Morgunblaðið - 09.11.2011, Blaðsíða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hinn kunni kúbansk-bandaríski gít-
arleikari Manuel Barrueco heldur
einleikstónleika í Salnum í Kópavogi
í kvöld, miðvikudag, og hefjast þeir
klukkan 20.00.
Á efnisskránni eru umritun á
sellósvítu eftir Bach og Five Pieces
eftir Piazzolla, auk verka eftir
Ponce, Albéniz og Tárrega.
Ferill Barruecos er glæsilegur og
hefur hann nokkrum sinnum áður
leikið fyrir Íslendinga, til að mynda
sem einleikari með Sinfóníu-
hljómsveitinni árið 1999 og í Salnum
árið 2007. Barrueco hefur leikið í
helstu tónlistarhúsum heims auk
þess sem margir geisladiskar hafa
verið gefnir út með leik hans. Þann-
ig frumflutti Barrueco verk eftir
Toru Takemitsu með Sinfón-
íuhljómsveitinni í Boston undir
stjórn Seiji Ozawa, og þá var útgáfa
hans á Concierto de Aranjuez eftir
Joaquín Rodrigo með Philharmonia
Orchestra undir stjórn hetjuten-
órnsins Placido Domingo talin af
Classic CD Magazine besta upp-
takan á þessu meistaraverki klass-
ískra gítarbókmennta.
Hjónin Manuel Barrueco og Ás-
gerður Sigurðardóttir stofnuðu árið
2007 fyrirtækið Tonar Music sér-
staklega til að annast útgáfu á upp-
tökum hans. Fyrsti diskurinn á
þeirra vegum var Solo Piazzolla sem
var tilnefndur til Grammy-verðlauna
sem besti flutningur einleikara.
Nærvera Bachs
„Ég byrja á að leika verk eftir
Bach og fyrir hlé leik ég líka verk
eftir Piazzolla, sem er kunnastur
fyrir tangóa sína,“ segir Barrueco.
Og hann segir ákveðin tengsl milli
þessara tónskálda þótt tíminn hafi
skilið þá að. „Piazzolla varð fyrir
áhrifum af tónsmíðum Bachs og
tengdi ýmsa þætti endurreisnar-
tónlistar við tangóinn.“
Á seinni hluta tónleikanna er lögð
áhersla á tónlist spænskra tónskálda
og verk eftir Mexíkóann Ponce, en
þar mætast suðuramerísk og
spænsk áhrif.
Bach skrifaði ekki verk fyrir gít-
ar, því hann var þá ekki til í þeirri
mynd sem við þekkjum hann í í dag.
„En tónlist Bachs er hægt að leika á
hvaða hljóðfæri sem er, ólíkt tónlist-
inni sem Chopin samdi fyrir píanó –
hana er bara hægt að leika á píanó,“
segir Barrueco. „Tónlist Bachs er
meira um uppbygginguna og hæfir
alls staðar. Hann umritaði sína eigin
tónlist frá einu hljófæri til annars.
Við tónlistarmenn erum óumræði-
lega þakklátir fyrir viðvarandi nær-
veru Bachs.“
Erfitt að skrifa fyrir gítar
Á liðnum áratugum hefur mikið af
tónlist sem samin var fyrir önnur
hljóðfæri verið umritað fyrir gítar.
„Það er ekki síst vegna þess að
gítar er erfitt hljóðfæri að skrifa
verk fyrir,“ segir Barrueco. „Meira
og segja Beethoven skrifaði fyrir
mandólín, og hann hefði því átt að
geta skrifað fyrir gítar líka. Vissu-
lega er erfitt að skrifa fyrir gítar
sem sólóhljóðfæri og oft var það því
fólk sem lék sjálft á gítar sem skrif-
aði verk fyrir hljóðfærið. Paganini
skrifaði til dæmis fyrir gítar, enda
lék hann á gítar líka.
Annað mál er að meginrætur gít-
arsins eru í spænskri tónlist en svo
mikið af klassískri tónlist var undir
áhrifum frá þýskri tónlist 19. aldar
og þar var píanóið konungurinn. Þar
hefur gítarinn líka verið veikastur
fyrir.
Það var ekki fyrr en á 20. öld sem
hægt var að segja að helstu tón-
skáldin hefðu samið fyrir gítar.
