Morgunblaðið - 25.11.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011
Þau alvarlegu tíðindi hafa boristað forseti Íslands, sé ekki leng-
ur inn á kortinu.
Það mildar máliðnokkuð að ein-
vörðungu er átt við
jólakortið.
Upplýst hefurverið að for-
sætisráðherra
Stóra-Bretlands
ákvað að strika
nokkra stórhöfð-
ingja út af jóla-
kortalista sínum.
Auk Ólafs Ragnars voru m.a. illasviknir um jólakortið sitt:
Hugo Chavez, forseti Venesúela,
Mahmoud Ahmedinejad, forseti Ír-
ans, hinn sýrlenski Bashar Assad,
Gaddafí, kollegi hans í Líbíu, og
Kim Jong Il í Norður-Kóreu.
Þórbergur Þórðarson hefði vís-ast metið það svo, að í þessum
hóp væri Ólafur svo gott sem kom-
inn í kompaní við allífið.
Breska heimsveldið gat forðumtíð látið þjóðarleiðtoga finna
fyrir sér með því að senda þeim
tundurdufl og flugskeyti, sem þeir
vildu ekki fá. Nú verður gamla
heimsveldið að láta sér nægja að
spæla óvini sína með því að senda
þeim ekki skeyti og sem ýtrustu
ógnun að strika þá hreinlega út af
jólakortalistanum.
Fréttskýrendur stórblaða geraþví skóna að Ólafur Ragnar
hafi hrapað af breska jólakortalist-
anum vegna Icesave-málsins.
Ef það er rétt mat þá verður aðætla að Jóhanna hafi fengið
sitt kort með skilum og kannski í
sérstöku hátíðarumslagi.
Ólafur Ragnar
Grímsson
Kortaskortur
STAKSTEINAR
David Cameron
Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Einföld og falleg
ENA Micro 9 frá Jura er minnsta sjálfvirka kaffivél heimsins í dag.
Með einni snertingu fæst nýmalað og ilmandi kaffi beint í bollann.
Hægt er að velja um kaffi, espesso, latte macchiato, cappuccino
eða heitt vatn í te með því að þrýsta á einn hnapp. Vélin er stílhrein,
einföld í notkun og einstaklega hljóðlát.
ENA MICRO 9 ONE TOUCH
Líttu við hjá Eirvík og við bjóðum þér í kaffi
Kynningarverð kr. 149.000
Mjólkurkanna að andvirði kr. 9.420
fylgir sem kaupauki með hverri vél.
Veður víða um heim 24.11., kl. 18.00
Reykjavík 0 skýjað
Bolungarvík -2 skýjað
Akureyri -1 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 1 alskýjað
Vestmannaeyjar 1 alskýjað
Nuuk -7 skýjað
Þórshöfn 8 skúrir
Ósló 2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 þoka
Stokkhólmur 6 heiðskírt
Helsinki 6 léttskýjað
Lúxemborg 6 heiðskírt
Brussel 7 skýjað
Dublin 12 skúrir
Glasgow 12 léttskýjað
London 12 léttskýjað
París 8 þoka
Amsterdam 10 heiðskírt
Hamborg 8 skýjað
Berlín 7 skýjað
Vín 0 alskýjað
Moskva -2 snjókoma
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg 2 skýjað
Montreal 1 alskýjað
New York 7 heiðskírt
Chicago 5 alskýjað
Orlando 21 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:28 16:03
ÍSAFJÖRÐUR 10:58 15:42
SIGLUFJÖRÐUR 10:42 15:24
DJÚPIVOGUR 10:03 15:26
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
í gær 39 ára gamlan karlmann,
Redouane Naoui, í 16 ára fangelsi
fyrir að bana Hilmari Þóri Ólafs-
syni á veitingastaðnum Monte
Carlo á Laugavegi í júlí síðast-
liðnum.
Redouane þarf að auki að greiða
dóttur Hilmars Þóris 3,1 milljón
króna í bætur, auk málsvarnar-
launa og sakarkostnaðar, samtals
um 2,3 milljónir króna. Gæsluvarð-
hald frá 15. júlí verður dregið frá
refsingu hans.
Bar við minnisleysi
Redouane bar við minnisleysi
vegna áfengisneyslu en meðal
gagna málsins voru upptökur úr
öryggismyndavél veitingastaðarins
Monte Carlo.
Þar sjást Redouane og Hilmar
Þórir í eldhúsi veitingastaðarins.
Hilmar situr við borð, en Redo-
uane sest hjá honum og virðast
þeir ræða saman. Virðist koma til
einhverra stimpinga á milli þeirra
og sést Redouane síðan leggja til
Hilmars með hnífi. Lendir lagið
vinstra megin á hálsi Hilmars, sem
fellur niður í kjölfarið. Slagæð í
hálsi hans fór í sundur og lést
hann eftir nokkurra daga sjúkra-
legu.
Lögregla lagði hald á hníf sem
fannst á vettvangi. Reyndist vera
um að ræða búrhníf með bjúgblaði,
sem mældist 25,8 sm á lengd.
Sýni send til Svíþjóðar
Sýni, sem tekin voru úr bletti á
skyrtu ákærða og af hnífsblaði,
gáfu jákvæða svörun sem blóð og
voru send til DNA-samanburðar-
rannsóknar við Statens Kriminal-
teknisk Laboratorium í Svíþjóð.
Samkvæmt greinargerð rann-
sóknastofunnar reyndust tvö sýni
sem tekin voru úr skyrtunni hafa
sama DNA-snið og var það snið
hið sama og DNA-snið Hilmars
Þóris Ólafssonar. Sama niðurstaða
var um DNA-snið sýnis sem tekið
var af hnífsblaði. annalilja@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Vettvangur Árásin átti sér stað á veitingastaðnum Monte Carlo.
Sextán ára
fangelsi fyrir
manndráp
Veittist að fórnarlambi með hnífi
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is