Morgunblaðið - 09.11.2011, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.11.2011, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011 Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Út er komin platan Aðeins meira Pollapönk sem er þriðja plata þess- arar síkátu hljómsveitar. Pollapönk er hugarfóstur leik- skólakennaranna Heiðars (Heiðar Örn Kristjánsson) og Halla (Har- aldur Freyr Gíslason) en þeir fé- lagar voru/eru báðir meðlimir í hafn- firsku rokksveitinni Botnleðju. Árið 2007 barst félögunum liðsstyrkur þegar þeir Guðni Finnsson og Arnar Gíslason gengu til liðs við sveitina og hefur leiðin legið upp á við allar göt- ur síðan. Frelsi og ábyrgð „Við erum mjög stoltir af þessari plötu,“ segir Haraldur. „Eins og öll- um hinum. Og það er einföld ástæða fyrir því að við erum að þessu og er- um að halda áfram með þetta verk- efni. Þetta er alveg meiriháttar skemmtilegt og gefandi. Þetta er t.d. ótrúlega skemmtilegur vettvangur fyrir popplagasmíði, frelsið er mikið en ábyrgðin sömuleiðis.“ Haraldur segir að innan sveit- arinnar reyni meðlimir mark- miðsbundið að búa til tónlist sem foreldrar og börn geti hlustað á sam- an. Það sé hins vegar erfið lína að feta. „Við semjum inn á plöturnar jafnt og þétt og ég og Heiðar erum að- allega í því. Fyrir þessa plötu vorum við með 25 laga bunka og úr honum völdum við 12 lög. Textarnir eru hins vegar snúnastir, það fer mikil vinna í þá alla jafna.“ – Maður skynjar lítil þreytumerki á ykkur, frekar að þið séuð að færast í aukana … „Það er ótrúlega gaman að spila á tónleikum fyrir fólk. Það er nærandi að fá kraft frá áhorfendum og gildir þá einu hvort þeir eru þriggja eða hundrað ára. Það er líka einu sinni þannig að ef þú hefur ekki sjálfur gaman af því sem þú ert að gera þá er þér ómögulegt að dýrka gleðina upp í öðrum.“ Pöllapönk fyrir alla Haraldur segir að hann og Heiðar hafi bara verið tveir í þessu í upphafi en þegar þeir Guðni og Arnar bróðir hans hafi slegist í hópinn hafi nýjar víddir opnast. „Þá varð þetta að starfandi hljóm- sveit sem ber virðingu fyrir við- fangsefninu og leggur sama kraft og sömu elju í það sem hún er að gera og aðrar sveitir. Það er ekkert minna kúl að vera í Pollapönki og að vera í Botnleðju eða spila með Mug- ison eða hvað það er. Við erum Polla- pönk, við erum í göllum, við erum í stuði og erum að búa til popplög sem við vonum að sem flestir fíli.“ Pollapönk hefur slegið í gegn hjá ungviðinu en „gamlviðið“, svo ég ný- yrðist aðeins hefur verið móttæki- legt sömuleiðis – sem er jú bundið í tilgang sveitarinnar eins og fram hefur komið. „Við spiluðum að kvöldi til á Kántríhátíðinni á Skagaströnd ein- hverju sinni og það var troðfullt. Al- veg eins og við værum á unglinga- balli. Svo spiluðum við einhvern tíma í kringum Airwaves og útlending- arnir fíluðu þetta í botn, skildu auð- vitað ekkert í textunum. Við erum alltaf að pota í útgefandann okkar um að bóka okkur inn á „venjuleg“ gigg og hann heldur að við séum að djóka en við erum ekkert að djóka. Af hverju ekki Pollapönk á Airwa- ves? Músíkin er flott, bandið er gott og ef þú tekur þessa barnabreytu út þá er þetta bara músík – fyrir alla!“ Stefnt er að útgáfutónleikum í til- efni plötunnar í desember. Hressir! Haraldur, Guðni, Arnar og Heiðar skipa Pollapönk. Þrjár plötur eru nú að baki og þreytumerkin eru nákvæmlega engin. Næring, kraftur, stuð  Hljómsveitin Pollapönk gefur út þriðju plötu sína, Aðeins meira Pollapönk  Tveir íslenskir kvikmyndagerð- armenn sýna kvikmyndir sínar á Bíódögum á Norðurbryggju í Kaup- mannahöfn á næstunni. Friðrik Þór Friðriksson mætir fyrstur til leiks hinn 17. nóvember með kvikmynd sína Mamma Gógó og þann 1. desember sýnir Hilmar Oddsson sína nýjustu mynd „Des- ember“. Eftir sýningarnar munu leikstjórarnir ræða myndirnar við áhorfendur sem og umsjónarmann Bíódaganna, Birgi Thor Møller. Ísland á dönsk- um Bíódögum  Hljómsveitin Reykjavík! mun fagna útgáfu breiðskífunnar Locust Sounds með heljarinnar veislu á KEX Hosteli á morgun og verður hún með nokkuð óvenjulegu sniði. Tjöruhúsið, hinn sögufrægi ísfirski veitingastaður, verður með dýr- indis fiskihlaðborð áður en tón- leikar hefjast og Markús Bjarnason og FM Belfast flytja tónlist ásamt að sjálfsögðu Reykjavík! Reykjavík! með útgáfutónleika! Undirbýr