Morgunblaðið - 09.11.2011, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2011
Það er mikið í húfi þegar tím-inn er orðinn gjaldmiðill oglífsbaráttan í fátækrahverf-unum snýst um það að ná
að skrapa saman nógu mörgum mín-
útum til að lifa af fram á næsta dag.
Þetta er grunnhugmyndin á bak við
ræmuna In Time og vekur mann
sjálfkrafa dálítið til umhugsunar um
eigið gildismat og hversu háð við er-
um orðin peningum og hvernig lífs-
gæðakapphlaupið á það til að hlaupa
með fólk í gönur.
Will Salas (Timberlake) býr í fá-
tækrahverfinu og lifir lífinu dag fyrir
dag. Hann rekst eitt kvöldið á mann
sem virðist ekki skorta tíma, er með
heila öld á sér, en eftir að maðurinn
gefur honum allan tímann sinn og
fyrirfer sér er Salas sakaður um
morð. Hann hafði hugsað sér að taka
móður sína með sér til New Gren-
wich, þar sem fína fólkið býr, en þau
hittast ekki í tæka tíð og tíminn henn-
ar rennur út. Hann ákveður þá að
fara samt en þegar hann er kominn á
staðinn kemst hann á snoðir um það
að það er ekki allt fallegt í heimi ríka
og fína fólksins.
Hann kynnist, fyrir tilstilli föður
hennar, Sylvíu Weis (Seyfried), mold-
ríkri stúlku sem hefur aðgang að nær
ótakmörkuðum tíma þar sem téður
faðir rekur banka sem lánar fátæka
fólkinu á okurvöxtum. Þau ákveða að
leggja af stað í eins konar krossför
gegn oki hinna ríku og eru um leið í
Hróa hattar leik að ræna þá ríku og
gefa þeim fátæku og á flótta undan
tímaverðinum Raymond Leon
(Murphy). Þetta fléttast allt saman í
nokkuð spennandi eltingaleik og er
handritið nokkuð vel úthugsað í
kringum þetta allt saman og flækju-
stigið nokkuð passlegt.
Kvikmyndataka er í höndum hins
margverðlaunaða og óskarstilnefnda
Roger Deakins og er þar augljóslega
gott handbragð og vel að verki staðið.
Í heildina er þetta nokkuð skemmti-
leg ræma sem heldur manni vel og er
unnin út frá nokkuð skemmtilegri
hugmyndafræði. Leikararnir standa
sig prýðilega og er ekkert út á þeirra
framistöðu að setja þó svo að ekki sé
um nein þrekvirki að ræða.
Heilt á litið er In Time skemmtileg
afþreying sem fær mann til að hugsa
aðeins um eigin efnishyggju og held-
ur manni vel við efnið, jafnvel þótt
klukkan sé að ganga eitt á mánudags-
kvöldi.
Spenna Það er víst öruggt að það er best að vera ekkert að slóra þegar þú
átt örfáar mínútur eftir ólifaðar en getur fengið meira.
Tíminn er
peningar
Borgarbíó, Laugarásbíó og
Smárabíó
In Time bbbmn
Leikstjórn : Andrew Niccol, aðalleikarar:
Justin Timberlake, Amanda Seyfried og
Cillian Murphy
HJALTI ST.
KRISTJÁNSSON
KVIKMYNDIR
Julian, sonur Johns Lennons heitins, segist hafa verið
að grínast þegar hann ásakaði Paul McCartney um að
hafa sniðgengið sig, en Julian var ekki boðið til brúð-
kaups McCartneys sem haldið var á dögunum.
Lennon kvartaði undan þessu framferði McCartneys
á Facebook-síðu sinni, en hefur nú skrifað nýja færslu
þar sem hann segir að ummæli sín hafi verið tekin úr
samhengi og að glettin ummæli sín hafi verið tekin of
alvarlega. Nancy Shevell er auðug bandarísk kona og
er þriðja eiginkona McCartneys. Hún hefur sæmilega
mikið umleikis og gegnir stjórnunarstöðum í fjöl-
skyldufyrirtækjunum Shevell Group of Companies,
LLC og The Shevell Croup/Carrier Industries INC.
Hún hefur líka verið í stjórn nefnda New York-borgar
sem tengjast samgöngumálum. Julian er sonur Johns
Lennons af fyrra hjónabandi hans með Cynthiu Powell.
Hann hefur sjálfur reynt fyrir sér í tónlistinni með mis-
jöfnum árangri. Þá hefur misklíð nokkur verið lengi á
milli Lennon-fólksins og McCartneys og silfrið gráa
hefur staðið á hlóðum við meira en vægan hita allt síð-
an Bítlana þraut örendi árið 1970.
