Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Það kom aftan að okkur að það ætti að taka þessar greiðslur af okkur,“ segir Haraldur F. Gíslason, formað- ur Félags leikskólakennara, um til- lögu borgarráðs um að svipta leik- skólakennara í borginni svokölluðu neysluhléi. Haraldur segir að leikskólakenn- arar í Reykjavík séu „sturlaðir af reiði“ enda falli greiðslurnar ekki niður hjá neinni annarri starfsstétt. Engu sé líkara en að verið sé að refsa leikskólakennurum fyrir að ná góðum kjarasamningum í haust. „Þetta þýðir minni kjarabætur fyrir leikskólakennara í Reykjavík, það er alveg ljóst. Ég græt það ekki að hinir fái þessar greiðslur, það er hið besta mál, en það að við séum tekin svona út fyrir sviga getum við ekki sætt okkur við.“ Í tillögu Jóns Gnarrs borgarstjóra sem lögð var fyrir borgarráð í vik- unni er bent á að í ljósi manneklu og mikils álags í starfi árið 2007 hafi borgin ákveðið að verja fé í sértæk- ar aðgerðir í starfsmannamálum. Leikskólasviði hafi þá verið heimilað að greiða sérstaka fjár- hæð í formi yfirvinnu til þeirra starfsmanna sem skylt var að matast með leikskólabörnum, enda veldu þeir ekki styttri vinnutíma á móti. Fram- kvæmdin hafi hins vegar ver- ið með þeim hætti að leik- skólakennurum „hafi verið greiddar 10 yfirvinnustundir á mánuði án þess að vinnuframlag lægi þar að baki“. Leita allra löglegra leiða Nágrannasveitarfélög tóku upp hliðstæðar yfirborganir um svipað leyti en þær voru tímabundnar og féllu niður við gerð næstu kjara- samninga. Hjá Reykjavíkurborg hefur árlega komið til umræða hvort fella ætti þessar greiðslur niður en jafnan verið fallið frá því. Jón Gnarr segir í tillögunni að eðlilegt sé að hverfa frá þessu fyr- irkomulagi núna. Vísar borgarstjóri meðal annars í það að þegar leik- skólakennarar boðuðu verkfall í haust hafi þeir m.a. farið fram á að þessar greiðslur yrðu felldar inn í nýja kjarasamninga við sveitarfélög- in. Sú krafa náðist hins vegar ekki í gegn. „Ef við byggjum í fullkomnum heimi þá væri inni taxti sem segði að þar sem við gætum ekki tekið mat- artíma, þá teldist matartíminn til vinnutíma með 30 mínútna yfir- vinnugreiðslu á dag. Svona taxti er hjá mörgum stéttum sem geta ekki tekið matartíma, en ekki hjá okkur,“ segir Haraldur. Hann vísar í jafn- ræðisreglu Reykjavíkurborgar þar sem segir m.a. að ekki megi gera upp á milli starfsmanna í kjörum af ómálefnalegum ástæðum. „Við erum að skoða allar löglegar leiðir til að hnekkja þessu.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Leikið Leikskólakennarar geta ekki brugðið sér út úr húsi til að borða heldur þurfa að vinna í matartímanum. Sturlaðir af reiði  Borgin afnemur yfirvinnugreiðslur til leikskólakennara vegna neysluhlés  Refsað fyrir að gera góða kjarasamninga Kristján Jónsson kjon@mbl.is Hæstiréttur hefur sýknað þá Reyni Traustason og Jón Trausta Reyn- isson, ritstjóra DV, og Inga Vil- hjálmsson, blaðamann DV, af skaða- bótakröfu knattspyrnumannsins Eiðs Smára Guðjohnsen vegna umfjöll- unar blaðsins um fjárhagsmálefni hans. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Eiði Smára í vil. Gerði hann ritstjórum DV og blaða- manni að greiða Eiði 400 þúsund krónur í miskabætur og hverjum um sig 150 þúsund króna sekt í ríkissjóð. Eiður Smári áleit að brotið hefði verið gegn friðhelgi einkalífs hans með fyrirsögnum eins og: „Landsliðs- fyrirliðinn reynir að standa í skilum: Eiður Smári í kröggum“ og „Skuldar 1,2 milljarða - á 800 milljónir“. Hæsti- réttur segir, að þegar metið sé hvar mörkin liggi milli tjáningarfrelsis og friðhelgi einkalífs verði að líta til stöðu þjóðfélagsmála á hverjum tíma, hvaða málefni hafi borið hæst. Ekki brotið gegn friðhelgi Þótti dómurum umfjöllun DV um lántökur Eiðs Smára lýsa dæmigerðu ferli um afleiðingar útlánastefnu ís- lenskra viðskiptabanka og áhættu- sækni íslenskra fjárfesta, sem kynni að hafa átt þátt í því hruni sem varð í íslensku efnahagslífi við fall viðskipta- bankanna þriggja haustið 2008 og hefði haft mikil og almenn áhrif á alla starfsemi í landinu og kjör almenn- ings. Við þessar aðstæður gæti skerð- ing á frelsi fjölmiðla til að fjalla um þessi fjárhagsmálefni Eiðs ekki talist nauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi. Um umfjöllun DV um laun Eiðs Smára frá tilteknu knattspyrnufélagi tók Hæstiréttur fram að Eiður væri þjóðþekktur sem atvinnumaður í knattspyrnu og hefði ekki vikist und- an því að vera í sviðsljósi fjölmiðla sem slíkur. Launamál slíkra manna væru reglulega til umfjöllunar. Þá féllst rétturinn ekki á að brot- ið hefði verið gegn friðhelgi einkalífs Eiðs Smára með umfjöllun DV um spilafíkn hans. Vísaði rétturinn til þess að um hefði verið að ræða end- ursögn umfjöllunar sem áður hafði birst opinberlega hjá öðrum fjöl- miðlum og Eiður Smári hefði sjálfur gert spilafíkn sína að umtalsefni í við- tölum. Eiður Smári fær ekki skaðabætur vegna skrifa DV  Blaðamenn sýknaðir í Hæstarétti Morgunblaðið/Eggert Baráttujaxl Eiður Smári Guðjohn- sen í ham í landsleik gegn Kýpur. „Ég fagna þessu og tek ofan fyr- ir Hæstarétti sem hefur snúið við þessum héraðsdómi sem ekki uppfyllti kröfur um tjáning- arfrelsi,“ segir Hjálmar Jóns- son, formaður Blaðamanna- félags Íslands, um málið gegn blaðamönnum DV. „Þetta var skoðun félagsins strax og undirréttardómur féll í málinu sem Eiður Smári höfð- aði, að dómurinn mætti ekki standa. Fjölmiðlamenn verða að hafa tækifæri til þess að fjalla um fjárhagsmálefni ef þeir eiga að gegna sínu aðhaldshlutverki. Ég tala nú ekki um að blaða- menn hafi ekki olnbogarými til að fjalla um eftirmál hrunsins! Ef dómurinn hefði staðið hefð- um við orðið að fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evr- ópu.“ Fögnum nið- urstöðunni BLAÐAMANNAFÉLAGIÐ Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir ekki hægt að fallast á rökstuðning meirihlut- ans vegna niðurfellingar neysluhlésins, þar sem talið sé að umframhækkanir sem Félag leikskólakennara náði gegnum kjarasamn- inga vegi upp á móti yfirvinnugreiðsl- unum. Sóley segir þetta eftiráskýringu. „Það er brýnt að fram fari endurskoðun á yfirvinnugreiðslum Reykjavík- urborgar, en afar ósanngjarnt að ein kvennastétt sem ekki er ofalin af launum sínum sé tekin fyrir sér- staklega,“ segir í bókun Sóleyjar í borgarráði þegar hún greiddi at- kvæði gegn tillögunni. „Matartímar leikskólanna eru hluti af daglegu starfi sem getur ekki farið fram án leikskólakenn- ara […] fyrir þá vinnu eiga kenn- ararnir að fá greitt.