Morgunblaðið - 15.11.2011, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 5. N Ó V E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 268. tölublað 99. árgangur
ATHYGLI ÞJÓÐAR
BEINT AÐ STÖÐU
TUNGUNNAR
SVÍÞJÓÐ STÖKK-
PALLUR FYRIR
ÍÞRÓTTAFÓLK
LYSTAUKI FYRIR
NÆSTU KVIK-
MYND RAGNARS
DRAUMALAND ÍSLENDINGA ÍÞRÓTTIR TEKST Á VIÐ ÞUNGAROKK 31DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU 9 OG 30
Rall á hjólaskautum á auknum vinsældum að fagna hjá konum hérlendis
sem erlendis, en leikurinn snýst um að komast í gegnum vörn mótherj-
anna og skora eins mörg stig og hægt er. Iðunn Arna Björgvinsdóttir er
hér á fullri ferð á æfingu með félögum sínum en skipulagðar æfingar hér-
lendis hafa staðið yfir síðan í haust og hefur stefnan verið sett á þátttöku á
næsta heimsmeistaramóti. »10
Morgunblaðið/Kristinn
Æfa stíft og stefna á HM í hjólaskautaralli
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Við endurmat á eignum viðskipta-
bankanna þriggja hafa 76 milljarðar
króna runnið til erlendra kröfuhafa
hinna föllnu banka en aðeins um 30
milljarðar króna eru eftir sem virð-
isaukning í nýju bönkunum. Þetta
kom fram í máli fulltrúa Fjármála-
eftirlitsins á fundi efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis í gær.
Þetta þýðir með öðrum orðum að
endurheimtur á lánasafni viðskipta-
bankanna renna í miklu meira mæli
til erlendra kröfuhafa heldur en til
hinna nýju endurreistu banka, að
sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar,
sem situr í efnahags- og viðskipta-
nefnd fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
„Stærstur hluti hagnaðarins af
bættum endurheimtum á lánasafni
bankanna skilar sér ekki til íslenska
hagkerfisins heldur fer beint til út-
lendinga.“
Á fundi nefndarinnar var jafn-
framt upplýst að vogunarsjóðir
væru stærstir í eigendahópi skila-
nefnda Kaupþings og Glitnis, en
samkvæmt mati FME eiga sjóðirnir
meira en 60% af öllum skuldabréf-
um bankanna tveggja. Guðlaugur
segir það mikið áhyggjuefni að „að-
ilar sem hafi aðeins skammtíma-
sjónarmið að leiðarljósi séu meiri-
hlutaeigendur að Arion banka og
Íslandsbanka“.
MEndurmat eigna »16
Kröfuhafar njóta ágóðans
Við endurmat á eignum runnu 76 milljarðar til kröfuhafa gömlu bankanna
Að mati FME eiga vogunarsjóðir meira en 60% í Arion banka og Íslandsbanka
76
milljarðar króna renna til erlendra
kröfuhafa við endurmat á eignum.
‹ KRÖFUHAFAR HAGNAST ›
»
Einstökum
svínakjöts-
framleiðendum
verður ekki
heimilt að fram-
leiða meira en
sem nemur 15%
af heildarfram-
leiðslu svína-
afurða, sam-
kvæmt drögum
að frumvarpi
sem sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra hefur kynnt í ríkis-
stjórn. Í athugasemdum með frum-
varpinu er vísað til almennra þjóð-
hagslegra hagsmuna sem varði
framtíð íslensku þjóðarinnar.
Karl Axelsson hrl. og dósent við
HÍ sér ekki hvaða rök ættu að vera-
fyrir að grípa sérstaklega inn í
þessa atvinnugrein. Einn af eig-
endum Stjörnugríss, stærsta svína-
kjötsframleiðandans, gagnrýnir
frumvarpið í aðsendri grein í
blaðinu í dag. »14 og 20
Hefði áhrif á fram-
tíð þjóðarinnar
Þjóðlegt Mikilvæg
og girnileg svínarif.
Sum sveitarfélög hafa ráðið nær-
ingarfræðinga til að fylgjast með
gæðum og næringargildi skóla-
máltíða í grunnskólum. Þeirra á
meðal er Garðabær. Staða næring-
arfræðings var hins vegar lögð nið-
ur í Reykjavík árið 2008 en starfs-
fólk á skóla- og frístundasviði veitir
ráðgjöf um skólamáltíðir.
Garðabær kaupir tilbúinn mat í
skólana og fyrir nokkrum árum rak
bærinn sig á að hráefnið var ekki
eins gott og vænta mátti. Fitan var
til dæmis meiri en æskilegt var. »8
Fræðingur fylgist
með næringunni
Landsbankinn og Íslandsbanki
hafa lagt fram tilboð í Sparisjóð
Norðfjarðar. Landsbankinn hefur
þar að auki sent inn tilboð í Spari-
sjóð Svarfdæla. Arion banki hefur á
hinn bóginn ekki lagt inn tilboð í
sjóðina. »16
Tveir stórir bankar
buðu í sparisjóðinn
Skráðu þig á americanexpress.is og fáðu tvöfalda
Vildarpunkta af allri veltu til 15. desember!
Jólabónus Icelandair
American Express®