Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Qupperneq 28

Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Qupperneq 28
Rustafenginn, sífullur, tóbakstyggjandi og vindlareykjandi pilsvargur. Ástir og ævintýri Jóhönnu háska Þegar Jóhanna háski, auralaus og yfirkomin af áfengis- neyzlu, andaðist síðari hluta dags 3. ágúst 1903, veittu vasa- bókaútgefendur í Bandaríkjunum henni virðulegustu útför. Þeir grófu hana við hliðina á hinum ódauðlega Villta Villa Hickock, þerrðu síðan svitann af ennum sér og og báðu þess innilega, að hún lifnaði ekki við áftur. Löngu fyrir þann dag — nákvæmlega 27 árum áður — höfðu þeir dröslað Jóhönnu upp úr drafinu og stillt henni á trón frægðar og dýrðarljóma vindlareykjandi Jóhönnu frá Ark hins villta vesturs. Og þessi rustafengni, sífulli, tóbaks- tyggjandi og vindlareykjandi gamli pilsvargur, sem bar f jall- stórt hjarta í brjósti sér, en var ósiðsamari en vændiskona í myrkri, komst ekki átakalaust til frægðar, né heldur velti hún sér í frægð sinni án þess að gefa áköfum ævisagnarit- urum sínum sífelldan og sársaukafullan höfuðverk. Siðsemi var nokkuð, sem Jóhanna formælti stórum og ljótum orðum. Þegar hún var orðin fræg, skemnni hún karhnönnunum á drykkjukránum iðulega með því að taka blað úr bókunum um sig, þar sem henni var lýst sem dyggðum prýddum engli, negla það upp á vegg og þekja það síðan tóbakslegi úr munni sér. í þeirri list var hún snillingur, og fróðir menn hafa fullyrt, að hún hafi hitt í mark á sjö metra færi. Útgefendurnir græddu líka góðan pening á henni, en það kom líka iðulega lyrir, að þeim datt í hug, hvort þeir fengju fyrirhöfnina fyllilega greidda. Árum 'saman öfluðu þeir sér krabhameins og ónýtra tauga, meðan þeir sátu á púðurtunnunni, sem þekkt er undir nafninu Jóhanna háski. Þeir vissu aldrei, hvenær hún tæki upp á því að hamast blindfull frammi fyrir aðdáendum sínum, eða úthella fúlustu skammaryrðum yfir börnin, sem söfnuðust saman til þess að stara galopnum augun- um á þennan mikla njósnara og Indíánabana. En einhvern veginn heppnaðist þeim að lægja óveðrið, svo að í dag líta flestir á Jóhönnu háska sem ímynd dyggðanna, hóglífa dóttur sléttunnar, og kvikmyndin, sem gerð var um hana (með Doris Day í aðalhlutverkinu), vann sér mikla hylli. Hvernig þessi tjaldbúðabryðja, kjaftfor og ruddaleg, ljót, svo að sum börnin flúðu skelfd frá henni, hefur unnið sér slikan sess í sögunni, er skemmtilegt dæmi um það, hvernig þjóðsögur villta vestursins verða til. Þær eru flestar sambland uppspuna og ímyndunarafls, með smávegis sannleiksþræði. Bak við tjöldin finnst í hvert einasta skiptið einhver rithöfundur, sem er á hnotskóg eftir einhverri óþekktri persónu, sem hann geti íklætt riddaraskrúða til þess að geta selt bókhneigðum almenningi fyrir góða og gilda vöru, sér til dýrðar og frægðar (og hagnaðar). Þessar heilaspuna-persónur hafa rassakastast inn í söguna eins Framh. á bls. 19. „Calamity Jane£í, sem í þessari frásögn hefur hlotið nafnið Jóhanna háski, er furðulegt dæmi um, hvernig þjóðsögur geta skap- azt um alls óverðugt fólk, og skipað auðnuleysingjum í röð afburðafólks.

x

Vikublaðið Gestur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.