Morgunblaðið - 09.11.2011, Síða 2
FRÉTTASKÝRING
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Þetta verður bara kært til Hæstaréttar og
þá fáum við rétta niðurstöðu,“ segir Grímur
Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður og skipta-
stjóri þrotabús eignarhaldsfélagsins Mile-
stone. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í
gær frá máli þrotabúsins á hendur Karli
Wernerssyni á þeim forsendum að frestur til
þess að höfða málið hefði verið liðinn sam-
kvæmt lögum um gjaldþrotaskipti og einka-
hlutafélög. Var þrotabúinu gert að greiða
honum 600 þúsund krónur í málskostnað.
Karl var stjórnarformaður og stærsti hlut-
hafi Milestone á árunum 2005-2009 bæði
sjálfur og gegnum félög í hans eigu, en fé-
lagið var tekið til gjaldþrotaskipta með úr-
skurði Héraðsdóms Reykjavíkur 18. sept-
ember 2009.
Málið höfðað innan tímamarka
Þrotabúið fór fram á það fyrir dómi að rift
yrði greiðslum Milestone til Karls að fjár-
hæð rúmlega 504 milljónum króna, en sam-
kvæmt rannsókn sem endurskoðendafyrir-
tækið Ernst & Young framkvæmdi fyrir
skiptastjóra þrotabúsins fékk Karl fjölmörg
lán frá félaginu á síðustu tveimur árunum
fyrir gjaldþrot þess.
Grímur segir að forsaga málsins sé sú að í
nóvember 2009 hafi kröfulýsingarfrestur
vegna Milestone runnið út. Á þeim tíma hafi
lögin verið með þeim hætti að höfða varð
riftunarmál innan sex mánaða frá því að
fresturinn rann út. Í tilfelli þrotabús Mile-
stone hafi það verið í maí 2010.
„Í apríl 2010, það er að segja mánuði áður
en frestinum lauk, þá er lögunum breytt og
þessi frestur sem var sex mánuðir lengdur í
eitt ár. Við höfðuðum svo málið áður en
þetta ár var liðið,“ segir Grímur. Hann segir
það almenna reglu í lögfræði að ef frestir
séu ekki liðnir megi framlengja þá með laga-
breytingu og þá gildi hinir nýju frestir. Ann-
að mál sé ef frestir séu liðnir enda sé breyt-
ingin þá afturvirk. Héraðsdómur hafi hins
vegar komist að þeirri niðurstöðu að höfða
hefði átt riftunarmálið innan sex mánaða frá
því að kröfulýsingarfresturinn rann út eins
og lögin voru fyrir breytingu.
Með tíu sambærileg mál í vinnslu
Umrætt mál hefur annars mun víðari skír-
skotun en aðeins varðandi þrotabú Milestone
að sögn Gríms en í heildina er lögfræðistofa
hans Landslög með tíu slík mál í vinnslu. Í
raun snúist málið um það hvaða reglur gildi
í þeim tilfellum þar sem fresturinn til þess
að höfða riftunarmál var ekki útrunninn
þegar lögunum var breytt og fresturinn
lengdur úr sex mánuðum í ár. Um prófmál
sé að ræða.
„Það er bara örlítill hluti af málum sem
voru höfðuð innan sex mánaða frá því að
kröfulýsingarfrestur rann út og ég held að
það sé nú búið að höfða þau fæst eins og til
að mynda í stóru bönkunum,“ segir Grímur.
Um sé að ræða sömu breytingu á lögum og
hafi verið gerð vegna slita bankanna.
Ágætt að fá reglurnar á hreint
Þó að Grímur sé ósammála þeirri nið-
urstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur að vísa
málinu frá þá segir hann að í því felist einnig
jákvæðar hliðar. Með því hafi skapast tæki-
færi til þess að kæra frávísunina til Hæsta-
réttar og þar með verði hægt að fá nið-
urstöðu um það áður en byrjað verði að reka
málið hvaða reglur gildi um umrædda fresti.
„Að því leytinu er þetta ágætt, nú getum
við kært þetta og fáum bara strax nið-
urstöðu frá Hæstarétti um hvað sé rétt. Þá
liggur þetta fyrir,“ segir Grímur.
