Morgunblaðið - 09.11.2011, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011
Kammermúsíkklúbburinn var
stofnaður árið 1957. Árið 1968
þurfti að fá nýtt afl til að tryggja
framhald starfseminnar. Til þess
buðu sig fram Einar B. Pálsson,
Þórarinn Guðnason og Jakob
Benediktsson. Samstarf mitt við
mína seniora var frábært og mér
mjög lærdómsríkt. Fundir okkar
voru uppspretta hugmynda og
hugleiðinga. Þórarinn og Jakob
féllu svo frá, en áður hafði komið
inn Runólfur Þórðarson og síðar
Helgi Hafliðason, Halldór Hauks-
son og Valdemar Pálsson. Þannig
var stjórnin skipuð lengi að með-
töldum okkur Einari.
Einar B. Pálsson lést laugar-
daginn 22. október í hárri elli.
Skorti þar á aðeins fjóra mánuði
að hann næði aldri tíu tuga. Líf nú-
tímamannsins hefur lengst og
nokkrir ná tíunda tugnum. Líf
mannsins á síðustu hundrað árum
hefur verið svo viðburðum hlaðið
að nemur þeim sem áður gerðust á
fleiri hundruðum. Allt líf Einars
var heimurinn að breytast. Hann
lifði tvær heimsstyrjaldir, lítt
meðvitaður um hina fyrri en í
snertingu við orsakir og upphaf
þeirrar seinni. Einar var við verk-
fræðinám í Dresden í Þýskalandi
þegar nasisminn var að skjóta rót-
um.
Símanotkun hófst á uppvaxtar-
árum hans, svo og skeytasending-
ar. Setið var við Marcony-viðtæk-
ið, sem varpaði orðum vítt um
landið og síðar varð upphaf að
Ríkisútvarpinu, sem varð okkar
Alma Mater hvað snertir tónlist
og viturleg orð. Svo kemur heims-
styrjöld, Hirosima og Nagasaki,
undralyf í læknisfræði. Sjónvarp,
sem sýnir okkur fyrstu skref
mannsins á tunglinu og hæfileiki
okkar til að undrast dvínar. Bar-
átta um guði stefnir okkur í geig-
vænleg átök. Hraðinn eykst en
breytist fljótt í andstæðu sína, bið.
Kynni mín af Einari voru aðallega
vegna tónlistaráhuga okkar. Ein-
ar var í stjórn Kammermúsík-
klúbbsins frá árinu 1968 til ævi-
loka. Hann var ætíð mjög virkur
og átti mikinn þátt í því að safna
heimildum fyrir vef klúbbsins,
kammer.is. Góð vinátta myndaðist
milli okkar hjóna og Einars og
Kristínar og barna þeirra. Einar
var mjög áhugasamur um að bera
fram fagnaðarerindið um klass-
íska tónlist. Hann hafði stundað
tónleika í Dresden á námsárum
sínum þar sem fram komu
stærstu nöfn þeirra tíma. Stóri
risinn í tónlist Einars var Beetho-
ven en hann ríkti þar ekki einn.
Heimili hans og hans ljúfu eig-
inkonu, Kristínar Pálsdóttur, á
Ægisíðu 44 var heimili erkihertog-
ans, þar sem hver nýr einstakling-
ur fjölskyldunnar var innvígður í
tónlistarakademíu og boðaður til
tónlistarflutnings með þeim eldri
svo skjótt sem aldur leyfði. Ómur
af þessum tónleikum hefur mögu-
lega borist út á hafið sem á erindi
Einar Baldvin
Pálsson
✝ Einar BaldvinPálsson fædd-
ist í Reykjavík 29.
febrúar 1912. Hann
lést á hjúkr-
unarheimilinu Sól-
túni 28. október
2011, nærri 100
ára.
Útför Einars fór
fram frá Neskirkju
4. nóvember 2011.
að ströndinni í nánd
við húsið á Ægisíðu.
Það var mjög
ánægjulegt að Einar
skyldi ná því að
koma í Hörpu, glæsi-
legt tónlistarhús
okkar. Fram á síð-
ustu stundu sótti
Einar tónleika og þá
í fylgd barna sinna.
Sunnudaginn fyrir
lát sitt kom hann á
tónleika Kammermúsíkklúbbsins
í Bústaðakirkju og fór glaður
heim. Kammermúsíkklúbburinn
þakkar Einari að leiðarlokum gott
samstarf. Við hjónin sendum að-
standendum innilegustu samúðar-
kveðjur okkar.