afmælistónleika í Eldborg Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég er að verða eldri en nokkru sinni áður og því liggur beint við að fagna þeim merku tímamótum,“ segir Val- geir Guðjónsson sem verður sextugur 23. janúar nk. og hyggst af því tilefni blása til veglegra afmælistónleika í Eldbogarsal Hörpu sunnudaginn 22. janúar nk. „Þetta verða persónulegir tónleikar þar sem ég fer í gegnum það efni sem ég hef lagt til í þjóð- arbúið,“ segir Valgeir, en eftir hann liggja yfir 600 lög og tónverk og því úr nógu að moða, auk þess sem Val- geir segir allar líkur á að hann muni kynna nýtt efni til sögunnar á tónleik- unum. Í tilefni tónleikanna er von á geislaplötu frá Senu með lögum Val- geirs. „Þetta verður tvöföld ef ekki þref- öld plata sem mun gefa gott yfirlit yf- ir lögin mín,“ segir Valgeir og tekur fram að ekki sé ósennilegt að platan og tónleikarnir muni kallast á með einhverjum hætti í lagavalinu. Spurð- ur hvort von sé á endurkomu Spil- verksins og Stuðmanna á tónleik- unum segir Valgeir aldrei að vita, en tekur fram að enn sé ýmislegt á huldu. „Ég verð með einvalalið af val- inkunna taginu með mér,“ segir Val- geir og tekur fram að honum finnist skemmtilegast þegar tekst að mynda hlýlegt andrúmsloft með mikilli ná- lægð á tónleikum. Spurður hvort ekki geti verið vandasamt að fanga slíka stemningu í stærsta sal Hörpu svarar Valgeir því neitandi. „Þetta er svo hlýr og umfaðmandi salur auk þess sem allir eru sammála um að hljómburðurinn þar sé sá besti í heimi,“ segir Valgeir. Valgeir hefur í nógu að snúast þessa dagana því hann er að undirbúa tónleika með Jóni Jónssyni, en þeir munu koma fram í Fuglabúri FTT á Café Rósen- berg þriðjudaginn 6. desember. „Vin- ur minn Jón Ólafsson, fram- kvæmdastjóri FTT, kom með þessa hugmynd, en í tónleikaröð félagsins er hleypt saman tónlistarfólki af sitt hvorri kynslóðinni,“ segir Valgeir og tekur fram að þeir Jón eigi það sam- eiginlegt að vera afskaplega skapgóð- ir tónlistarmenn. „Það skilar sér í lögum sem stafa af sér kæti og gleði sem aldrei er of mik- ið af í lífinu. Svo er Jón mjög flinkur gítaristi, raunar miklu betri en ég, þannig að ég hlakka mikið til. Svo ætla ég að spila hjá mínum gamla fé- laga Tómasi M. Tómassyni á Obladí tónlistarkránni þann 3. desember þar sem ég hitti fyrir gamla tónlistarvini“ Valgeir brá sér nýverið í hlutverk tónlistarstjóra fyrir gamansöngleik- inn Hrekkjusvín sem sýndur er um þessar mundir í Gamla bíói og byggir á hljómplötunni Lögum unga fólksins sem Valgeir samdi bróðurpart laga á fyrir 34 árum. Í tilefni uppfærslunnar tóku hann og Sigurður Bjóla sig til og endurhljóðblönduðu upprunalegu plötuna. „Bjólan, sem er einn fremsti upptökustjóri og upptökumaður landsins, er búinn að fara um þetta höndum og mýkja hljóminn og skýra. En við erum engu að breyta,“ segir Valgeir og tekur fram að reyndar verði nokkur ný lög á nýju geislaplöt- unni sem hann samdi sérstaklega fyr- ir söngleikinn, en platan er vænt- anleg síðar í þessum mánuði. Þar með er ekki upptalið allt það sem Valgeir er með á sinni könnu því dagleg við- fangsefni hans felast í starfsemi menningarhússins NemaForum í Hafnarhvoli við Tryggvagötuna undir merkjum www.nemaforum.com ásamt eiginkonu sinni, Ástu Krist- rúnu Ragnarsdóttur. „Við leigjum út NemaForum-stofur sem eru afar sér- stakar og þykja hlýlegar og umfaðm- andi í anda liðinnar tíðar fyrir teiti, fundi og ráðstefnur, auk þess að nýta þær sjálf til námskeiðahalds og fyrir eigin menningarvökur með tónlist og sögum. Framundan eru jólavökur af ýmsum stærðum og gerðum fyrir þá sem leggja meiri áherslu á að auðga andann er magann í aðdraganda há- tíðanna. Nábýlið við gömlu höfnina gefur góðan straum og kraft!“ segir Valgeir í blálokin.  Von á geislaplötu frá Valgeiri Guðjóns- syni með úrvali laga af löngum ferli Flottur Hinn síungi Valgeir Guðjónsson verður sextugur á næsta ári. Emilía, ekki Elsa Í blaðinu síðasta laugardag áttu þau mistök sér stað í dómi um bókina Nóvember 1976 að hönnuður bók- arkápunnar var rangnefndur. Kápu- hönnun var í höndum Emilíu Ragn- arsdóttur. Ekki Elsu Bjargar Magnúsdóttur eins og ritað var, hún tók aftur á móti mynd af höfundi bókarinnar. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTTING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.