Morgunblaðið - 15.11.2011, Page 10
Fyrir þá sem hafa áhuga á að taka til
við að stunda þá frábæru íþrótt að
renna sér á rúlluskautum er tilvalið
að fara inn á vefsíðuna ehow.com.
Þar er hægt að læra allt milli himins
og jarðar um rúlluskauta og þar eru
allskonar leiðbeiningar og ráð. Til
dæmis eru kennd lið fyrir lið grunn-
atriðin í því hvernig á að renna sér á
rúlluskautum, líka aftur á bak. Þar
eru einnig allskonar ráð eins og
hvernig eigi að þrífa hjólin á rúllu-
skautunum og hvernig eigi að skipta
um þessi sömu hjól. Einnig má þarna
læra allt um muninn á innandyra- og
utandyraskautum. Svo eru þarna að
sjálfsögðu allskonar myndbönd til
leiðbeiningar, þar sem sérfræðingur í
fræðum þessum sýnir hvernig á að
stoppa, hvernig á að ýta, skora, skera
og margt fleira.
Vefsíðan www.ehow.com
List Það má með sanni segja að hér sé rúlluskautaíþróttin orðin listræn.
Rúlluskautakennsla og fleira
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2011
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Roller Derby eða hjóla-skautarallý, líkt og þaðgæti útlagst á íslensku, ersnertiíþrótt fyrir konur
þar sem markmiðið er að brjótast í
gegn um hóp andstæðinganna og
skora eins mörg stig og hægt er. Ís-
lenskur Roller Derby-hópur er nú
starfræktur en íþróttin nýtur vax-
andi vinsælda víða um heim.
Strangari reglur í dag
„Roller Derby, sem við höfum
kallað hjólaskautarallý á íslensku, á
uppruna sinn í Bandaríkjunum. Á
sjöunda áratugnum snerist þetta
meira um gervislagsmál frekar en
leikinn sjálfan eða íþróttina. Roller
Derby var síðan endurvakið í Austin
í Texas í Bandaríkjunum í kringum
2000 og á uppruna sinn í núverandi
mynd þar. En í dag eru margar regl-
ur um það hvernig verja megi högg
eða stöðva manneskju og margt sem
áður var leyft væri gróft brot í dag,“
segir Jóna Svanlaug Þorsteinsdóttir
meðlimur í „1. deild“ Roller Derby á
Íslandi. Leikurinn virkar þannig að
tvö lið spila hvort á móti öðru. Svo-
kallaðir „jammers“ eða hlauparar
raða sér upp fyrir aftan fjóra varn-
armenn andstæðinganna. Það er síð-
an takmark hlauparanna að komast í
gegnum hópinn, fara einn hring,
koma svo aftur og reyna að skora
stig fyrir hvern andstæðing sem hún
kemst fram hjá. Á meðan eru hinar
fjórar til staðar til að hjálpa þeim í
gegn og hindra það að hinar komist
sína leið. Svona gengur þetta í eina
til tvær mínútur eftir því hvernig
braut er spilað á. Á þeim tíma er
reynt að skora eins mikið og hægt
Alveg bannað að
hrinda og kýla
Í Roller Derby eða hjólaskautarallý gefa leikmenn sér frumleg nöfn og fara í hlut-
verk. Íþróttin er upprunnin í Bandaríkjunum en síðan í haust hefur hópur
kvenna stundað íþróttina hér á landi og haft gaman af. Leikurinn snýst um að
komast í gegn um vörn andstæðinganna og skora eins mörg stig og kostur er.
Vígaleg Black Metal Banshee á fullri ferð í Roller Derby leik.
Fátt er yndislegra en að ganga á
fjöll og þó svo að Vetur konungur
sé mættur á svæðið með allskonar
veðrum og vindum, þá er engin
ástæða til að hætta að ganga á
fjöll. Haga bara ferð eftir að-
stæðum og velja frekar þau fjöll til
uppgöngu sem eru ekki uppi á reg-
inhálendi heldur nálægt byggð.
Temmileg fjallganga gerir öllum
gott og um að gera að taka ung-
viðið með í slíkar ferðir og venja
þau við sæluna sem fylgir því að
sigra fjöll, svo ekki sé nú talað um
gæði samverunnar og súrefnisupp-
tökuna. Við erum svo rík að fjöllum
og ættum að kynnast þeim sem
flestum.
Endilega …
… sigrið fjöll
Morgunblaðið/Eyþór
Fjallganga Holl og góð hreyfing.