Guðmundur W.
Vilhjálmsson.
Þegar Einar B. Pálsson settist í
annan bekk Menntaskólans þrett-
án ára gamall – hann varð stúdent
átján ára, hófst fyrsta kennslu-
stundin í stærðfræði hjá doktor
Ólafi Daníelssyni með því, að hann
mundaði krítina, gekk að töflunni
og markaði punkt. Virti hann síð-
an fyrir sér og tók því næst til
máls: ,,Punktur er einn staður í
rúminu. Það verður að hugsa sér
að hann sé óskiptanlegur, því ef
hægt væri að skipta honum í
tvennt myndi hann vera tveir
staðir.“ Þetta var 1. október 1925,
nánar tiltekið í stofu í þakhæð,
norðurenda, sagði Einar. Hann
lýsti því fyrir mér í þessu samtali
okkar 4. nóvember 1998, svo að
nákvæmni sé haldið í anda sögu-
manns, að þetta væri annar þeirra
atburða, sem hefðu verið honum
örlagaríkastir á ævinni. Hinn var
uppi í Skálafelli í skíðaferð, þegar
hann leit konuefni sitt augum
fyrsta sinni. Þeim atburði lýsti
hann reyndar í mín eyru aftur fyr-
ir fjórum árum með miklu ýtar-
legri hætti, en það er nú önnur
saga – og ekki mitt að bera á torg.
Einar hreifst af Ólafi Daníels-
syni og kennslu hans. Með þessum
upphafsorðum kennslunnar
laukst upp nýr heimur í huga
piltsins. Og álitið var gagnkvæmt.
Þannig lýsti Ólafur árið 1946:
,,Einu sinni fjekk jeg brjef sunnan
frá Darmstadt að mig minnir, það
var frá Einari Pálssyni, núverandi
velmetnum ingenieur, og var þess
efnis meðal annars, að íslenskir
stúdentar þar teldu sig engu síðri í
mathematik en þýska kollega
sína. Þetta gladdi og gleður enn
mína gömlu sál, jeg vildi, að Einari
snerist alt í hag og öllum þeim,
sem studdu að viðgangi deildar-
innar meðan hún var og hjet.“
Velmetni verkfræðingurinn
starfaði áratugum saman að mál-
efnum Reykjavíkurborgar. Skipu-
lagsvinna hans og stjórn á verk-
legum framkvæmdum nutu
þeirrar rökhugsunar, sem hann
hafði hlotið í vöggugjöf og þros-
kazt hafði í skóla. Kominn yfir sex-
tugt tók hann við starfi í Háskól-
anum, en þá var kennsla í
byggingarverkfræði komin á það
stig, að honum hentaði. Löngu áð-
ur, eða árið 1943, hafði hann
reyndar verið kvaddur til, en þá
lagði hann ásamt Steinþóri Sig-
urðssyni fyrir háskólaráð álits-
skjal, þegar uppi voru fyrirætlanir
um ,,framhaldskennslu í bygging-
arverkfræði“. Þeir töldu hana ekki
tímabæra, þeir höfðu að leiðarljósi
í áliti sínu, að heimskt væri heima-
alið barn, svo sem þeir minntu á.
Fullur aldarfjórðungur leið áður
en til þessa kom svo, og var Einar
B. Pálsson þá kvaddur til á nýjan
leik til að leggja á ráðin um hið
nýja nám og kom hann svo til
fullra starfa nokkru síðar.
Bjart er yfir minningu um sam-
skipti við Einar hartnær hálfa öld.
Á stundum voru þau býsna tíð og
voru ekki öll samtöl stutt. Ekki
sízt var ánægjuleg samvera í
mörgum ferðalögum, sér í lagi í
Jónsmessuför Raunvísindastofn-
unar, hinni árlegu útilegu starfs-
fólks, þar sem saman voru komin
börn í anda á öllum aldri, en þar
nutum við þess að auðvitað tók
Kristín Pálsdóttir manninn sinn
með.
Börnum þeirra Einars og
Kristínar og fjölskyldu allri eru
færðar kveðjur að leiðarlokum.
Jón Ragnar Stefánsson.