“ Ósanngjarnt og órökrétt EIGA AÐ FÁ GREITT FYRIR AÐ VINNA Í MATARTÍMA Haraldur Freyr Gíslason Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Óskað verður eftir því við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að hún vinni skýrslu um fyr- irhugaðar framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng, í stað Ríkisendurskoðunar sem hafnaði verkefn- inu. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi mætti á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í gær og ítrekaði þar þau sjónarmið sem fram komu í bréfi hans til nefndarinnar, að það væri ekki hlutverk Ríkisendurskoðunar að vinna slíka skýrslu og stofnunin væri auk þess van- hæf til verksins vegna tengsla hans við Krist- ján Möller, stjórnarformann Vaðlaheiðarganga hf. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður nefndarinnar, segir að nefndin muni ekki knýja Ríkisendurskoðun til að taka að sér verkefni sem hún vilji ekki vinna. Nefndarmenn sitji hins vegar eftir með margar spurningar sem enn sé á margan hátt ósvarað. „Varðandi vanhæfið blasa auðvitað við ákveðnar spurningar, því ef ríkisendurskoð- andi og Ríkisendurskoðun í heild sinni er van- hæf í þessu máli út af tengslum, hvað þá með önnur tengsl í öðrum málum? Við gerum ýmsar athugasemdir við þetta bréf en við virðum hins vegar niðurstöðu Ríkisendurskoðunar.“ Hefði ekki átt að taka afstöðu Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingar í nefndinni, segir það virðingarvert þegar menn lýsi sig vanhæfa og sér finnist ekki óeðlilegt að ríkisendurskoðandi telji sig vanhæfan að fjalla um fyrirtæki mágs síns. „En ég verð hins vegar að segja að minn skilningur er sá að ef yfirmað- ur í stofnun af þessu tagi er vanhæfur taki hann eða stofnunin ekki efnislega afstöðu til málsins sjálf. En það gerði Ríkisendurskoðun.“ Vísar Mörður þar í bréfið þar sem lýst var vanhæfi en auk þess gefnar tvær frekari ástæður fyrir að stofnunin ætti ekki að taka verkið að sér. „Ég tel að þetta sé ekki réttur gangur. Ríkisend- urskoðandi hefði átt að lýsa sig vanhæfan og skilja það eftir í höndum forsætisnefndar Al- þingis að ákveða næstu skref í málinu.“ Væri um ráðherra eða forstjóra ríkisstofn- unar að ræða hefði niðurstaðan líklega verið sú að setja til bráðabirgða annan mann til að af- greiða tiltekið mál, að mati Marðar. Guðfríður og Mörður segja bæði að þetta veki spurningar um gang mála í hjá Ríkisend- urskoðun og tengsl þingsins við stofnunina sem þurfi að skoða í framhaldinu. Hvað mál Vaðla- heiðarganga snertir telur nefndin eftir sem áð- ur mikilvægt að óháð mat verði unnið og rök- rétt næsta skref sé að leita til Hagfræðistofn- unar. Guðfríður Lilja segir það hins vegar mun flóknara og tafsamara ferli fyrir nefndina að leita út fyrir Ríkisendurskoðun, til þess þurfi m.a. að fá sérstaka fjárheimild sem ekki sé út- séð um. „En við munum reyna að láta þessa niðurstöðu Ríkisendurskoðunar ekki koma í veg fyrir að þetta óháða mat fari fram.“ Hagfræðistofnun skoði Vaðlaheiðargöng  Vanhæfismat Ríkisendurskoðunar vekur ýmsar spurningar  Mun ekki koma í veg fyrir óháð mat  Flóknara og tafsamara ferli fyrir nefndina að leita út fyrir Ríkisendurskoðun og fjárheimild þarf til „Við munum reyna að láta þessa niðurstöðu Ríkisend- urskoðunar ekki koma í veg fyrir að þetta óháða mat fari fram“ Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.