Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Side 13

Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Side 13
ur til Collingford, og þar sem hann bjó einsamall ásamt bróður sínum, var harla ólíklegt, að nokkur mætti á stöðinni til þess að taka á móti honum. Þess vegna hagaði tilviljunin því þannig, að þegar lestin rann með Bart Osburn inn á járnbrautarstöðina, átti Angela leið þar framhjá. Hún heilsaði honum með svo óvæntum innileik, að blóðið streymdi hraðar í æðum hans. Nei, það var augljóst, að hann hafði ekki gleymt henni. „Angela, loksins ertu þá komin aftur!“ hrópaði hann og ljómaði af ánægju. „Ég vissi ekki, að þú værir hérna.“ Angelu datt í hug hversu heppilegt það var að fáir vissu um samband þeirra Ken, og nú yrði hún að hefjast handa, áður en Bart hefði tal af þessu fólki. „Það var sannarlega gaman að hitta þig,“ sagði liún. Hún leit framan í hann og brosti um leið og hún dustaði ósýnilegt kusk af ferðajakkanum hans. Hann var á hæfilegum aldri til þess að kunna að meta smávegis ástleitni. „Ég vonast til þess að mega sjá þig talsvert í framtíðinni," sagði Bart innilega. „Það er undir ýmsu komið —“ sagði Angela. „Hverju?“ „Þér“, svaraði Angela. Og ástleitið augnaráð hennar gaf til kynna, að það væri hans að sjá fyrir skemmtunum og gleði. Og Bart Osburn tókst fúslega þá skyldu á herðar: „Viltu borða kvöldverð með mér í kvöld?“ Hún hristi höfuðið og varð alvarleg á svipinn. „Því miður er ég upptekin í kvöld, — en ég gæti borðað með þér hádegis- verð í dag.“ „Prýðilegt. Og meðan við borðurn ætla ég að kynna mér hvaða kvöld þú ert ekki upptekin í þessari viku. Við segjum þá klukkan eitt.“ Hún flýtti sér burt, en nam staðar, þegar hún var komin úr augsýn, hugsaði málið og gekk síðan inn á veitingastofu beint andspænis skrifstofu Bart og fékk sér hressingu. Það var alls ekki ólíklegt, að hann þyrfti að bregða sér eitthvað frá skrif- stoíunni, í bankann eða eitdivað annað. Hún beið þolinntóð, og nokkru síðar uppskar hún laun þolin- mæði sinnar. Bart birtist i dyrum byggingarinnar og gekk hröð- um skrefum niður götuna. Angela leit á úrið sitt. Hálf-eitt. Einkaritara Bart, Carrie, myndi ekkert finnasi athugavert, þótt hún kæmi heldur snemma á stefnumótið. Og hún þurfti oð v"r? fimm mínútur einsömul í skrifstofu Bart. Ef það brygð- ist, gæti hún ef ti 1 vill veitt nytsamar upplýsingar upp úr Bart meðan þau þo' ' •íóu. „Svo að þú ætlar að borða úti með húsbóndanum?“ Carrie fjauð hana innilega velkomna. „Já,“ svaraði Angeia og settist makindalega í stól við skrif- borð Carrie, „ég er líklega of snemma á ferðinni. „Hann skrapp út,“ svaraði Carrie. „En hann sagðist verða kominn aftur klukkan eitt. Er þér ekki sama, þótt þið verðið dálítinn tíma að borða? Ég þyrfti nefnilega að skreppa í búðir“. Angela greip tækifærið. „Hversvegna skieppurðu ekki núna? Ég skal svara í símann fyrir þig. Það væri svo gaman, ef ég jþættist vera einkaritarinn hans, þegar hann kæmi aftur.