Hvort sem það var Britten, de Falla
eða Villa-Lobos, þá var það í fyrsta
skipti sem hljóðfærið fékk að njóta
sína. Og að það gerðist var mikið
spænska gítarsnillingnum Andrés
Segovia að þakka. Hann tók gítarinn
út úr sínu tiltölulega lokaða sam-
hengi og fékk allrahanda tónskáld til
að skrifa verk fyrir sig. Það hratt af
stað bylgju sem við fljótum ennþá
á,“ segir hann.
Barrueco hefur átt glæstan feril,
bæði sem einleikari á tónleikum og í
sölu geisladiska. Hann segir að í tón-
listarheiminum í dag styðji þetta
hvað við annað; tónlistarmaður sem
leikur mikið á tónleikum þarf að
gefa út geisladiska.
„Á tónleikum í fallegu tónlistar-
húsi með góðum hljómburði er auð-
velt að láta hrífast með tónlistinni,
en það er miklu erfiðara að ná þeim
anda í upptökusal. Þar er hætta á að
flutningurinn verði kaldari, þótt allir
tónar séu á réttum stað,“ segir hann
og dásamar viðbrögð áheyrenda á
þeim tónleikum sem hann hefur leik-
ið á hér á landi.
„Áheyrendur hér þekkja vel til
tónlistarinnar, búa greinilega að
góðri tónlistarmenntun og það er
mjög ánægjulegt að upplifa á tón-
leikum hér,“ segir hann.
Sýning Ingu Elínar
Í tengslum við tónleikana mun
myndlistarmaðurinn Inga Elín vera
með sýningu á verkum sínum í forsal
Salarins í dag. Verður sýningin opn-
uð klukkan 18 og mun latíndjass-
bandið Mojito leika við opnunina.
Tónleikagestum er einnig boðið að
skoða sýninguna.
Auðvelt að láta hrífast
með á tónleikum
Hinn kunni gítarleikari Manuel Barrueco leikur í Salnum
Gítarleikarinn Manuel Barrueco segir Segovia hafa hrundið af stað bylgju
sem gítarleikarar í dag fljóti enn á. Hann leikur fjölbreytileg verk í kvöld.
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Mið 9/11 kl. 19:30 19.s. Sun 20/11 kl. 19:30 23.s. Fim 1/12 kl. 19:30 27.s.
Lau 12/11 kl. 19:30 20.s. Fim 24/11 kl. 19:30 24.s. Fös 2/12 kl. 19:30 28.s.
Sun 13/11 kl. 19:30 21.s. Fös 25/11 kl. 19:30 25.s.
Lau 19/11 kl. 19:30 22.s. Sun 27/11 kl. 19:30 26.s.
Feykilega skemmtileg leikhúsupplifun!
Hreinsun (Stóra sviðið)
Lau 12/11 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/11 kl. 19:30 9.sýn Lau 10/12 kl. 19:30 13.sýn
Sun 13/11 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/11 kl. 19:30 10.sýn Sun 11/12 kl. 19:30 14.sýn
Lau 19/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 2/12 kl. 19:30 11.sýn
Sun 20/11 kl. 19:30 8.sýn Lau 3/12 kl. 19:30 12.sýn
Atriði í sýningunni geta vakið óhug.
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Fim 10/11 kl. 19:30 21.sýn Fim 17/11 kl. 19:30 23.sýn Lau 26/11 kl. 19:30 25.sýn
Fös 11/11 kl. 19:30 22.sýn Fös 18/11 kl. 19:30 24.sýn
Aukasýningar í nóvember!
Hlini kóngsson (Kúlan )
Sun 13/11 kl. 15:00
Ævintýraferð í leikhúsið fyrir 3-8 ára börn!
Uppnám (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 25/11 kl. 22:00 Fös 2/12 kl. 22:00 Lau 10/12 kl. 22:00
Judy Garland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 12/11 kl. 22:00 7.sýn Sun 20/11 kl. 22:00 8. sýn
Kjartan eða Bolli? (Kúlan )
Lau 12/11 kl. 17:00
Miðasala sími: 571 5900
ALVÖRUMENN
“Hér er valinn maður í hverju rúmi...
Leikurinn er upp á fimm stjörnur.”
-Elísabet Brekkan, Fréttablaðið.