Einn af virtustu tæknimönnum
þessa lands, Einar B. Pálsson,
prófessor, ráðgjafarverkfræðing-
ur og fyrrum yfirverkfræðingur
hjá Reykjavíkurborg, er horfinn á
braut. Ævi hans og störf eru órjúf-
anlega tengd sögu þjóðarinnar á
20. öld og þeim tækniframförum
sem hafa gert líf okkar á Íslandi
bæði þægilegt og skemmtilegt.
Einar átti mikinn þátt í þessari
þróun. Hann hélt ungur maður til
náms til Þýzkalands og lauk prófi í
byggingarverkfræði frá tæknihá-
skólanum í Dresden 1935. Þetta
var á þeim árum sem uppgangur
nazista var mikill og bygging
þýzka þjóðvegakerfisins, sem enn
þann dag í dag er stolt Þjóðverja, í
fullum gangi. Einar kom því með
mikla þekkingu og lærdóm að baki
til Íslands 1936. Hann hóf störf hjá
Reykjavíkurborg þar sem hann
starfaði óslitið til 1963.
Mér er einkum minnisstætt
þegar hann skipulagði og stýrði
framkvæmdum við Miklubraut
hjá Klambratúni. Hann lét skipta
um jarðveg í vegstæðinu, þótt
dýpi niður á fast væri talsvert, og
taldi aðra lausn fráleita. Mikil
blaðaskrif urðu um þetta mál.
Töldu þeir sem minnst vit höfðu á
að hér væri verið að bruðla með
fjármuni borgarinnar að óþörfu.
Við eigum Einari að þakka að
Miklabrautin hefur ekki haggast
þarna í mýrinni síðan og þolað vel
hina miklu umferð sem fer um
hana nú. Einar var þannig einn af
helztu frumkvöðlum okkar að
byggingu nútímalegra umferðar-
mannvirkja. Þegar ég kom til
starfa á Íslandi um miðjan sjö-
unda áratuginn var Einar einn
þeirra verkfræðinga sem við litum
hvað mest upp til og bárum mikla
virðingu fyrir. Hann var þá sjálf-
stæður ráðgjafarverkfræðingur
og önnum kafinn við að skipu-
leggja umferðarkerfi höfuðborg-
arinnar. Hann gaf sér þó tíma til
að sinna hinnum fjölmörgu áhuga-
málum sínum, klassískri tónlist,
skíða- og fjallaferðum svo eitthvað
sé nefnt, en hann var áhrifamikill
á þeim vettvangi, m.a. formaður
Skíðasambands Íslands um skeið.
Fundum okkar bar svo fyrst
saman, þegar hann réð mig til
starfa hjá hægri nefnd veturinn
1967/68. Þar tók ég þátt í því að
undirbúa hægri umferð á Íslandi,
en Einar var lykilmaður í þeirri
aðgerð. Við Einar áttum síðan far-
sælt samstarf sem prófessorar í
byggingarverkfræði við Háskóla
Íslands. Einar tók þátt í að skipu-
leggja verkfræðinámið við Há-
skólann og kom svo til starfa sem
prófessor 1975. Hann sinnti skipu-
lags- og umferðarmálum og öllu
sem tengdist því að byggja betri
bæi og borg, allt fram til starfs-
loka 1984. Einar var ávallt léttur í
spori og mikill félagsmaður. Við
hjónin hittum hann oft, ásamt
Kristínu konu hans, á dansgólfinu
á árshátíð Verkfræðingafélagsins,
grannan og spengilegan. Aðspurð-
ur sagðist hann enn vera í sömu
smókingfötunum og hann klædd-
ist sem stúdent. Með Einari er
genginn einn af betri sonum þess-
arar þjóðar. Ég vil færa fram
þakkir fyrir ánægjulegt og giftu-
ríkt samstarf og sendi, ásamt
konu minni, Sigríði Maríu, að-
standendum samúðarkveðjur.
Júlíus Sólnes.
Einar B. Pálsson lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1930 og hélt þá til
náms í Þýskalandi þar sem hann
lauk Dipl.-Ing.-prófi frá Tec-
hnische Hochschule í Dresden
1935. Þegar Einar var við nám í
Þýskalandi naut hann ríkulega
lista- og menningarlífs sem nær
óhugsandi var að finna hér á landi.
Dresden var þá miðpunktur tón-
listar og leikhúss þar í landi, sem
aðeins Berlín jafnaðist við. Um
þær mundir voru ófriðarský á lofti
víða í Evrópu og stjórnmálahug-
myndir riðu þar hátt sem Einari
voru ekki að skapi.