“ Carrie skríkti. Hún átti ekki erfitt með að skilja, að Angelu langaði til þess að vera ein með Bart. „Ég ætla þá að stilla símann,“ sagði liún. Fimm mínútum síðar hvarf hún flissandi út um dyrnar. Ang- ela læsti ytri dyrunum. Þegar hún kom inn í innri skrifstoluna, varp hún öndinni léttar. Þarna stóð skrifborð Bart, og lykillinn var meira að segja í skráargatinu á skúffunni. Ef hún aðeins gæti fundið bréf, minnisblað, eða eitthvað, sem sannað gæti samband þeirra Osburn og Faxon. Hún rótaði í skrifborðsskúffunni en gætti þess að láta hvert blað aftur á sinn stað. Það hefði verið gaman að þekkja meira til málanna og vita, hvort þessi blöð gætu ekki komið að einhverju gagni í kosningabaráttunni. Hún rak upp lágt undrunaróp, þegar hún kom auga á kvitt- anirnar, sem stungið hafði verið niður í umslag, sem lá innst f skúffunni. Hver kvittun var undirrituð af Faxon sjálfum, við- urkenning fyrir upphæð, sem Osburn hafði lagt í kosningasjóð hans. Hún lagði upphæðirnar lauslega saman í huganum, og fannst upphæðin nema kringum þrjátíu þúsund dollurum. Hún ýtti skúffunni snögglega aftur og stakk kvittununum í vasa sinn. Stundarkorn hikaði hún. Þetta var þjófnaður að taka þess- ar kvittanir, sem voru henni einskis virði. Nei — hún hafði bara fundið þær, á sama hátt og hún hafði fundið svo margt, sem aðrir höfðu skilið eftir í reiðuleysi. Og ef viðkomandi hafði brotið eitthvað af sér, þá var það ekki nema rétt að hafa upp á sönnunum gegn honum. Auk Iþess, þá gerði hún þetta fyrir Ken. Elún hljóp út úr skrifstofunni, gegnum fremri skrifstofuna. og opnaði dyrnar. Síðan flýtti hún sér út á götu, að símaklefa á næsta götuhorni og hringdi þaðan til skrifstofu Bart. Hún náði strax sambandi við almennu skrifstofuna. „Viljið þér gjöra svo vel og segja hr. Osburn, að ég geti ekki borðað hádegisverð með honum í dag,“ sagði hún. „Hvað, ó, nafn mitt er Angela Lane.“ Og hún yrði sannarlega að taka til höndunum, hugsaði hún með sjálfri sér á leiðinni til bækistöðva Ken. Hún ætlaði að hringja seinna til Carrie og segja henni, að sér hefði orðið snögglega illt og orðið að fara heim. Það væri að vísu líklegt, að Carrie færi að leggja saman tvo og tvo, þegar Bart yrði þess var, að kvittanirnar væru horfnar, þótt hún hefði ekki mikla innsýn í stjórnmál. Bart myndi ekki geta sannað neitt, en jafn- skjótt og hann gerði sér ljóst, að hún væri stuðningsmaður Ken, myndi hann skilja hvernig í málinu lægi. ÞEGAR HÚN KOM til kosningaskrifstofu Ken, var hann ekki við, en Sam tók á móti henni. Hún rétti honum þegjandi kvittanirnar. Sam stóð á fætur og stóllinn skall á gólfið. „Hvernig náðirðu í þetta? Nei, annars, segðu mér ekkert. Það er betra, að ég viti ekki neitt. Nú höfum við Faxon aldeilis í greipum okkar ...“ Hann teygði sig óstyrkur í símann. Og hún gekk út með sig- urbros á vör. Hún leysti af hendi innkaup, sem frú Brandon hafði falið henni, og drap með því tímann, því að hana langaði ekkert til þess að fara heim strax. Þegar hún loksins gekk heim að Bran- ford var hún enn gagntekin sælunni, sem sigur hennar og undr- un Sam hafði veitt henni. Og í þeirri sælu Ieið hún allt upp að útidyrunum. Meg vatt sér að henni og var ofsareið: „Hvaða andstyggðar- brögðum beittir þú til þess að ná i þessar kvittanir frá Osburn?“ Þær voru einar í forstofunni. Angela sneri sér að henni: „Hvaða máli skiptir það, úr því að ég náði þeim?“ „Það snertir málstað okkur“, svaraði Meg. „Auðvitað komast þcir að því, að við höfum kvittanirnar í okkar fórum. Almenning grunar, að Ken hafi verið í vitorði með þér. Og hann kærir sig ekkert um að sigra með bolabrögðum. Ken vill ...“. Framhald i nœsta blaði. GESTUR — 13

x

Vikublaðið Gestur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.