- harpa alþýðunnar
FÖS 28/10
L AU 29/10
FÖS 04/11
L AU 05/11
FÖS 1 1 / 1 1
L AU 12 /11
FÖS 18/11
FIM 24/11
FÖS 25/11
L AU 26/11
FÖS 02 /12
FÖS 09/12
L AU 10/12
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
Ö
Ö
Ö
U
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Lau 12/11 kl. 14:00 17.k Lau 3/12 kl. 14:00 23.k Lau 7/1 kl. 14:00 30.k
Sun 13/11 kl. 14:00 18.k Lau 3/12 kl. 17:00 aukas Sun 8/1 kl. 14:00 31.k
Sun 13/11 kl. 17:00 aukas Sun 4/12 kl. 14:00 24.k Lau 14/1 kl. 14:00
Lau 19/11 kl. 14:00 19.k Lau 10/12 kl. 14:00 25.k Sun 15/1 kl. 14:00
Sun 20/11 kl. 14:00 20.k Sun 11/12 kl. 14:00 26.k Lau 21/1 kl. 14:00
Sun 20/11 kl. 17:00 aukas Sun 18/12 kl. 14:00 27.k Sun 22/1 kl. 14:00
Lau 26/11 kl. 14:00 21.k Mán 26/12 kl. 14:00 28.k Lau 28/1 kl. 14:00
Sun 27/11 kl. 14:00 22.k Mán 26/12 kl. 17:00 29.k
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Lau 12/11 kl. 19:00 14.k Fös 2/12 kl. 20:00 Lau 10/12 kl. 14:00
Fös 25/11 kl. 19:00 15.k Fös 9/12 kl. 19:00
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011
Kirsuberjagarðurinn (Stóra sviðið)
Mið 9/11 kl. 20:00 4.k Lau 19/11 kl. 20:00 7.k Sun 4/12 kl. 20:00 10.k
Fim 10/11 kl. 20:00 aukas Mið 23/11 kl. 20:00 8.k Fim 8/12 kl. 20:00 11.k
Fös 11/11 kl. 20:00 5.k Lau 26/11 kl. 20:00 aukas Sun 11/12 kl. 20:00 12.k
Mið 16/11 kl. 20:00 6.k Sun 27/11 kl. 20:00 9.k Fös 16/12 kl. 20:00 13.k
Fös 18/11 kl. 20:00 aukas Fim 1/12 kl. 20:00 aukas
Sannkölluð leikhúsperla um ástir, drauma og vonir
Gyllti drekinn (Nýja sviðið)
Fim 10/11 kl. 20:00 fors Lau 19/11 kl. 19:00 6.k Fim 8/12 kl. 20:00 11.k
Fös 11/11 kl. 20:00 frums Sun 20/11 kl. 20:00 5.k Lau 10/12 kl. 20:00
Lau 12/11 kl. 20:00 2.k Lau 26/11 kl. 19:00 7.k Sun 11/12 kl. 20:00
Mið 16/11 kl. 20:00 3.k Sun 27/11 kl. 20:00 8.k Fös 16/12 kl. 20:00
Fim 17/11 kl. 20:00 aukas Fim 1/12 kl. 20:00 9.k
Fös 18/11 kl. 19:00 4.k Sun 4/12 kl. 20:00 10.k
5 leikarar, 15 hlutverk og banvæn tannpína
Klúbburinn (Litla sviðið)
Lau 12/11 kl. 17:00 3.k
Dansleikhús um karlmenn. Snýr aftur frá fyrra leikári. Lokasýning
Afinn (Litla sviðið)
Fös 11/11 kl. 20:00 12.k Fös 18/11 kl. 20:00 13.k Lau 19/11 kl. 20:00 14.k
Hlýlegt gamanverk með stórt hjarta. Síðustu sýningar
Eldfærin (Litla sviðið)
Sun 13/11 kl. 13:00 10.k Sun 20/11 kl. 13:00 Sun 27/11 kl. 13:00
Leikhústöfrar fyrir börn á öllum aldri. Síðustu sýningar
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Örfá sæti laus
Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » 528 5050
Í fjarlægum heimi Fim. 24.11. kl. 19:30
Litli tónsprotinn Lau. 26.11. kl. 14:00
Hljómsveitin kynnir sig
Stjórnandi: Bernharður Wilkinson
Sögumaður: Trúðurinn Barbara
Stjórnandi: Ilan Volkov
Einleikari: Sæunn Þorsteinsdóttir
Anna Þorvaldsdóttir: Aeriality (frumflutningur)
Henri Dutilleux: Tout un monde lontain
Johannes Brahms: Sinfónía nr. 4
Stjórnandi: Petri Sakari
Einleikari: Jósef Ognibene
Áskell Másson: Hornkonsert
Gustav Mahler: Sinfónía nr. 9
Áskell og Mahler - Fim. 10. 11. kl. 19:30