Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011 Fjölnir Stefánsson, tónskáld og fyrrver- andi skólastjóri Tón- listarskóla Kópavogs, lést á heimili sínu í gær, 81 árs að aldri. Hann fæddist í Reykjavík 9. október 1930 og voru foreldrar hans Hanna Guðjóns- dóttir píanókennari og Stefán Kristinsson tollstjórafulltrúi. Systkin Fjölnis eru: Hanna Kristín, f. 24.12. 1939, Elín, f. 13.10. 1943, Sigríður, f. 10.8. 1945 og Árni Erlendur, f. 14.2. 1949. Eftirlifandi eiginkona Fjölnis er Arndís Guðmundsdóttir. Börn þeirra eru Ingibjörg, f. 31.10. 1958, Þorbera, f. 20.1. 1962 og Brynhild- ur, f. 28.5 1967. Fjölnir nam við Verslunarskól- ann og Tónlistarskólann í Reykja- vík, stundaði sellónám hjá dr. Heinz Edelstein og nám í hljóm- fræði og tónsmíðum hjá Jóni Þór- arinssyni frá 1947, lauk burtfarar- prófi 1954. Einnig stundaði hann framhaldsnám í tónsmíðum hjá Ma- tyas Seiber í London 1954-1958. Meðal margra tónsmíða eftir Fjölni má nefna þrjú sönglög fyrir sópran og píanó við ljóð úr Tímanum og vatninu, sextett fyrir flautu, klarinett, horn, fagott, fiðlu og selló, hljóm- sveitarverkið Kóplon, og Limrur við ljóð Þorsteins Valdimars- sonar. Fjölnir var kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík 1958-1968, við Tónlistarskóla Mosfellshrepps 1965-1966 og Tónlistarskóla Kefla- víkur 1965-1967. Hann var skóla- stjóri Tónlistarskóla Kópavogs 1968-2000. Formaður stjórnar Íslenskrar tónverkamiðstöðvar var Fjölnir 1983-1984, sat í stjórn STEFs 1974-1988 og var meðal stofnenda Musica Nova. Hann hafði forgöngu um stofnun Taflfélags Kópavogs og var formaður 1967-1971, hann var gerður heiðursfélagi 1994. Árið 1994 var Fjölnir einnig heiðurs- listamaður Kópavogs. Fjölnir Stefánsson Andlát Kristján Jónsson kjon@mbl.is Hjörleifur Stefánsson arkitekt hefur sagt af sér sem formaður Húsafrið- unarnefndar vegna þeirrar ákvörð- unar Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráð- herra, að fara ekki að tillögu Húsa- friðunarnefndar um friðun Skál- holtskirkju og Skálholtsskóla. Nefndin vildi þannig stöðva bygg- ingu Þorláksbúðar sem hún álítur að muni rýra gildi þeirra bygginga sem fyrir eru á staðnum. Í afsagnarbréfi sínu segir Hjör- leifur að þetta sé í fyrsta sinn sem ráðherra fari ekki að tillögu nefnd- arinnar um friðun. Í því sé fólgið vantraust á mati nefndarinnar á gildi bygginganna og að ráðherra meti aðra hagsmuni meira. Auk þess sendi Hjörleifur Katrínu Jakobsdóttur persónulegt bréf vegna afsagnar sinnar þar sem hann gagnrýnir ákvörðun hennar um að fara ekki að tillögu nefndarinnar, slík vinnubrögð séu ekki fagleg. Segir meðal annars orðrétt í bréf- inu: „Ekki kann ég við að segja að um sé að ræða undirlægjuhátt gagnvart vinnufélaga á Alþingi og undanláts- semi við þau venjulegu, ófaglegu og óheiðarlegu vinnubrögð sem við- gangast í þessu samfélagi. Ég er feiminn við að nota þessi orð en þeg- ar litið er yfir feril þessa máls frá upphafi blasir við manni slík runa af óheiðarleika, lygum, prettum og ljót- um vinnubrögðum að manni verður orðfall. Ég skil ekki hvernig stjórn- málamaður í þinni stöðu getur tekið svona ákvörðun sem í reynd þýðir aðeins að verið er að festa í sessi það sem ætti að uppræta.“ Formaður hættir vegna ákvörðunar ráðherra Morgunblaðið/RAX Skálholt Tóftir Þorláksbúðar má sjá hægra megin á myndinni.  Álítur ráðherra vantreysta Húsa- friðunarnefnd Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði akstur karlmanns í gær- dag, en maðurinn reyndist ölvaður undir stýri. Það væri ekki í frásög- ur færandi nema fyrir þær sakir að með honum í bílnum voru eigin- kona hans og barn þeirra. Að sögn lögreglu er þetta ekki í fyrsta skipti sem hafa þarf afskipti af manninum vegna ölvunarakst- urs. Auk sektar og sviptingar öku- réttinda var málið tilkynnt barna- verndaryfirvöldum. Ók ölvaður um með fjölskylduna í för - nýr auglýsingamiðill Ný sending Verð kr. 7.900 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Tvær í einni Pelsfóðurkápur og -jakkar www.tk.is ERUM EINGÖNGU Á LAUGAVEGI 178 Laugavegi 178 - Sími. 568 9955 AFSLÁTTUR AF ÖLLUM IITTALA VÖRUM Vertu vinur á Facebook MATAR & KAFFISTELLUM SÖFNUNARHNÍFAPÖRUM ÍTÖLSKUM HITAFÖTUM HNÍFAPARATÖSKUR TILBOÐ MÖRG GÓÐ GLASATILBOÐ MÖRG FLEIRI TILBOÐ NÝTT KORTATÍMABIL FÖSTUDAG & LAUGARDAG Í TÉKK-KRISTAL BOMBA AFMÆLIS 41 árs Fallegar Jólagjafir HJÁLP Á HEIMASLÓÐUM Söfnunarreikningur 546-26-6609, kt 660903-2590. Tökum á móti matvælum, fatnaði og jólapökkum alla virka daga frá 9 -17 að Eskihlíð 2 - 4, 105 Reykjavík. Náttföt Sloppar Náttkjólar Undirkjólar Sundföt Undirföt Vertu vinur á facebook YÜØ f|zâÜÄtâz Mjóddin s. 774-7377

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.