Morgunblaðið - 25.11.2011, Page 11

Morgunblaðið - 25.11.2011, Page 11
Morgunblaðið/RAX Hugsjónakonur Hér eru þær Alda og Þórdís við höfuðstöðvar Græna krossins í skóginum og Karri skemmtir sér. leik, skiptum krökkunum upp í lið og hvert lið fær stóran ruslapoka og all- ir fara inn í skóginn hér og tína allt það rusl sem finnst. Þegar þau koma til baka þá finnum við út hver verður með mesta ruslið og allir fá verðlaun fyrir að standa sig vel. Þetta verður hátíð því við ætlum að halda smá veislu þegar tiltektinni verður lokið. Okkur langar líka að halda teikni- keppni, bjóða þeim sem taka þátt að senda okkur myndir af einhverju sem tengist náttúrunni. Við förum svo yfir teikningarnar og sendum viðurkenningu til þeirra sem senda áhugaverðustu myndirnar.“ Skrifstofa Græna krossins er úti í skóginum í litlu húsi sem Alda á þar og þegar þær fara þangað þá skokkar Karri, hundurinn hennar Öldu, gjarnan með þeim. Hann hefur reyndar verið svolítið erfiður í dýra- verndinni því hann drepur stundum kanínur, sem mikið er af í skóginum. „Hann drap kærustuna hans Trefils, sem var kanína sem ég átti,“ segir Alda. Þær Alda og Þórdís halda gott bókhald yfir starfsemi Græna kross- ins í sérstakri bók og þar kemur fram að meðlimir félagsins eru orðn- ir rúmlega þrjú hundruð. „Við ætl- um að safna fleiri félögum og kynna Græna krossinn á jólamarkaði næsta sunnudag frá klukkan ellefu til fimm í gamla Elliðavatnsbænum. Við ætlum líka að selja piparkökur til styrktar félaginu en við bökuðum og skreyttum þær sjálfar. Við fáum heiðursborð niðri í kjallara á mark- aðinum, af því við leggjum okkur fram um að halda svæðinu hér í Heiðmörk hreinu, tínum alltaf upp rusl þegar það verður á vegi okkar.“ Framtíðin er björt hjá þessum ungu hugsjónakonum. Þórdís ætlar að verða dýralæknir og hún á hryssu sem heitir Bekka. Alda ætlar að verða kokkur og rithöfundur og kannski teikna líka. Og þær eru báð- ar að læra á hljóðfæri, Alda á fiðlu en Þórdís á selló. Facebook: Græni krossinn DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011 A U G LÝ SI N G A ST O FA N D A G SV ER K /1 11 1 Velkomin í Litlatún í Garðabæ - verslunarkjarni í alfaraleið Ég elska jólin, þau eru há-punktur ársins og þaðskiptir engu máli þóttjólafríið í ár verði styttra en þriggja orða ljóð eftir eitthvert framúrstefnuskáld; jólin eru tíminn. Ég skil ekki þá sem upplifa des- ember eins og febrúar og enn síður þá sem hafa það beinlínis að áhuga- máli að finna hátíðinni allt til foráttu, ef það er einhvern tímann tími til þess að gera gott úr hlutunum og reyna að finna gleðina í hjartanu, þá er það um jólin. Jólaundirbúningur, jólaföndur, jólaskraut, jólakort, jólabakstur, jólaöl og jólaljós. Piparkökur, mand- arínur, konfekt, sörur, rjúpur, nammi namm. Home Alone, Christ- mas Vacation, Lord of the Rings, Die Hard. Ef ég nenni, Last Christ- mas, White Christmas. Ó já, ég elska jólin. Fólk elskar og hatar jólin af alls konar ástæðum, meðvituðum og ómeðvituðum. Sumir eiga vondar minningar um jólin, aðrir hafa lítið til að gleðjast yfir. Ég er óendanlega þakklát fyrir að eiga bara góðar og fallegar minningar um gleðileg jól í faðmi fjölskyldunnar. Allt ofantalið væri lítils virði ef ekki væri hægt að njóta þess með fjölskyldu og vinum. En í jólagjöf óska ég einskis heitar en að fá nóg. Ég vildi að dóm- nefnd Rann- sóknarset- urs versl- unarinnar hefði valið Nóg jólagjöfina í ár. Þessi jól, þetta haust, kallar heimsbyggðin eftir því að fá nóg. Nóg af frelsi, nóg af efnislegum gæð- um, nóg handa sér og sínum. Fólk er orðið langþreytt á því að horfa upp á ofgnótt þeirra sem fá aldrei nóg. Mér er það ekkert sérstakt kapps- mál að komast „í kjólinn fyrir jólin,“ né hef ég stórar áhyggjur af auka- kílóunum sem eru fylgifiskur hátíð- arinnar. Ég fæ hins vegar dálitla jóla-timburmenn þegar ég þvælist inn í verslunarmiðstöðvarnar milli jóla og nýárs og við blasa langar bið- raðir við skilakassa stórvörumark- aðanna og innkaupakerrur í röðum, yfirfullar af jólagjöfunum sem eng- inn vildi. Þar er meira en nóg. En eyðslufylliríinu lýkur ekki um jólin, eftir jól koma áramót. Þá flykkjast Íslendingar á flugeldasöl- urnar og styrkja björgunarsveitir landsins með Visakortinu. Svo fuðra peningarnir upp í stórkostlegustu flugeldasýningu í heimi. Þá er ég ekki bara glöð og þakklát fyrir að vera með fjölskyldunni heldur líka fyrir að vera Íslendingur. Við erum kannski óttalegir kjánar stundum en við erum kjánar saman. »Ég fæ hins vegar dá-litla jóla-timburmenn þegar ég þvælist inn í versl- unarmiðstöðvarnar milli jóla og nýárs og við blasa langar biðraðir við skila- kassa stórvörumarkaðanna HeimurHófíar Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.