Mér tókst að ljúka þessu átíu klukkutímum, fjöru-tíu og sjö mínútum ogþrjátíu og sjö sekúnd-
um. Fjórar fyrstu konurnar úr mín-
um aldursflokki, 40 - 44 ára, komust
inn og ég var í fjórða sætinu,“ segir
Ásdís Kristjánsdóttir sem náði þeim
frábæra árangri að ná lágmarkinu til
að komast inn í Heimsmeistaramótið
í þeirri íþróttagrein sem kallast Iron-
man eða járnkarlinn og verður næsta
haust á Hawai. Í járnkarlskeppni
þarf að synda 3,8 kílómetra í sjó,
hjóla 180 kílómetra og hlaupa heilt
maraþon, og allt er þetta gert í röð.
„Við vorum tólf Íslendingar sem fór-
um til Florida að keppa og ég var
eina konan í hópnum og sú eina sem
náði lágmarkinu og komst inn,“ segir
Ásdís sem hefur verið að hlaupa í
mörg ár.
Æfa 20 klukkustundir á viku
„Ég fór og keppti í mínum fyrsta
Ironman í fyrra í Kaupmannahöfn,
bara til að prófa, en þá var ég ekki
búin að æfa mikið og hálfum mánuði
fyrir keppni fékk ég auk þess slæmt
brjóskloskast. Ég var því ekki í mínu
besta formi en tók samt þátt, bara til
að sjá og finna hvernig þetta væri.
Ég kláraði og gekk ágætlega, þrátt
fyrir allt. Ég skráði mig því í keppn-
ina í Florida fyrir ári, en það selst yf-
irleitt mjög fljótt upp, núna síðast tók
það ekki nema fimmtán mínútur.“
Ásdís segir að hún og hinir Íslend-
ingarnir ellefu sem tóku þátt hafi
strax byrjað að æfa fyrir ári. „Þannig
að ég var búin að æfa miklu meira
núna heldur en þegar ég fór til Kaup-
mannahafnar. Við skiptum okkur í
hópa, vorum oft saman þrjú eða fjög-
ur, mest í löngu hjólaferðunum. En
ég er í þríþrautarfélagi Hafnarfjarð-
ar sem heitir 3SH og ég syndi og
hjóla með þeim. Við vorum með pró-
gramm sem við fórum eftir, syntum,
hjóluðum og hlupum í ákveðið marg-
ar klukkustundir á viku, og það fór
oft upp í 20 klukkutíma á viku. Auk
þessa tók ég þátt í hinum ýmsum mótum
í sumar hér heima, hlaupakeppnum og
hjólakeppnum. Í sumar var ég fyrsta
konan í mark í Jökulsárhlaupinu og ég
vann þriggja daga þríþraut á Vest-
fjörðum. Ég var þriðja í heildina í Bláa-
lónskeppninni sem er fjallahólakeppni.
Allt er þetta hluti af undirbúningi fyrir
Ironman-keppni.“
Verður ekki sjóveik í sjósundi
Ásdís segir að vissulega sé mikið mál
að halda út svona lengi í stífum og mikl-
um æfingum. „Það er til dæmis erfitt að
hjóla lengi úti þegar það er farið að
kólna svona mikið eins og gerist á þess-
um árstíma hér á Íslandi. Annars gekk
þetta ótrúlega vel, enda æfi ég miklu
meira en fyrir mótið í Kaupmannahöfn,
þá var ég ekki með prógramm og auk
þess var ég að klára skóla og hafði minni
tíma.“
Ásdís er önnur í röð Íslendinga sem
komist hafa inn á heimsmeistaramótið
en Karen Axelsdóttir keppti á slíku móti
núna í haust, en hún þurfti að hætta því
hún varð svo sjóveik. Enginn íslenskur
karlmaður hefur náð lágmarkinu og
komist inn í þessa keppni, svo konurnar
eru heldur betur sterkara kynið í þess-
um efnum.
Og Ásdís er harðákveðin í að verða
fyrst Íslendinga til að ljúka keppni á
heimsmeistaramóti járnkarlsins. „Ég
óttast ekki sjóinn, ég elska sjóinn og
verð ekkert sjóveik. En á Hawaí er
vissulega mjög heitt og því er mesta
áskorunin fyrir mig að komast í gegnum
þennan hita, sjórinn er svo heitur að við
megum ekki vera í blautgalla, en það
verður ekkert mál fyrir mig að synda án
galla.“
Keppnin er 13. október 2012, svo nú
taka við strangar æfingar hjá Ásdísi.
Æfir tuttugu tíma á viku
Keppir í járn-
karli á Hawaí
Hörð Ásdís að hjóla 180 kílómetra í Ironman í Kaupmannahöfn í fyrra.
Ásdís Kristjánsdóttir náði lágmarkinu sem þarf til að
komast á heimsmeistaramótið í Ironman.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.