Málið hefur mun víðari skírskotun
Máli gegn Karli Wernerssyni vegna þrotabús Milestone vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
Niðurstaðan að málið hafi verið höfðað eftir að frestur til þess rann út Verður kært til Hæstaréttar
Morgunblaðið/Hjörtur
Dómsmál Máli vegna þrotabús Milestone var
vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Héraðsdómur
» Samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur kemur hvergi fram í lögum
hvort lenging frests til þess að höfða mál
vegna gjaldþrotaskipta eigi við um mál
þar sem frestur var þegar hafinn þegar
lagabreytingin átt sér stað.
» Af þeim sökum verði að líta svo á að
sex mánaða frestur gildi um slík mál eins
og kveðið var á um í lögum fyrir laga-
breytingu en ekki eitt ár.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Jarðskjálfti af
stærðinni 3,5 stig
varð rétt fyrir
klukkan 10 í
gærmorgun
syðst í Kötluöskj-
unni í Mýrdals-
jökli. Annar
skjálfti upp á 2,5
stig varð klukk-
an 10.18 í öskj-
unni. Ekki mæld-
ust fleiri skjálftar á þessum slóðum
í gærdag og fram eftir kvöldi sam-
kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu
Íslands og enginn gosórói var sjá-
anlegur. Í fyrradag mældust tveir
skjálftar upp á 2,5 og 2,3 stig í Mýr-
dalsjökli.
Stærri skjálftinn í gærmorgun
fannst greinilega í Vík í Mýrdal og
nágrenni vegna þess hve sunnar-
lega hann var í jöklinum.
Tveir jarðskjálftar
í Kötluöskjunni
Órói Katla í Mýr-
dalsjökli.
Karl á sextugsaldri hefur verið úr-
skurðaður í áframhaldandi gæslu-
varðhald til 6. desember að kröfu
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu vegna gruns um aðild að inn-
flutningi á verulegu magni af
fíkniefnum og sterum og er það
gert á grundvelli almannahags-
muna. Maðurinn hefur kært úr-
skurðinn til Hæstaréttar.
Fíkniefnin og sterarnir sem um
ræðir fundust við leit lögreglu og
tollgæslu í gámi sem kom til
landsins í síðasta mánuði. Rann-
sókn málsins hefur staðið yfir í
alllangan tíma og hefur verið unn-
in í samvinnu við tollgæsluna.
Karl á fimmtugsaldri er í haldi
lögreglu vegna sama máls en sá
hefur áður komið við sögu hjá lög-
reglu.
Í gæsluvarðhaldi
fram í desember
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Í þessu felast engar nýjar fréttir.
Það hefur alltaf legið fyrir að leikskól-
ar taki börn fædd 2010 inn árið 2012,“
segir Líf Magneudóttir, fulltrúi VG í
skóla- og frístundaráði, um tilkynn-
ingu sem Reykjavíkurborg sendi frá
sér í gær um stöðuna í leikskólamál-
um. Í henni kemur fram að borgin
skoði nú hvort svigrúm sé til þess í
fjárhagsáætlun 2012 að taka hinn
stóra árgang barna sem fædd eru árið
2010 í áföngum inn í leikskólana.
„Á fyrri hluta ársins yrðu börn sem
fædd eru snemma á árinu 2010 tekin
inn. Önnur börn úr árganginum yrðu í
síðasta lagi tekin inn eftir sumarleyfi
þegar elstu leikskólabörnin fara í
grunnskóla,“ segir í tilkynningunni.
Líf segir borgina ekki svara brýn-
um spurningum. „En það sem skiptir
máli og við höfum ekki fengið svör við
er að nú eru ónýtt pláss í leikskólum
borgarinnar og það er samt ekki tekið
inn í þá. Það eru nú þegar börn fædd
2010 orðin 18 mánaða og þau fá ekki
þessi pláss,“ segir Líf og bætir við að
það ætti ekki að fela í sér mikinn
aukakostnað að nýta plássin, þetta sé
bara spurning um forgangsröðun.
Í umræðunni að hækka gjöld
Um 100 rými eru laus í leikskólum
Reykjavíkur nú. Ekki er til fjármagn
til að mæta viðbótarkostnaði vegna
lausra leikskólaplássa á þessu ári að
sögn Evu Einarsdóttur, borgarfull-
trúa Besta flokksins, sem á sæti í
skóla- og frístundaráði.