Því var það að eftir um eins árs
störf við rannsóknir hjá prófessor
K. Beyer í Dresden að Einar flutti
aftur til Íslands og hóf störf hjá
Reykjavíkurborg 1936 þar sem
hann var lengst af yfirverkfræð-
ingur og staðgengill bæjarverk-
fræðings. Hjá borginni starfaði
hann til 1961, einna helst á sviði
gatna- og umferðarmála, en eftir
það var hann sjálfstætt starfandi
verkfræðingur og ráðgjafi til árs-
ins 1974. Sem sjálfstæður ráðgjafi
gegndi Einar lykilhlutverki við
gerð aðalskipulags Reykjavíkur á
fyrri hluta sjöunda áratugar síð-
ustu aldar og sá m.a. um fyrstu
heildstæðu umferðarkönnunina á
Íslandi, en einnig við breytingu í
hægri umferð árið 1968. Þá var
Einar aðalráðgjafi Strætisvagna
Reykjavíkur um leiðakerfi allt
fram á áttunda áratuginn.
Líklega verða það umferðarmál
Reykjavíkur og ritstörf um götur
og gatnakerfi í bæjarskipulagi auk
kennslunnar, sem halda munu
nafni Einars á lofti um langa tíð.
Aðalskipulag Reykjavíkur 1962-
1983 varð um margt fyrirmynd
skipulagsáætlana næstu áratug-
ina og þá voru hugmyndir um að-
greiningu umferðar og flokkun
gatnakerfis, sem Einar hafði
fyrstur manna kynnt til sögunnar
hér á landi. Þetta voru og fræðin
sem stúdentar í greinum sem
hann sáum höfðu tileinkað sér og
fylgja því margir í megindráttum
enn. Það sem Einar kom einnig
með inn í kennsluna í byggingar-
verkfræðina í byrjun áttunda ára-
tugarins voru praktísk viðfangs-
efni. Framan af var verkfræðin
nefnilega ekki eins fræðilega
stemmd og hún síðar varð með
allskonar gæðakvörðum byggðum
á birtingu ritrýndra greina. Einar
var einnig frumkvöðull að sam-
starfi við þýska háskóla, sem enn
er blómlegt, og margir íslenskir
stúdentar fara þangað í fram-
haldsnám í verkfræði, einkum til
Karlsruhe.
Einar missti ekki sjónar af
nemendum sínum eftir að námi
lauk og við nánari kynni síðar
komst maður að því að hann var í
grunninn kennari og allt til hins
síðasta var hann að segja manni
til. Persónulega þakka ég fyrir
þessa framlengdu handleiðslu,
sem náði langt út fyrir hinn verk-
fræðilega heim. Ég á Einari það
meðal annars að þakka að hafa
platað mig inn í heim kammertón-
listar. Á konsertum Kammermús-
íkklúbbsins sá ég að hann hafði
snarað fleiri en mig og held ég að
margir séu honum þakklátir fyrir
það.
Þorsteinn Þorsteinsson.
Kveðja frá Umhverfis- og
byggingarverkfræðideild
Háskóla Íslands
Einar B. Pálsson verkfræðing-
ur, prófessor og heiðursdoktor, er
látinn í hárri elli. Einar var pró-
fessor í byggingarverkfræði árin
1974-1982. Hann kenndi einnig
nokkur ár eftir að hann fór á eft-
irlaun og sinnti jafnframt rann-
sóknum, einkum íðorðasöfnun.
Kennslugreinar Einars voru á
sviði svonefndra bæjarverkfræði-
greina, veitukerfa og umferðar-
skipulags. Þá lét hann sér annt um
umhverfismál og sá snemma
nauðsyn þess að byggingarverk-
fræðingar tileinkuðu sér umhverf-
isvernd og tækju tillit til umhverf-
ismála í allri mannvirkjahönnun.
Þegar Einar tók til starfa við Há-
skóla Íslands var nýlega byrjað að
kenna verkfræði til lokaprófs og
höfðu ekki verið kenndar slíkar
hagnýtar námsgreinar í því fyrri-
hlutanámi sem áður hafði verið
boðið upp á. Það var því mikill
fengur fyrir verkfræðikennsluna
að fá jafn reyndan og fjölhæfan
verkfræðing og Einar var. Auk
rannsókna og kennslu tók Einar
þátt í alþjóðlegu samstarfi, m.a. í
norrænni nefnd um framtíð al-
menningssamgangna í meðalstór-
um bæjum á Norðurlöndunum ár-
in 1972-1978. Fljótlega eftir að
Einar tók til starfa við Háskóla Ís-
lands sá hann að bæta mætti sam-
skipti verkfræðinnar við þýska há-
skóla. Hafði hann frumkvæði að
formlegri samvinnu við Universi-
tät Karlsruhe og hafa íslenskir
verkfræðistúdentar í Þýskalandi
notið þess síðan. Árið 2007 kom út
hjá Háskólaútgáfunni Umhverfis-
tækni: íðorðasafn, sem var af-
rakstur fræðastarfs Einars til
margra ára.