Julian Lennon kvartar und-
an Paul gamla McCartney
Lennon Julian ber óneitanlega svip af föður sínum.
-EMPIRE
HHHH
- KVIKMYNDIR.IS/
SÉÐ & HEYRT
HHHH
FRÁBÆ
R TÓN
LIST
- MÖG
NUÐ
DANSA
TRIÐI
EINN FYRIR ALLA
MYNDINSEMALLIRERUAÐTALAUM
SEMÓVÆNTASTASMELLÁRSINS.
BYGGÐÁMETSÖLUBÓKINNI
HÚSHJÁLPINEFTIRKATHRYNSTOCKETT
„SÍGILD FRÁ
FYRSTA DEGI“
- US WEEKLY
HHHH
„BESTA KVIKMYND
ÁRSINS“
- CBS TV
HHHH
„STÓRKOSTLEG“
- ABC TV
HHHH
„FYNDIN,
TILKOMUMIKIL“
- BACKSTAGE
HHHH
- ALLIR FYRIR EINN
- OK
HHHHH
- THE SUN
HHHH
15.000
MANNS
Á AÐEINS
11 DÖGUM!
- H.S.S., MBL
HHHHH
GILSHÖLLSÝND Í E
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
THEINBETWEENERS kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D 16
THEINBETWEENERS kl. 8 - 10:10 2D VIP
ÆVINTÝRITINNA Enskt tal kl. 5:50 - 10:20 3D 7
THEHELP kl. 5:40 - 8:30 - 10:10 2D L
THETHREEMUSKETEERS kl. 5:40 - 8 3D 12
FOOTLOOSE kl. 5:50 VIP - 8 2D 10
JOHNNYENGLISHREBORN kl. 5:50 - 8 2D 7
DRIVE kl. 10:20 2D 16
/ ÁLFABAKKA
THEINBETWEENERS kl. 8 - 10:30 2D 16
THEHELP kl. 6 - 9 2D L
ÆVINTÝRITINNA Enskt tal kl. 5:40 - 8 - 10:30 3D 7
ÞÓR kl. 5:40 3D L
THETHREEMUSKETEERS kl. 8 3D 12
FOOTLOOSE kl. 5:40 - 10:30 2D 10
THEINBETWEENERS kl. 8 - 10:10 2D 16
THETHING kl. 8 - 10:10 2D 16
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ KEFLAVÍK
/ AKUREYRI
/ SELFOSSI
SIGFRIED(WAGNER)-ÓPERAENDURFLUTTKL.6 L
THEINBETWEENERS kl. 8 - 10:10 2D 16
THEHELP kl. 6 - 9 2D L
THETHREEMUSKETEERS Sýnd á morgun kl 10:20 3D 12
THE SKIN I LIVE IN kl. 5:40 2D 16
KONUNGUR LJÓNANNA Sýnd á morgun kl 6 2D L
FOOTLOOSE Sýnd á morgun kl. 5:50 2D 10
THEINBETWEENERS kl. 8 - 10:10 2D 16
THETHREEMUSKETEERS kl. 8 - 10:10 2D 12
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL
OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
NÆSTU SÝNINGAR Á FÖSTUDAG
SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í KRINGLUNNI
Leikstjóri: James Levine
Leikarar: Marina Rebeka, Barbara Frittoli,
Moja Erdmann, Ramón Vargas, Mariusz Kwiecien,
Luca Pisaroni, Joshua Bloom.
www.operubio.is
Siegfried
Sigurður Fáfnisbani
Wagner
5. nóv kl.16:00
í Beinni útsendingu
9. nóv kl.kl.18:00
Endurflutt
ENDURFLUTT
Í KVÖLD KL. 18:00
VINSÆLASTA BRESKA MYND
FYRR OG SÍÐAR Í BRETLANDI
MÖGNUÐ
GAMANMYND
TINNI, TOBBI OG
KOLBEINN KAFTEINN,
DÁÐUSTU HETJUR
ALLRA TÍMA LIFNA
VIÐ Í FLOTTUSTU
ÆVINTÝRAMYND SÍÐARI ÁRA
"GÓÐUR HASAR OG
FRÁBÆR HÚMOR,
SJÁÐU HANA
UNDIR EINS!"
- TÓMAS VALGEIRSSON,
KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- BÖRKUR
GUNNARSSON,
MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
- EMPIRE
HHHH
ÍSLENSKT
TAL