Morgunblaðið - 15.11.2011, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2011
Reykjavíkurborg hefur komið fyr-
ir yfirbyggðu og færanlegu hjóla-
stæði á Geirsgötuplaninu. Þar geta
hjólreiðamenn lagt hjólum sínum í
skjóli og læst þeim við þar til
gerðar hjólagrindur.
Hjólaskúrinn var útbúinn af um-
hverfis- og samgöngusviði Reykja-
víkurborgar. Önnur langhlið vöru-
gáms var söguð úr og gámurinn
síðan málaður og merktur. Verður
hjólaskýlið notað til að prófa stað-
setningar í borginni og einnig til
að sjá hvort Reykvíkingum líki að
skilja hjólin sín eftir í svona skýli.
Ef hið færanlega hjólaskýli verður
mikið notað verður skoðað að
reisa varanleg skýli á fjölförnum
stöðum, segir í tilkynningu frá
borginni.
Skýlið Öllum hjólreiðamönnum opið.
Yfirbyggt hjólastæði
Kostir og gallar mögulegrar sam-
einingar háskólanna í kjölfar
kreppu verða í brennidepli á ráð-
stefnu sem Fræðagarður efnir til á
Grand hótel í dag, þriðjudag, kl.
13-16.
Helga B. Kolbeinsdóttir, formað-
ur Fræðslu- og ráðstefnusjóðs
Fræðagarðs, setur ráðstefnuna og
erindi flytja: Jón Atli Benedikts-
son, aðstoðarrektor vísinda og
kennslu við Háskóla Íslands, Stef-
án B. Sigurðsson, rektor Háskól-
ans á Akureyri, dr. Ari Kristinn
Jónsson, rektor Háskólans í
Reykjavík, Guðrún Högnadóttir,
framkvæmdastjóri Opna háskól-
ans, og Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra.
Fundarstjóri er sr. Bragi Skúla-
son, formaður Fræðagarðs.
Kostir og gallar
sameiningar
Hádegisfyrirlestur um samstarf Ís-
lands og Kína á sviði menningar og
skapandi greina verður haldinn í
Öskju þriðjudaginn 15. nóvember
kl. 12:25.
Steinunn Sigurðardóttir fata-
hönnuður og Auður Edda Jökuls-
dóttir, menningarfulltrúi utanrík-
isráðuneytisins, fjalla um helstu
þætti íslenskrar menningarkynn-
ingar í Kína. Sérstaklega verður
sagt frá íslenska skálanum á heims-
sýningunni í Sjanghæ og listahátíð-
inni Upptakti: 2010.
Samstarf við Kína
Friðrik Ólafsson
stórmeistari tek-
ur þátt á al-
þjóðlegu skák-
móti sem hófst í
gær í Amst-
erdam í Hollandi.
Mótið er haldið í
tilefni þess að nú
eru 30 ár síðan
Max Euwe, for-
seti FIDE, lést.
Átta skákmenn, bæði konur og
karlar á ýmsum aldri, taka þátt.
Fjórir skákmenn taka þátt í hvor-
um flokki og tefld er tvöföld um-
ferð, alls 6 skákir. Í flokki Friðriks
tefla auk hans: Paul Van Der Ster-
ren, Pia Cramling og Zhaogin
Peng. Friðrik gerði jafntefli við
Van der Starren í 1. skákinni.
Fylgjast má með skákunum á
www. skak.is á Moggablogginu.
Friðrik Ólafsson
teflir í Hollandi
Friðrik
Ólafsson
STUTT
Boðað hefur verið til samstöðufund-
ar með stofnuninni í Sogni í Ölfusi
undir kjörorðinu „Ekki er allt best í
Reykjavík“. Fundurinn verður
haldinn þriðjudaginn 15. nóvember
kl. 12:00 á hádegi í miðrými
verslunarmiðstöðvarinnar við
Sunnumörk í Hveragerði. Áætlaður
fundartími er um 30 mínútur.
Ávörp á fundinum flytja: Ólafur
Örn Ólafsson, bæjarstjóri í Ölfusi,
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í
Hveragerði, Eyþór Arnalds, for-
maður bæjarráðs Árborgar, Sig-
hvatur Björgvinsson, fyrrverandi
heilbrigðisráðherra, Guðni Ágústs-
son, fyrrverandi landbúnaðarráð-
herra, og Árni Johnsen alþingsmað-
ur, sem jafnframt er fundarboð-
andi.
„Samstöðufundurinn er öllum op-
inn, en rík ástæða er til að styðja
við bakið á mikilvægri starfsemi á
heimaslóð og verja verkreynslu og
góðan árangur,“ segir í frétt frá
fundarboðanda.
Samstöðufundur með Sogni
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Fórnarlamba umferðarslysa verður
minnst með mínútu þögn klukkan 11
næstkomandi sunnudag. Þá er al-
þjóðlegur minningardagur sem
Sameinuðu þjóðirnar standa fyrir og
er tileinkaður minningu fórnar-
lamba umferðarslysa. Umferðar-
stofa mun af þessu tilefni standa fyr-
ir sérstakri athöfn við
Landspítalann í Fossvogi.
Það sem af er ári hafa ellefu
manns látist í umferðarslysum hér á
landi en allt árið í fyrra létust átta
manns í slíkum slysum. Höfðu þá
ekki færri látist í umferðinni frá
árinu 1968, árið sem hægri umferð
var tekin upp á Íslandi. Af þeim sem
létust voru 4 karlar og 4 konur.