Húsnæðiskostnaður er um 8% af
kostnaði við hvert leikskólapláss.
Stærsti kostnaðurinn er vegna launa.
Eva bendir á að fjárframlög til rekst-
urs leikskólanna hafi hækkað um rúm-
an milljarð frá árinu 2008 og hafi aldr-
ei verið hærri. Hvert leikskólapláss
kostar um 2 milljónir á ári en um 7.000
leikskólabörn eru í borginni. „Það er
nýtt í stöðunni að hafa pláss en geta
ekki nýtt þau sökum fjárskorts á með-
an áður voru ekki til pláss eða ekki
fékkst nægt starfsfólk,“ segir Eva.
En kemur til greina að hækka leik-
skólagjöld? „Það er auðvitað allt í um-
ræðunni núna við lok fjárhags-
áætlunargerðar. Leikskólagjöld í
Reykjavík eru nú þau næstlægstu á
landinu,“ segir Eva.
Ekki hægt að
nýta laus pláss
Um 100 laus leikskólapláss í borginni
Börn fædd 2010 fá samt ekki inni
Fermingarbörn á öllu landinu hófu í gær söfnun fyrir vatnsverkefni Hjálp-
arstarfs kirkjunnar í Afríku. Þetta er í 13. sinn sem söfnunin fer fram og er
hún ein mikilvægasta stoð Hjálparstarfsins undir vatnsverkefni í Afríku.
Í fermingarfræðslunni hafa börnin fræðst um vatnsverkefni Hjálpar-
starfsins í Úganda, Malaví og Eþíópíu, hvernig hreint vatn breytir öllu,
bætir heilsu og allar aðstæður til hins betra. Stúlkur sem áður þurftu að
nota marga klukkutíma á hverjum degi í að sækja vatn geta eftir að brunn-
ur er kominn við þorpið farið í skóla og þannig öðlast menntun sem skapar
grundvöll fyrir jafnrétti og framförum. Söfnun fermingarbarnanna stend-
ur til 15. nóvember og taka um þrjú þúsund börn í 67 prestaköllum þátt.
Fermingarbörn á Íslandi safna fyrir vatni
Hreint vatn breytir öllu
Morgunblaðið/Kristinn
Átak Fermingabörn í Hjallakirkju í Kópavogi voru glaðleg og áhugasöm
með séra Írisi Kristjánsdóttur þegar söfnun fyrir vatnsverkefnið hófst.
Vatnsútflutningur frá Íslandi hefur
aukist verulega síðustu ár en fyrstu
sjö mánuði ársins var aukningin
rúmlega 31% miðað við sama tíma-
bil í fyrra. Útlit er fyrir að útflutn-
ingurinn í ár verði yfir 16 þúsund
tonn, sem er fjórfalt meira magn
en flutt var út árið 2007. Hátt í
86% af vatninu eru flutt til Banda-
ríkjanna og fer vatnið bæði til aust-
ur- og vesturstrandarinnar. Til
Kanada, Danmerkur, Kína, Rúss-
lands og Bretlands fara um 12%.
Tvö fyrirtæki eru stærst í vatns-
útflutningi, Iceland Water Holding
og Catco. Vatninu er tappað á
flöskur hér á landi og síðan flutt til
útlanda í 40 feta gámum, að lang
stærstum hluta á vegum Eimskipa-
félagsins. Hver gámur vegur 20-22
tonn. Samkvæmt heimildum blaðs-
ins hafa nokkrir aðilar byrjað til-
raunasendingar á að flytja vatn í 20
feta gámum, sem eru útbúnir með
sérstökum risapoka sem vatni er
dælt í, og senda til átöppunar utan
Íslands. Útflutningur á vatni í
tankskipum er síðan annar mögu-
leiki sem rætt hefur verið um.
aij@mbl.is
Stöðugt meira flutt
út af vatni frá Íslandi
Litla stúlkan, sem varð fyrir bíl í
Innri-Njarðvík á sjöunda tímanum í
gærkvöldi, hlaut ekki alvarleg
meiðsli samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Suðurnesjum. Hún
var flutt með sjúkrabifreið til
Reykjavíkur á slysadeild Landspít-
alans til eftirlits.
Stúlka sem varð fyr-
ir bifreið lítið slösuð