Morgunblaðið - 09.11.2011, Síða 33

Morgunblaðið - 09.11.2011, Síða 33
Þegar ég rakti fyrir honum hvern- ig þýska utanríkisráðuneytið væri að gera upp fortíð sína á valdatíma nasista var þetta honum mikið fagnaðarefni og tók hann af mér loforð að senda sér efni um þetta. Það loforð efni ég ekki úr þessu og sakna þess að geta ekki fylgt Ein- ari síðasta spölinn. Gunnar Snorri Gunnarsson. Fjaran við Ægisíðu í Reykjavík hefur löngum verið leiksvæði barna. Á fjöru hafa ókannaðar slóðir sem annars eru undir sjó seiðandi aðdráttarafl. Hvað er þar að sjá sem annars er hafsbotn? Hver kemst lengst frá landi? Snemma á sjöunda áratugnum atvikaðist það svo að tveir strákar höfðu brölt yfir sleipan þarann og náð alla leið þangað sem nokkrir stórir steinar gnæfa upp úr og sjást jafnt á fjöru sem flóði. Þeir gleymdu sér líklega af spenningi og tóku ekki eftir að flæddi að fyrr en þeir og hinir krakkarnir, sem skemmra höfðu farið, áttuðu sig á, að engin fær leið var að landi. Enginn var syndur á svo ungum aldri. Upp hófust hróp og köll á hjálp. Svo vildi til að mann bar að sem án þess að hika óð út í sjóinn og út að steinunum þar sem hinir tveir hímdu, sótti þá og bar á land. Mamma hlúði að stráknum sínum þegar heim var komið, en síðan setti að henni skjálfta við tilhugs- unina um hvað hefði getað orðið. Ég gaf mig fram við Einar B. Pálsson fyrir mörgum árum og vakti máls á þessum atburði með þakkarorðum. Já, varst það þú, sagði hann og lét falla vinsamleg orð í minn garð. Við heilsuðumst ávallt síðan, meðal annars á tón- leikum Sinfóníunnar. Fyrir fáum árum mættumst við á göngu við Ægisíðu á björtum og fögrum degi. Tókum tal saman, rifjuðum upp atvikið og hann benti ná- kvæmlega á staðinn sem þetta gerðist. Fleira ræddum við, vor- um þingsveinar á Alþingi með hátt í hálfrar aldar millibili og bárum saman bækur um þá skemmtilegu reynslu. Að Einari B. Pálssyni látnum hugsa ég með virðingu og þökk til þessa heiðursmanns sem bar aug- ljós merki gæfu og farsældar í lífi sínu. Ástvinum hans færi ég inni- legar samúðarkveðjur. Ólafur Ísleifsson. MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Gisting Höfum til leigu íbúð með gistiaðstöðu fyrir 6-7 manns. Fullbúin íbúð, gott verð. Upplýsingar í síma 690-4899. Hljóðfæri Píanótímar Tek að mér að kenna fólki á öllum aldri á píanó. 20+ ára reynsla í kennslu. Fyrsti tími frír. S. 698 8288. Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Tómstundir Fjarstýrðar þyrlur í úrvali Erum með mikið úrval af fjarstýrðum þyrlum. Nýjasta tækni. Tilbúin til flugs beint úr kassanum. Netlagerinn slf. / Tactical.is - Dugguvogi 17-19, 2. hæð. S. 517-8878. Til sölu Plastgeymslu-útihús Plastgeymslu-útihús. 4,5 fm. Auðveld í uppsetningu og viðhaldsfrí. Verð 180 þús. Uppl. í síma 893-3503 eða 845-8588. Óska eftir Kaupi gamla mynt og seðla Kaupi gömul mynt- og seðlasöfn. Met og geri tilboð á staðnum. Áralöng reynsla. Kaupi einnig minnispeninga og orður. Gull- og silfurpeninga. Sigurður 8215991. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Ýmislegt TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ Dömuskór úr leðri. Verð: 3.500,- Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími: 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18, opið lau. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílaþjónusta SÖLUSKOÐANIR BIFREIÐA Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður en þú gengur frá kaupunum. Skoðunin kostar frá kr. 9.900. Ekki þarf mikið til að hún borgi sig margfalt. Fáðu aukna vissu í bílakaupin með söluskoðun Frumherja. Tímapantanir í síma 570 9090. Frumherji – örugg bifreiðaskoðun. Hjólbarðar Kebek vetrardekk Hönnuð og prófuð í Kanada. 4 dekk + umfelgun - Tilboð 185/65 R 15 49.900 kr. 195/65 R 15 53.900 kr. 205/55 R 16 63.900 kr. 215/65 R 16 79.900 kr. Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b, Kópavogi, s. 5444333. Ökukennsla Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '11. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Auris '11. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i. 8921451/5574975. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verk. Upplýsingar í síma 847 8704 eða manninn@hotmail.com. Stigahúsateppi Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík. S. 533 5800. www.strond.is. Það stafaði ævintýraljóma af nafni Óla Tynes. Hann var að sönnu afburða blaða- og frétta- maður; stjörnublaðamaður eins og nú tíðkast að kalla slíka. Hann kom víða við sögu á löngum ferli, átti mörg „skúbbin“. Sól Óla reis líklega hæst þegar ég var að stíga mín fyrstu spor í blaðamennsku eftir að hafa orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að vera einn af stofn- endum Dagblaðsins haustið 1975. Þá stafaði ævintýraljóma af nafni Óla Tynes. Hann var á vettvangi sögulegustu stundar þorskastríð- anna þegar freigátan Falmouth sigldi á varðskipið Tý vorið 1976. Það var heimssögulegur atburð- ur og mikil mildi að enginn fórst í þeim hildarleik. Óli var um borð í Óli Tynes Jónsson ✝ Óli Tynes Jóns-son fæddist í Reykjavík 23. des- ember 1944. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 27. októ- ber 2011. Útför Óla Tynes fór fram frá Foss- vogskirkju í Reykjavík 3. nóv- ember 2011. Falmouth. Breska ljónið öskraði af öll- um mætti en þá stóð Ísland í lapp- irnar gagnvart evr- ópsku ofbeldi og á barmi mesta sigurs íslenska lýðveldis- ins; fullnaðarsigurs í baráttunni um landhelgina. Þá var Ísland áhrifamesta smáríki veraldar og Henry Kissinger, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, talaði um vald „hinna smáu“ yfir stórþjóð- um. Ég gef Óla orðið: „Týr var fram undan á stjórnborða – mér fannst makalaust hvað freigátan var fljót að ná upp hraða. Vél- arafl Falmouth var gífurlegt – hraðinn var farinn að nálgast hraða bílanna á Miklubrautinni. Þegar Plumer skipherra sagði „Hard to starboard!“ áttaði ég mig á hvað var að gerast. Ég var kominn með dynjandi hjartslátt. Mér brá hrikalega, rann kalt vatn milli skinns og hörunds. Nú sá ég raunverulega hvað stóð til. Gat þetta verið? Ég ætlaði ekki að trúa þessu – ekki síst af því að þetta mikla herskip var á fullri ferð. Nú blasti við að þúsundir tonna myndu rekast á Tý. Eins og stórt mótorhjól keyrði á vespu – slíkur var stærðarmunurinn. Það lá ljóst fyrir hvað breski skipherrann ætlaði sér. Hann hugðist sigla beint inn í hliðina á Tý á fullri ferð – nokkuð sem aldrei hafði gerst í neinu þorska- stríði. „Nei, nei, nei!“ hrópaði ég. Það er við hæfi að minnast hinna miklu atburða, nú þegar þessi góði drengur hefur kvatt en hann lýsti atburðum í gamla Vísi og ágætri bók Óttars Sveinsson- ar fyrir nokkrum árum. Það var ekki fyrr en á tíunda áratugnum sem leiðir okkar lágu saman á Stöð 2 og Bylgjunni. Það tókst með okkur góð vinátta sem aldrei bar skugga á. Af Óla stafaði ein- læg vinsemd í garð allra. Góður drengur er fallinn frá, langt um aldur fram. Ég votta fjölskyldu Óla innilega samúð mína. Hallur Hallsson. Elsku vinur, nú kveð ég þig í hinsta sinn. Minningarnar eru margar sem munu lifa með mér það sem ég á eftir ólifað. Þú snertir mörg hjörtu á þinni lífs- leið, mitt hjarta er eitt af þeim. Orð þín þegar við hittumst voru alltaf: „Svenni minn, hvernig hef- ur þú það, elsku karlinn minn“ og svo kom faðmurinn á eftir. Það var sannkallaður heiður að fá að hafa kynnst þér, vinna með þér, læra af þér. Allar þær stundir sem við eyddum í að skiptast á skoðunum. Ég naut hverrar mín- útu af þeim tíma. Með andláti þínu er stórt skarð höggvið í stétt fréttamanna. En það góða við þetta allt er að goðsögn þín mun lifa um aldur og ævi. Ég verð einn af þeim sem segja sög- ur af vini mínum Óla Tynes og ævintýrum hans Ég ætla að kveðja þig með þessum orðum: Ef það er til ann- að líf eftir þetta líf þá ætla ég að þekkja þig líka þar. Sveinn Snorri Sighvatsson. Sunnudag 6. mars 1966 stofn- uðu nokkrir ungir áhugamenn um froskköfun með sér fé- lagsskap. Var stofnfundurinn haldinn á ísjaka úti á Elliðavogi. Aðalhvatamaður að stofnuninni var Óli Tynes, og var Óli einróma kjörinn formaður félagsins. Að hans uppástungu var félagið og félagarnir kallaðir „Syndaselir“ Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á, í víðáttu stórborgarinnar. En dagarnir æða mér óðfluga frá og árin án vitundar minnar. Og yfir til vinarins aldrei ég fer enda í kappi við tímann. Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er, því viðtöl við áttum í símann. En yngri vorum við vinirnir þá, af vinnunni þreyttir nú erum. Hégómans takmarki hugðumst við ná og hóflausan lífróður rérum. „Ég hringi á morgun,“ ég hugsaði þá, „svo hug minn fái hann skilið“, en morgundagurinn endaði á að ennþá jókst milli’ okkar bilið. Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk, að dáinn sé vinurinn kæri. Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk, að í grenndinni ennþá hann væri. Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd gleymdu’ ekki, hvað sem á dynur, að albesta sending af himnunum send er sannur og einlægur vinur. (Höf. ók. Þýð. Sig. Jónsson) Ég votta ættingjum innilega samúð mína. Óli Rafn (Syndaselur). Sveitakeppni lokið í Gullsmáranum Sveit Þorsteins Laufdal sigraði í sveitakeppni félagsins, eftir harða lokabaráttu. Auk Þorsteins spiluðu í sveitinni: Páll Ólason, Sigurður Njálsson og Pétur Jónsson. Lokastaða efstu sveita: Sveit Þorsteins Laufdal 238 Sveit Lúðvíks Ólafssonar 227 Sveit Ármanns J. Lárussonar 224 Sveit Guðrúnar Gestsdóttur 216 Sveit Birgis Ísleifssonar 214 Sveit Guðrúnar Hinriksdóttur 212 Sveit Einars Markússonar 206 Sveit Þorleifs Þórarinssonar 205 Að lokinni sveitakeppninni,var spilaður stuttur tvímenningur. Úrslit íN/S: Ragnar Haraldsson - Bernhard Linn 183 Næsta sunnudag, 13. nóv., hefst fjögurra kvölda tvímenningskeppni, þar sem þrjú bestu kvöldin gilda til úrslita. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum klukkan 19. Svæðamót Norðurlands vestra í tvímenningi Laugardaginn 5. nóvember var spilaður tvímenningur í brids í bók- námshúsi Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra. Um var að ræða svæða- mót Norðurlands vestra. Til leiks mættu 14 pör. Spilaðar voru 13 umferðir, 4 spil milli para eða 52 spil. Úrslit urðu sem hér segir: Eyjólfur Sigurðsson - Ólafur Sigmarsson 75 Reynir Helgason - Frímann Stefánsson 71 Björn Friðriksson - Björn G. Friðriksson 47 Smári Víglundsson - Marinó Steinarsson 37 Jón Örn Berndsen - Ásgr. Sigurbjörnss. 16 nóvember. Spilað var á 13 borðum. Meðalskor: 312 stig. Árangur N-S: Haukur Harðarson – Ágúst Helgason 385 Björn Svavarss. – Jóhannes Guðmannss. 380 Birgir Sigurðsson – Jón Þór Karlsson 366 Júlíus Guðmss. – Magnús Halldórss. 330 Árangur A-V: Albert Þorsteinsson – Bragi Björnss. 388 Sigurjón Helgason – Helgi Samúelss. 384 Oddur Jónsson – Óskar Ólafsson 350 Höskuldur Jónss. – Elías Einarss. 327 Bridsdeild Breiðfirðinga Sunnudaginn 6/11 var spilaður eins kvölds tvímenningur. Hæsta skor kvöldsins í N/S: Jórunn Kristinsd. - Stefán Óskarsson 222 Birgir Kristjánsson - Jón Jóhannsson 221 Oddur Hannesson - Árni Hannesson 209 Austur/Vestur: Magnús Sverriss. - Guðlaugur Sveinss. 197 Sigrún Andrews - Ólöf Ingvarsd. 188 Birna Lárusd. - Sturl. Eyjólfsson 183 Katarínus Jónsson - Jón Bjarnar 76 Þorsteinn Laufdal - Páll Ólason 73 A/V Örn Einarsson - Pétur Antonsson 81 Gunnar Alexanderss. - Elís Helgas. 72 Það verður svo tvímenningur á dagskrá til jóla. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl 4, mánudaginn 7. nóvember. Spilað var á 14 borðum. Meðalskor: 312 stig. Árangur N - S: Júlíus Guðmss. - Magnús Halldórss. 403 Bjarni Þórarinss. - Oddur Halldórss. 390 Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 346 Valdimar Ásmundss. - Björn Péturss. 346 Árangur A - V: Ágúst Vilhelmss. - Kári Jónsson 386 Albert Þorsteinsson - Bragi Björnss. 384 Hrólfur Guðmss. - Karl Loftsson 382 Jón Þór Karlss. - Magnús Jóhannss. 358 Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl 4, fimmtudaginn 3. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota innsendi- kerfi blaðsins. Smellt á Morgun- blaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein", valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.