Einar B. Pálsson var þekktur
maður í þjóðlífinu og virkur í fé-
lagslífi. Hlotnaðist honum fyrir
þau störf sín margháttuð viður-
kenning. Má nefna að Einar var
formaður Skíðasambands Íslands
í mörg ár og formaður Verkfræð-
ingafélags Íslands um tíma. Var
hann síðar gerður að heiðurs-
félaga þessara samtaka. Þá hlaut
hann riddarakross hinnar ís-
lensku fálkaorðu árið 1991 og var
sæmdur heiðursdoktorsnafnbót
við Háskóla Íslands 1992.
Einar B. Pálsson var virtur
kennari og mikils metinn sam-
starfsmaður og minnast hans
margir fyrir það, en einnig sem
framúrskarandi fyrirmynd ungra
verkfræðinga. Blessuð sé minning
hans.
Sigurður Magnús
Garðarsson.
Stefan Zweig segir í Veröld
sem var að með stríðinu 1914 hafi
horfið að eilífu sá heimur sem
hann ólst upp í. Og þótt með öðr-
um hætti sé, finnst mér og senni-
lega mörgum öðrum sem þekktu
Einar Pálsson, sem kaflaskil verði
þegar hann hverfur af sjónarsvið-
inu. Því enda þótt hann væri mað-
ur nútímans fram í fingurgóma,
maður tækni og vísinda, þá stóðu
rætur hans í heimi sem að vissu
leyti hvarf með seinna stríðinu. Á
unglingsárum bjó hann á form-
föstu embættismannaheimili for-
eldra sinna í Höfða (nú við Höfða-
tún) en á háskólaárunum í
Þýskalandi á þeim tíma þegar naz-
istar byrjuðu að rústa landinu sem
verið hafði háborg menningar, vís-
inda og tækni í heiminum. Í Dres-
den gerðist Einar sá ákafi unnandi
óperu og æðri tónlistar sem hann
æ síðan var. Í stjórn Kammer-
músíkklúbbsins var hann í ára-
tugi, staðfastur fulltrúi Beetho-
vens, Mozarts og Haydns í veröld
á hverfanda hveli. Reyndar tók
Einar tónlistina svo alvarlega að
frekar en að fara óundirbúinn á
tónleika hlustaði hann áður af
plötum rækilega á verk sem hann
þekkti ekki fyrir.
Sjálfum finnst mér að ævir okk-
ar Einars hafi legið samsíða í
næstum 70 ár. Sú för hófst reynd-
ar 1937 eða svo, einum þremur ár-
um áður en ég fæddist, þegar
hann sem ungur verkfræðingur
hjá Reykjavíkurbæ var að mæla á
Skólavörðustígnum með nýjum
Wild-theodólít. Þá bar að mann
sem þótti mikið til tækisins koma
og þeir tóku tal saman. Þetta var
Steinþór Sigurðsson sem stundað
hafði landmælingar á hálendi Ís-
lands í mörg sumur á vegum
Dana, sennilega með frumstæðari
tækjabúnaði. Upp frá þessu voru
þeir Steinþór vildarvinir, sálu-
félagar og oft samstarfsmenn í
áratug, uns Steinþór fórst við
Heklu í gosinu 1947 þar sem þeir
Einar voru saman við rannsóknir.
Margar æskuminningar mínar
tengjast því Einari Pálssyni, enda
hélst vinátta milli fjölskyldnanna
þótt Steinþór félli frá. Og síðar
þótti mér, með réttu eða röngu,
mikið til Einars koma sem uppal-
anda barna sinna, því að eigin
sögn reyndi hann ekki að beina
þeim á sér-þóknanlegar brautir,
heldur örvaði þau til þeirra góðra
hluta sem hugur þeirra stefndi til.
