundi. Gegnblotnaði allt skonrokið að vonum. Gunn- steinn kippti báðum pokunum niður af hestinum, þegar þeir voru komnir á þurrt, og tekur síðan að lumbra á pokunum með klyfberabríkinni, þar til allt skonrokið er komið í kássu. Settist hann þá að við ána og lá þar í heilan sólarhring til þess að þurrka skonrokið og lofa því að harðna vel. En mikla hagsýni kvað hann það hafa verið að berja pokana meðan innihaldið var blautt, því að eitt brauð myndi nú vera í' hvorum poka. En þegar heim kom, reyndist allt inni- hald pokanna myglað og óætt með öllu. Gunnsteinn átti jafnan nokkurt gangandi fé, meðan hann var í lausamennskunni. Þótti hann sauðheppinn og féð feitlagið. Sama haustið drap hann vel feitan sauð, sem hann átti, og folald, spikfeitt. Úr kjötinu bjó hann til kæfu, er geyma skyldi. En þar sem hland var alla tíð uppáhald hans til allra lækninga, fékk hann sér léða gamla, stæka og vel steinda hlandkirnu, lét þar í kæfuna, hellti síðan feitinni yfir og setti hlemm á ílátið. Kirnuna geymdi hann á fjóslofti um vet- urinn og sat iðulega á henni, svo að hitnaði í henni. Á útmánuðum þótti honum mál komið til að fara að bragða á lostætinu. En svo fór, að jafnvel hann treystist ekki til að bragða á kæfunni. Hún reyndist nefnilega mettuð hlandbragðinu inn að miðju, en þar fyrir innan gul af þráa. „Ég vissi svosem af því .. Eitt sinn ætlaði Gunnsteinn á ferju yfir Eldvatn hjá Svína- dal. Staðhættir neðan við ferjustaðinn eru þeir, að þar er iðustrengur í' vatninu, en hringstreymi að lygnuviki uppi við ströndina hinum megin. í ferjunni, auk Gunnsteins, voru tveir unglingar. Sérvizka Gunnsteins bauð honum að reyna nýjar leiðir, og lagði hann út á vatnið rétt fyrir ofan iðuna. Greijj strengurinn óðara bátinn, en Gunnsteinn æðraðist og barmaði sér: „Æ, svona átti ég .þá að fara!“ Unglingarnir ávítuðu hann fyrir fífldirfskuna og flónsk- una, en Gunnsteinn linnti ekki harmatölum sínum og ör- væntingu. Á meðan þessu fór fram, barst báturinn með hring- streyminu út í lygnuvikið, og hvarf þá Gunnsteini snögglega öll hræðsla, og sagði hann þá: „Ég vissi svo sem alltaf af vik- inu því arna!“ Gunnsteinn var einrænn og talaði mikið við sjálfan sig, og fengu menn einstaka sinnum jjata af bollaleggingum hans, sem hann réðst jafnvel stund- um í að framkvæma, og þóttí allt með sömu eindæmum. Lét Gunnsteinn iðulega í ljós skoðun sína, að nauðsynlegt væri að veita Eldvatni i Svínadalshraunið. Myndi hraun ið verða frjósamt á skömmum tíma, ef jökulvatnið ykist í þvi.

x

Vikublaðið Gestur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.