En fjöldi banaslysa segir ekki alla
söguna. Í fyrra urðu fleiri alvarleg
umferðarslys en árið á undan. Sker
árið 2010 sig reyndar úr hvað fjölda
alvarlegra slasaðra í umferðinni
varðar. Þá fjölgaði alvarlega slösuð-
um úr 170 í 205 eða um 21% og höfðu
ekki verið jafnmargir síðan 1999.
Fæst banaslys á Íslandi 2010
Í skýrslu Umferðarstofu fyrir árið
2010 kemur fram að leiða megi líkum
að því að fjöldi látinna í umferðinni
það ár hafi verið lægstur á Íslandi á
heimsvísu, sé miðað við höfðatölu.
Sé tölfræði ársins tekin enn frekar
saman kemur í ljós að í fyrra urðu
883 slys með meiðslum og í þeim
slösuðust og létust 1.269 manns. Þar
af voru 213 sem slösuðust alvarlega
eða létust en þeir voru 187 árið áður.
1.056 slösuðust lítillega en árið 2009
voru þeir 1.112. 47% þeirra sem slös-
uðust voru ökumenn bifreiða. Far-
þegar bifreiða voru 32% og fótgang-
andi voru 8%. Reiðhjólamenn voru
um 6% og önnur 6% voru á bifhjóli.
Flest slys og óhöpp í umferðinni
verða milli kl. 15 og 18 síðdegis.
Fimm þeirra sem létust í fyrra
voru ökumenn eða farþegar í bílum,
einn var á bifhjóli og tveir voru fót-
gangandi.
Einn lést í umferðinni á höfuð-
borgarsvæðinu árið 2010 og var sá
fótgangandi. Annar fótgangandi lést
í Borgarnesi og tveir farþegar bif-
reiðar létust í Reykjanesbæ. Þannig
létust fjórir af átta manns í þéttbýli
og hinir fjórir í dreifbýli.
Þrír létust af völdum ölvunarakst-
urs og í öllum tilvikum var einnig um
hraðakstur að ræða.
Enginn sem lést var yngri en 17
ára.
Fórnarlamba umferðar-
slysa minnst með þögn
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Í sárum Margir eiga um sárt að binda ár hvert vegna bana- og alvarlegra
slysa í umferðinni. Í ár hafa 11 látist í umferðarslysum.
Ellefu hafa látist
í umferðinni það
sem af er ári
Markmið stjórnvalda
» Markmið stjórnvalda í um-
ferðaröryggismálum er m.a. að
fjöldi látinna í umferðinni á
hverja 100 þúsund íbúa verði
ekki meiri en það sem lægst
gerist hjá öðrum þjóðum, fyrir
árið 2016.
» Að fjöldi látinna og alvarlega
slasaðra í umferðinni minnki
að jafnaði um 5% á ári til árs-
ins 2016.
Flottar buxur
3 litir:
Svart - Blátt - Brúnt
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Glæsileg
satínnáttföt
Verð 6.900
Póstsendum
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Næg bílastæði
HJÁLP Í NEYÐ Á HEIMASLÓÐUM, símasöfnun Fjölskylduhjálpar
Íslands hafin. 2500 börn búa hjá foreldrum sem neyðast
reglulega til að sækja sér mataraðstoð hjá
Fjölskylduhjálp Íslands sem leitar nú eftir stuðningi
landsmanna. Við hringjum fljótlega í þig.
Söfnunarreikningur 546-26-6609, kt 660903-2590.
Hómópatanám
Kynning hjá Námsflokkum
Reykjavíkur í Mjóddinni
föstudaginn 19. nóvember kl. 19
á vegum College of Practical Homeopathy á
Íslandi. Fjögurra ára nám, mæting 10 helgar
á ári. Námið mun gefa þér djúpa fræðilega
og hagnýta þekkingu á efninu.
Upplýsingar: Martin, s. 897 8190,
martin@hive.is
www.homeopathytraining.co.uk
GARDEUR GALLA-BUXNATILBOÐ kr. 16,900,-
Peysuúrval (jakkapeysur, rúllukragapeysur)
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
Mímir, félag
stúdenta í ís-
lenskum fræð-
um, heldur dag
íslenskrar tungu
hátíðlegan með
veglegri dagskrá á morgun, 16.
nóvember.
Meðal annars verður fjallað um
Chomsky og samskiptin, sam-
hverfubragfræði, ritlist sem
kennslugrein og hina nýendur-
útgefnu bók Angantý: sögu um for-
boðnar ástir sem olli uppnámi. Auk
þess munu Vigdís Grímsdóttir og
Þorsteinn frá Hamri lesa úr verk-
um sínum. Dagskráin hefst kl. 17:00
og er haldin í stofu 301 í Árnagarði
við Suðurgötu.
Mímir fagnar degi
íslenskrar tungu
Þorláksbúðarfélagið í Skálholti
efnir til samveru og bænastundar
undir vinnutjaldi yfir Þorláksbúð-
arhleðslunni, í dag, þriðjudag 15.
nóvember kl. 17:30 að ósk bænda í
Biskupstungum.
Á samkomunni verður bæna-
stund, ávörp og söngur. Fimm
prestar flytja ávörp svo og Guðni
Ágústsson, Bjarni Harðarson,
Gunnar Bjarnason, hönnuður Þor-
láksbúðar, og Árni Johsnen, for-
maður Þorláksbúðarfélagsins.
Söngvarar úr Skálholtskór syngja
„Dag í senn“ eftir Sigurbjörn Ein-
arsson biskup og samkomugestir
syngja kunnan sálm.
Allir eru velkomnir.
Samverustund
í Þorláksbúð