Svo fórum við báðir að kenna við
Háskóla Íslands upp úr 1970, og
vorum síðar saman um árabil í
stjórn Kammermúsíkklúbbsins.
Einar Pálsson kom víða við á
langri ævi og sem betur fer hafa
ýmsir orðið til að skrá sitthvað af
því. En nú var svo komið að engu
varð við bætt. Líkt og Alan Karls-
son sem strauk úr 100 ára afmæl-
isboði sínu í vinsælli bók sem allir
eru nú að lesa, sáu örlögin til þess
að Einar B. Pálsson hvarf af heimi
hér fjórum mánuðum fyrir eigið
aldarafmæli. En eilíft líf á hann í
verkum sínum og þó einkum í af-
komendunum.
Sigurður Steinþórsson.
Fáum vandalausum á ég jafn-
mikla þakkarskuld að gjalda og
einmitt Einari B. Pálssyni sem nú
er látinn í hárri elli. Mér hefur
lengi verið hugstæð setningin um
að það þurfi þorp til að ala upp
barn. Uppeldi fer ekki aðeins fram
innan veggja eigin heimilis. Barn
sem á því láni að fagna að vera
heimagangur í næstu götu getur
sótt þangað áhrif og fyrirmyndir.
Vesturbær Reykjavíkur bar á
sjötta áratug síðustu aldar einmitt
mörg einkenni lítils sveitaþorps.
Grásleppukarlar við Ægisíðu,
sauðfé og hænsni niður við Lamb-
hól, ryðgaðir braggar, leifar af
steinsteyptum byrgjum úr stríð-
inu þar sem hægt var að leita
skjóls við að reykja njóla, óhirt tún
þar sem sinan brann að hausti, op-
in skólpræsi rétt við þann stað þar
sem við krakkarnir skipulögðum
lítið þorp og reyndum að stemma
stigu við sjávarföllum; allt er þetta
í minningunni ævintýraheimur þó
síst beri að lasta þá snyrtilegu
göngustíga og aðstöðu til líkams-
ræktar sem nú hefur tekið við.
Fyrsti viðkomustaður í könn-
unarleiðöngrum um þennan ævin-
týraheim var oftast nær Ægisíða
44 þar sem Árni Einarsson, yngsti
sonur Einars, jafnaldri minn (því
sem næst) og leikbróðir bjó. En
enginn sem kom inn fyrir hússins
dyr á Ægissíðu átti þess undan-
komu auðið að fræðast af Einari
B. Pálssyni. Hann var kennari af
guðs náð, hafði sérstakt yndi af að
kenna öðrum og var það sem Þjóð-
verjar kalla „Besserwisser“ sem
var í góðu lagi því hann vissi ein-
faldlega allt betur. Hann gerði
heiðarlega tilraun til að kenna
mér nöfn jurta og fugla, lesa
landslag, og þekkja stjörnur him-
insins. Allt of lítið af öllu þessu
festist þó í huga mér. Hann dró
mig einnig með í skíðagöngu, að
vísu á Melavellinum til að vinna
inn punkta í norrænni keppni, en
tókst ekki að gera skíðakappa úr
mér. Það sem hins vegar féll í frjó-
an jarðveg var það tónlistarupp-
eldi sem ég fékk á Ægisíðunni.
Einar tók mig með á mína fyrstu
sinfóníutónleika, kynnti mig fyrir
klassískri tónlist og örvaði með
margvíslegum hætti tónlistar-
áhuga. Seinna hóf ég svo píanó-
nám hjá Sigríði dóttur hans sem
þá var að hefja sinn feril sem pí-
anókennari. Þó ég næði aldrei svo
langt í lífinu að verða tónlistar-
maður hefur tónlistin æ síðan ver-
ið uppspretta gleði og ánægju.
Tónlistin átti einnig eftir að
verða leiðarstef í samskiptum
okkar Einars gegnum árin, þar
sem við hittumst gjarnan í höfuð-
vígi hans Kammermúsikklúbbn-
um eða annars staðar þar sem tón-
list var á hávegum höfð. Eftir að
ég tók við starfi sem sendiherra í
Berlín á síðasta ári hafði hann sér-
stakt yndi af að rifja upp þá tón-
leika sem hann hafði sótt í Þýska-
landi á námsárunum fyrir stríð.
Gæði
Þjónusta
Gott verð
Úrval
Fagmennska
Kársnesbraut 98 | Kópavogur | S: 564 4566
www.solsteinar.is | sol@solsteinar.is